be[¡]kon |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
div class="%20ut&%20yfir&%20inn&%20undir"
align="center" color="#FFFFFF"
[/table]
Archives Apríl 2008 Mars 2008 Febrúar 2008 Janúar 2008 Desember 2007 Nóvember 2007 Október 2007 September 2007 Ágúst 2007 Júlí 2007 Júní 2007 Maí 2007 Apríl 2007 Mars 2007 Febrúar 2007 Janúar 2007 Desember 2006 Nóvember 2006 Október 2006 September 2006 Ágúst 2006 Júlí 2006 Júní 2006 Maí 2006 Apríl 2006 Mars 2006 Febrúar 2006 Janúar 2006 Desember 2005 Nóvember 2005 Október 2005 September 2005 Ágúst 2005 Júlí 2005 Júní 2005 Maí 2005 Apríl 2005 Mars 2005 Febrúar 2005 Janúar 2005 Desember 2004 Nóvember 2004 Október 2004 September 2004 Agúst 2004 Júlí 2004 Júní 2004 Maí 2004 Apríl 2004 Mars 2004 Febrúar 2004 Janúar 2004 Desember 2003 Nóvember 2003 Október 2003 September 2003 Ágúst 2003 Júlí 2003 Júní 2003 Maí 2003 |
29.7.04
Ég komst að þeirri niðurstöðu í dag, þegar ég vafraði einn um með hrífunni minni og brettum Kanada, að ég sé annað hvort búinn að finna sjálfan mig eða þá búinn að týna mér og farinn að leita aftur.
Staðreyndin um að ég fái útborgað á morgun kom í veg fyrir að þessi dagur myndi vera óbærilegur.
Féleysi á sumrin er eins og trefill án randa. 28.7.04
Dagurinn 26. júlí mun ekki lengur vera þekktur sem fæðingadagur Kevin Spacey, ónei ónei, hann mun nú vera þekktur sem fæðing experimental effkta-teknó-pönksins...
Er Lemon!!Scan!! á þínu heimili?
Smá tölvuhangs, hollur kvöldmatur, dúndur æfing og svalandi night-cap er líka alveg... tja... ágætt.
27.7.04
26.7.04
Djöfull er ég búinn að vanrækja Beastie Boys.
Þetta eru duglegir strákar og eiga skilið áminningu. I rock a house party at the drop of a hat 25.7.04
A whole new world (don't you dare close your eyes)
A hundred thousand things to see(Hold your breath, it gets better) I'm like a shooting star, I've come so far, I can't go back to where I used to be... 17.7.04
Djöfull hata ég að vera "djamm-bílstjóri". Maður fer í partí og allir þurfa öskra eins hátt og þeir geta þegar þeir sjá mann og segja hvað þeim þykir rosalega vænt um mann og "þurfi að hitta mann bráðlega" og maður veit ekkert hvort þeim sé alvara eða ekki... Maður hittir þetta fólk síðan á röltinu svona af og til og það er bara "hæ" og svo búið, ekkert meir fyrr en það kemur að næsta partíi og þá bara "HÆÆÆÆ PÉTUR!!!" *faðmlag* *vínlykt* *öskur* "Vá!!! ég hef ekki talað við þig svo lengi!! ha!!! að hugsa sér!!!" Við verðum að hittast og fara á kaffihús á næstunni!!" "í alvöru við gerum það!" Og svo heyrir maður ekkert. Svo hittist maður í Spúútnik eða Skífunni eða bara á Brennslunni á virkum degi og þá er það svona "hæ" *vingjarnlegt bros*
Það var samt ógeðslega fyndið áðan þegar við strákarnir ruddumst inní lítið partí fullt af útbrunnum hagskælingum og hækkuðum í botn, vorum ógeðslega dónalegir við alla, pirruðum nágrannann og hurfum svo eftir svona 2. mínútnu dvöl. Svo er ég orðinn svo mikill næturhrafn, kem heim klukkan 4 og kveiki á tölvunni... hvað er það? það kemur aldrei fyrir mig. Ég vildi að ég ætti Viskí, þá gæti ég fengið mér ágætis night-cap. Isidor voru mjög góðir á Gauknum í kvöld. Addi er vél. Ég vil fá Amnesiac diskinn minn aftur. Ef einhver er með hann er hann vinsamlegast beðinn um að skila honum. Sömuleiðis Sounds diskurinn minn. Og Fallega Gulrótin. Ég hata að eiga tóm hulstur. Sérstaklega ef diskarnir eru sjaldgæfir og/eða eiga sérstakan stað í mínu hjarta. Ég neyðist til að hlusta á Amnesiac núna í wma formi þar sem ég er svo sniðugur að geyma alla diskana mína í tölvunni ef þeir skyldu nú týnast. Plötur dagsins: The Cure - Wish !!! - Louden Up Now Ratatat - Ratatat Mugison - Lonely Mountain Radiohead - Amnesiac 10.7.04
Ég elska Reykjavík.
Hvar annarstaðar í heiminum eru túlípana ljósaskermar á ljósastaurunum? Hvar annarstaðar eru litlir sætir útimarkaðir sem selja notuð föt og góðar indie plötur á lágu verði? Hvar annarstaðar getur maður labbað í bænum í skipstjóra átfitti og enginn segir neitt við því? Þetta síðasta er örugglega hægt útum allt en þetta gerði ég í dag og er mjög sáttur. Kaup dagsins: Sonic Youth - Corporate Ghost myndbandasafnið á DVD Deerhoof - Milkman Sonic Youth bolur með Goo coverið framaná Kaluha flaska sem verður stútuð í kvöld með Vodka og rjóma... ég verð að fara að horfa á Big Lebowski aftur... hver á hana? Og.... hverjum langar með mér á Sonic Youth tónleika í Brixton Academy í London 2. sept? Miði = 2000 ISK (16 pund) Flugmiði = 15.000 ISK... 17000 kjell.... hver er geim? svo vil ég minna á tónlistarsíðuna mína, nýjir og ferskir mp3 komnir.... Plötur: Sonic Youth - Sonic Nurse Sonic Youth - Experimental Jet Set, Trash and No Star Deerhoof - Milkman
Ég var víst einhverstaðar í útlöndum... í Eistlandi eða eitthvað... algert rugl.
Á þessu augnabliki fékk Hr. Beikon ritstíflu og ákvað að sleppa því að skrifa meiri texta, enda er hann í algeru rugli. 3.7.04
hallo. stopp. er i tallin. stopp. eg kem heim a manudaginn. stopp. i tartu er ogedslega mikid af second-hand budum. stopp. eg bid ad heilsa ollum sem eiga sko. stopp. annars ekki stopp. bless. stopp.
plötur. stopp. The Smiths - The Queen Is Dead. stopp. Happy Mondays - Bummed. stopp. Siouxie And The Banshees - Tinderbox. stopp. Mugison - Lonely Mountain. stopp. |
||||||||||||||||||||||||||||||