be[¡]kon

28.11.04
 
Ég elska hvernig kókaín fer með fólk...

Í Kólumbíu: Tveir menn ræna óléttri konu, 8 mánuði á leið, skera úr henni fóstrið, ræna því og skilja konuna eftir. Biðja föðurinn um rausnargjald.

*mynd af dauðu fóstri - eiginlega einum of ógeðslegt fyrir síðuna - ritskoðað*


 
Ég er að spá í að vera með svona lista yfir 50. bestu lög þetta árið og tilkynna 10 lög í hverri viku, frá og með deginum í dag, fyrst það er svona sunnudagur í aðventu og eitthvað, og ekki nóg með það, heldur getið þið sótt þessi lög með því að ýta á hvern link með hægri takka músarinnar og ýta á "save target as" og þá getið þið valið hvert lagið á að fara og hvað það á að heita, ef ykkur finnst nafnið á laginu ekki vera við hæfi. Ef þið eigið mac þá megið þið brenna, því ég öfunda ykkur og kann ekkert á OS stýrikerfi. Takk. Gjörið svo vel:

50. Air - Run
49. Beck - Everybody's Gotta Learn Sometime
48. Einar Örn & Ghostigital - Bank
47. Mu - Tell You Something
46. Sufjan Stevens - Detroit! Lift Up Your Weary Head!
45. Mugison - Sea Y
44. The Fiery Furnaces - Up In The North
43. Les Savy Fav - Hold On To Your Genre
42. The Chemical Brothers - Out of Control
41. Sonic Youth - The Burning Spear


26.11.04
 
9!! Alveg eins og 9 mánuðir! Eða 9... já!
ókei
9!! á hvolfi lítur 9 út eins og 6!!! SEX!!!! KYNLÍF!!!!!!!

9!


 
10 dagar krakkar!!! ó boi ó boi ó boi!!!!


 
Vá... hafðið einhverntíman prófað að sörfa í gegnum blogger með því að ýta á next blog gaurinn þarna fyrir ofan? Djöfull er ógeðslega mikið af drasli til, fullt af einhverjum nerds og svo rakst ég líka á klám, lista yfir kaþólsk blogg og svo gelgju frá tælandi/bandaríkjunum með skemmtilegasta slangur í heimi.


23.11.04
 
Ókei, spennið beltin, því að klukkan 21:30 á sunnudaginn 5. des, mun ég skrifa besta, fullkomnasta, skemmtilegasta og fyndnasta blogg sögunnar, fylgist spennt með niðurtalningunni hér á p-beikon.blogspot.com, verst lyktandi heimasíðu veraldar... jahá, mmm ég elska héra.



20.11.04
 
Djöfull hata ég þegar maður er nýbúinn með kókdós en manni langar í aðra, en maður er of fokking þunnur til þess að nenna að drulla sér út í sjoppu og endar fastur fyrir framan tölvuskjá að hlusta á noise-dub.

Kannski ég sagi bara af mér lappirnar.


18.11.04
 
ég ætla að herma eftir henni júlíú og hafa einn svona góðan inni/úti lista

Inni:
- Júmbó hamborgarar
- Deerhoof
- Að fikta í mögnurunum og mækunum hjá hinum hljómsveitarmeðlimunum í hljómsveitinni þinni á miðjum tónleikum
- Snjórinn og veturinn
- Hryllingsmyndamaraþon upp í sumarbústað
- Stór heyrnartól á veturnar
- Smekkleysubúðin í kjörgarði
- Heimasíðan hans Dags Kára
- Fréttapési
- Babar
- Snjókarlinn fyrir utan listaháskólann
- Velvakandi
- Sterkt áfengi

Úti:
- Íslensku ritgerðir
- Að vera rekinn úr ENS403
- Haustkosningar MH 2004
- Edduverðlaunin
- Messenger
- Hotmail
- Microsoft
- Bill Gates
- Fólkið sem sér um stúdíóið í LHÍ
- Risaeðlugrín
- Atvinnuleysi
- iPod
- Bjór