be[¡]kon |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
div class="%20ut&%20yfir&%20inn&%20undir"
align="center" color="#FFFFFF"
[/table]
Archives Apríl 2008 Mars 2008 Febrúar 2008 Janúar 2008 Desember 2007 Nóvember 2007 Október 2007 September 2007 Ágúst 2007 Júlí 2007 Júní 2007 Maí 2007 Apríl 2007 Mars 2007 Febrúar 2007 Janúar 2007 Desember 2006 Nóvember 2006 Október 2006 September 2006 Ágúst 2006 Júlí 2006 Júní 2006 Maí 2006 Apríl 2006 Mars 2006 Febrúar 2006 Janúar 2006 Desember 2005 Nóvember 2005 Október 2005 September 2005 Ágúst 2005 Júlí 2005 Júní 2005 Maí 2005 Apríl 2005 Mars 2005 Febrúar 2005 Janúar 2005 Desember 2004 Nóvember 2004 Október 2004 September 2004 Agúst 2004 Júlí 2004 Júní 2004 Maí 2004 Apríl 2004 Mars 2004 Febrúar 2004 Janúar 2004 Desember 2003 Nóvember 2003 Október 2003 September 2003 Ágúst 2003 Júlí 2003 Júní 2003 Maí 2003 |
29.4.04
Helvítis DV!!
Í dag var birt frétt um hljómsveitina Gaur í slúðurdálki blaðsins. Þar var okkur bendlað við eiturlyfjanotkun. Þar stóð „Orðið Gaur er nú oft notað í daglegu tali um eitt gram af hassi í undirheimum Reykjavíkur. Hljómsveitarnafnið gæti þá staðið fyrir eitthvað allt annað en fólk heldur í fyrstu." Svo var hann einnig að tala um að nafnið okkar sé stolið og hafi einu sinni verið nafn hljómsveitarinnar Klink þegar einhverjir liðsmanna hennar tóku þátt í músíktilraunum. Þetta eru náttúrulega algjörlega út í hött. Í fyrsta lagi er þetta ekki svo algengt orð yfir hass, pælingin á bakvið nafnið Gaur var, að þetta orð væri svo hlutlaust, það gengur sem orð yfir bæði karlkyns og kvenkyns verur, og allskonar hluti, fólk út um allan bæ talar um allskonar hluti sem Gaur, t.d. „réttu mér gaurinn þarna“ eða „svo fer þessi gaur hingað“ og fannst liðsmönnum hljómsveitarinnar þetta frekar skondið. Í öðru lagi gæti þetta haft slæm áhrif á gangi hljómsveitarinnar, þar sem eru mögulega yfirvofandi einhver gigg fyrir grunnskóla krakka, og einnig er staðfest núna spilerí á bindindishátíðinni á Galtalæk. Skólastjórnendur og félagsmiðstöðvar gæjar gætu auðvitað lesið þessa grein og hugsað, guð þetta eru bara eintómir dópistar, ha, þýðir ekki að láta þá spila á svona opinberum stöðum sem styrktir eru af ríkinu/borginni. En með þessum pistil vil ég skora á fólk til að forðast þetta málgagn, og ekki kaupa það, gera sem best í að styrkja ekki þetta blað og ég tala ekki einu sinni um allar hinar greinarnar sem birtar hafa verið án leyfis fólksins sem fjallað var um í DV (t.d. Prestamálið, læknadæmið og auðvitað Neskaupstaðarsjokkið). Rænið blaðinu úr öllum sjoppum og brennið það! Segjum nei við Bandarískum blaða-fyrirmyndum! Segjum já við málfrelsi með tilliti til siðferðis! Annars var ég á gríðarlegum tónleikum hjá Sinfóníunni. Hún spilaði ekkert annað en Níundu Sinfóníu Beethovens sem er bara eitt undraverðasta tónverk mannkynsögunnar, priceless laglínur, frábært samspil milli hljóðfæra og ógleymanlegur kórall. Mhmm Tónlist: Ludwig van Beethoven - Sinfónía nr. 9 í d-moll, op. 125 Radiohead - Karma Police (singúll) Kill Bill vol. 1 OST 27.4.04
omg, ég var skiluru í skólanum í dag ;) og það var bara mega gaman, og ég bara þúst fékk alveg tvö sms hehe frá honum Gauta sæta :D:D:D:D og það stóð alveg gegt sjokkerandi info og vá, það var alveg ýkt fyndið híhíhíhí!!!!
Svo var ég bara í náttúrúfræði og OMG það var baaaara leiðinlegt, vá hvað ég hata kennarann minn skiluru, ómg. ;);););) Svo var Sara Dögg bara eikkað að rífa kjaft við mig í dag og bara hvað er málið skiluru, þó ég hafi skiluru kysst fyrrverandi kærastann hennar þá þúst þarf hún ekki að fara að kalla mig HÓRU! skiluru ómg... þetta var svo asnalegt LOL!!! ;p;p;p En svo bara, nenni ekki að rugla meira í dag, alveg nóg skiluru ókei við sjáumst bara á morgun og það verður bara gegt, ókei bæbæbæbæbæ :D:D:D:D:D:D Þessi færsla var í boði Kristínar Óskar - 9-B, Réttarholtsskóla. Hún mun birtast hérna af og til næstu mánuðina. Takk fyrir. 26.4.04
Þessi færsla átti að vera meðfram þessarra lína (along these lines) - Þá er kjaaallinn bara kominn með miða á the big T, djöfull verður þetta feitt sjitt... - En svo er ekki. Í gær þegar ég var kominn við tölvuna, með mömmu við hlið mér sem hélt á sínu ágæta kreditkorti til að slá inn númerið á síðu ticketmaster í skotlandi, þá gat ég bara alls ekki keypt miða. Það stóð bara currently not on sale þar sem stendur venjulega on sale now. Þá varð ég ekki glaður, einungis Stina Nordenstam gat bjargað mér (Og það gerði hún, ójá). Svo vildi það þannig skemmtilega til í dag að auka upplag af miðum á hina ágætu tónlistarhátíð birtust á netinu, ég sá þetta í skólanum og dreif mig í fyrsta strætó eftir skóla og beint heim í tölvuna, og þar stóð enn, on sale now... Ég klikka á linkinn, slæ inn fjölda miða sem ég ætla að kaupa (einn) og ýti á continue... þá stendur bara allt í einu, no more tickets available...... Fokking sköllfökk. Þá virðist öll von vera úti um að ég sjá þessa fínu listamenn troða upp í einu í þessarri stórborg Skotlands.
Ég er farinn að bíta í súrt epli og horfa á meistaraverk Tarantinos á stafrænum mynddiski. Takk fyrir mig Plata vikunnar: Stina Nordenstam - People Are Strange Fleiri plötur: The Roots - Things Fall Apart Eighties Matchbox B-Line Disaster - Horse of the Dog The Strokes - Room On Fire 25.4.04
Og já, fokk, ég gleymi.... Gaur er kominn með heimasíðu... jé beibí bring on ðö fat lövin.....
www.gaur.info
Jæja, ég ákvað loksins að skella inn nýrri könnun eftir að sú síðasta hafði verið í svona 2 mánuði, en þar bara Landi í spritt sigur úr býtum í keppninni um besta drykkinn.
Takk fyrir mig. 22.4.04
Alltaf þegar ég ákveð að baka (eins og ég gerði í dag) lendi ég alltaf í því að þurfa að fara ekki einu sinni heldur tvisvar sinnum út í búð að kaupa efnið í baksturinn. Áðan ákvað ég að steikja svona amerískar pönnukökur. Einfaldari ´gæti það varla verið, en það voru ekki til egg. Það var til hveiti, smjör og allt saman, ég sá einhverja lyftiduftsdós þarna og glæra dós sem hlyti nú að innihalda matarsóda. Ég labba rólegur útí búð, kaupi egg, sprite og rjóma til að hafa með og þegar ég kem aftur fer ég að setja hveitið í skál og svona. Ég fer inn í búr, sé að það sem ég hélt að væri matarsódi var bara alls eki matarsódi, heldur hjartarsalt. Jæja, það er þó hægt að sleppa sódanum í svona uppskriftum, setja bara aðeins meira lyftiduft. Er svo ekki bara dósin tóm. Helvítis. Ég dröslast aftur alla leið útí búð og kaupi þetta sjitt, kem heim og steiki pönnukökurnar. Þetta kemur alltaf fyrir, jafnvel með einfaldar uppskriftir eins og amerískar pönnukökur... hvað þá vöfflur. Einu sinni þurfti ég að fara í þriðja skiptið að kaupa rjóma, eftir að hafa þurft að kaupa fyrst sykur, síðan egg (Það virðist alltaf vanta eggin, ég veit ekki afhverju). Og það var líka um kvöld, eftir 20:00 þannig að ég gat ekkert farið út í lókal melabúðina mína, heldur alla leið inn á Hjarðarhaga í 10-11. Fokking sjitt.
Plötur dagsins: Stina Nordenstam - People Are Strange Rúnk - Ghengi Dahls 20.4.04
Gleði, gleði, gleði...
Katrín hefur hafið blogg á ný! Hinn margrómaði blogg-snillingur er staðsettur hér 15.4.04
Þegar fornbílar eru komnir á göturnar þa veit maður að það er lítið eftir af skólanum.
Vá hvað ég nenni samt ekki að vera í skólanum þessu síðustu daga, þetta páskafrí fór alveg með mig. Þar sem ég er að flytja hafði ég ekki annara kosta völ en að mála nýja húsið eða vera heima og læra. Svoleiðis á páskafrí ekki að vera. Ég veit ekki hversu mikið mig hefur langað til að hanga annar staðar en heima hjá mér, meðan sólin var úti og maður var ekkert í skóla, rölta niður í bæ og bara hanga, rölta um og drekka gott kaffi. Sem minnir mig, ég prófaði þarna nýja kaffigaurinn í gær, á lækjartorgi. Lattéið kostaði bara 150!!! (reyndar var það útaf einhverju barþjóna móti... en hei!) það var mjög gott. Þetta verður örugglega svona staður þar sem snobbaða fólkið sem er of fínt fyrir strætósjoppuna (eins og ég....) á eftir að bíða eftir strætó og svona, sötrandi á macchiato með kanil og mjólkurfroðu. nóg í dag. Plötur: Liars - They Were Wrong, So We Drowned I, I, I, I want to be a horse! Radiohead - The Bends I wish it was the sixties, I wish I could be happy... 10.4.04
Vá, hvað ég er sáttur núna... hugsa sér, ég bara goðið sjálft... eða einhver ómerkilegur skipa-vinnu karl... Neinei... Ég var Jim Morrison... jess. 5.4.04
Það er svo gott að hafa nóg fyrir hendi á svona frídögum, þó það hljómi ótrúlega, þá finnst mér geðveikt að vera ekki í einhverju afslappelsi í páskafríinu (nem auðvitað á páskadag, þá stefni ég á að geta ekki hreyft líkama minn vegna eggja og kjöt áts). Þessa daganna er ég að mála, flytja dót til, læra (kannski... jú... maður verður), æfa með hljómsveitinni minni og syngja með kórnum. Ef ég hafði þetta ekki væri ég einhverstaðar í ræsinu núna að láta mér leiðast og fá ógeð af tónlist því ég væri bara að hlusta alltof mikið á hana.
Annars fann ég hið ágætasta share-forrit um daginn, sem heitir soulseek. Þar hef ég niðurhlaðið stanslaust nýjum og ferskum diskum sem ekki fást á íslandsbyggð. Og því sem ég tími ekki alveg að kaupa mér. Núna fagnar hjartaða mitt á hverjum degi, því að tónlist í heiminum í dag er ótakmörkuð. Hvað er með fólk sem fattar ekki þegar fólk er ekki alvarlegt? Fólk sem lifir bókstaflega í stærðfræðilegum heim, þar sem ekkert er óútreiknanlegt verður að finna gátt í hinn almenna heim þar sem engin takmörk eru sett fyrir neinu. Líka fólk sem skammast sín fyrir gjörðir manns, sem eru af óalvarlegum toga á greinilega virkilega erfitt, ég meina, þegar maður er í lokuðu rými og maður er að gera eitthvað asnalegt í góðra vina hópi, á maður ekki að þurfa að horfa í aðra átt og þykjast vera kúl. Líka ef maður er í bíl og þrýstir Pepsi Max flösku á gluggan fyrir framan annan bíl, ætti maður að finna sér öflugri kömbakk en að þrýsta batteríi í gluggan... "Það er rautt ljós!!!" - "Það er í lagi, það er grænt hinu megin" Ég hitti Katrínu í Mammút í gær í fermingarveislu. Mér fannst það fyndið, ég hefði líka örugglega aldrei talað við hana væri hún ekki fræg í dag. Svo vil ég biðja stjórn nfmh 2004/5 að halda næstu stórfélagsferð á miklu aðgengilegra og minna subbulegri stað. Þetta var hörmung. Annars var fólkið hresst, en það skiptir auðvitað mestu máli. Ég vil einnig vekja athygli á dáðadrengjaleiknum, lesa má um hann hér... a rum dum gorbatjov!!! Mér finnst alkynhneigð fyndið orð. Plötur: Pixies - Bossanova Pixies - Trompe Le Monde Deerhoof - Apple O' Air - Talkie Walkie TV On The Radio - Desperate Youth, Bloodthirsty Babes |
||||||||||||||||||||||||||||||