be[¡]kon

16.7.07
 
Jæja. Hér sit ég í svona 17. sinn seinasta klukkutíman fyrir framan tölvuna. Eitthvað sem maður gerir þegar maður tekur til. Á miðvikudaginn ætlar fólk að koma og skoða íbúðina sem ég er að leigja þangað til í ágúst og það þarf að taka svo mikið í gegn. hér þarf að skúra, múra, húðflúra og inn á milli þarf að sjálfsögðu að lúra. Kannski fá sér nokkra bjúra.

Á föstudaginn er ég að fara að vera með atriði í röð fyrir utan mál og menningu. Í harry potter búning (reyndar verð ég í lucius malfoy búning en þú veist potter þemi). klukkan 23:00. Á FÖSTUDAGSKVÖLDI. Svo fer ég beint á Ólíver að leika einn prest. Og líka á laugardaginn. á miðnætti. komið að horfa. ég hvet líka alla til að fara á DJ Mehdi þetta umrædda föstudagskvöld. En ég meina fólki finnst hvort eð er ekkert gaman að dansa við tónlist sem þeir hafa ekki heyrt áður svo þau geta ekki sungið með svo að þið skulið ekkert vera að fara. Ykkur finnst pottþétt leiðinlegt. Enda er barinn líka orðinn hálfglataður. ógeðsleg svitalykt þarna og subbupakk. reyndar er þannig líka allstaðar. sérstaklega á prikinu. þar er líka mikil prumpulykt. og subbulegt fólk sem þykist vera fimmtán ára á fyrsta fylleríinu sínu.

Ég nenni ekki lengur að setja plötur á netið en þetta er ég búinn að vera að husta á:
Liars - Liars
Animal Collective - Strawberry Jam
Kathy Diamond - That's Miss Diamond To You
The National - Boxer
Múm - Go Go Smear The Poison Ivy
The New Pornographers - Challengers

Teknó:
Sebbo - Beirut Boogie
Ricardo Villalobos - 1º encuentro latinoamericano de la soledad
Luciano - Drunken Ballet
Peace Divison - Voodoo
Renato Figoli - Viva, Viva L'Olio D'oliva (Massi DL Remix)

Kári: ég redda þessu þegar ég finn mér tíma til að taka upp.