be[¡]kon

29.6.03
 
Ég fór á akureyri um helgina... og sagan hefst:
Hyundaiinn hans afa dró mig, Huldu Björk og Erlu alla leið norður á akureyri, þrátt fyrir alla erfiðleikana sína í brekkum og stoppið í hvalfjarðargöngunum var ekkert voða sniðugt (hann drap svona hægt og hægt á sér í brekkuni upp úr göngunum). En allt gekk. Það var stoppað í Hyrnunni og bóbóað og aftur á Staðarskála og loks í Varmahlíð, en Hulda var stoppuð af einhverri perralöggu rétt fyrir utan þann bæ (við fengum samt ekki sekt - vei). En loksins komumst við alla leið til bæjarins góða. Við fórum beint á tjaldstæðið og reistum okkar svefnpláss. Svo kom hún Hólmfríður Helga og gaf okkur skoðunarferð af Akureyri kl. 01:00 sem var voða kósý. Svo sváfum við til hádegis og fórum í sund.. glæsileg sundlaug arna. En það vildi svo til að ég hafði gleymt sundskýlunni minni heima á Reynimel og varð að leigja svona ógeðslega litla speedo sundskýlu með nafn sundlaugarinnar prentaða við klofið mitt... ojj bara. Ég bar mig samt bara ágætlega í þessu og var farinn að fíla mig helvíti mikið upp undir lok sundferðar okkar. Næst fórum við að leita að góðum hádegismat og enduðum við á bjullustaðnum bautanum þar sem allur maturinn var voðalega saltur... mmm... hland.
Svo skoðuðum við okkur um aðeins og héldum loks aftur að tjaldstæðinu þar sem við hittum hana Helgu aftur. Við sátum í tjaldinu og fórum í s.p.k. af einhverri bjullí ástæðu og höguðum okkur eins og 7. bekkingar. það var samt í lagi. Svo hvíldum við okkur aðeins fyrir kvöldmat - Helga fór í matarboð en við fórum á Greifann(maturinn þar entist alveg til hádegis í dag - helvíti góð spörun). Svo röltuðum við um bæinn og öskruðum á bjullur fórum svo á Kaffi Karolínu sem er örrugglega eitt besta kaffihús sem ég hef farið á - ótrulega gott kaffi vá. Já svo fórum við aftur að labba og reyndum að finna okkur einhvern klúbb eða bar til að fara á en það var allur bærinn tómur! Það voru allir að rúnta sinn litla rúnt. Í svörtum fötum voru að spila á Sjallanum og það kostaði 1500 inn - ekki séns! En hún Helga fór einmitt þangað... Við hittum hana svo ekkert aftur en þetta kvöld hefði örrugglega verið skemmtilegra hefði hún djammað með okkur, en nei. Við fórum svo bara aftur í tjaldið og fórum á megatrúnó þangað til að Hulda sofnaði. þá fórum við Erla í 10/11 og keyptum okkur bóbó og rúntuðum aðeins til að sjá hvort það myndi glitta nokkuð í hana Helgu vinkonu okkar en nei, hún var hvergi sjáanleg. Jæja. Við vöknuðum og pökkuðum saman, ætluðum að reyna kveðja Helgu en hún svaraði ekki símanum þannig að við lögðum bara af stað heim. Við stoppuðum bara í Varmahlíð (þar sem pizzan frá deginum áður var kláruð) og í Staðarskála. Svo var megateppa í mosfellsdalnum. Lengdi ferð okkar um 40 mín. ullabjakk.
Ferðin einkenndist aðalega af kynlýfi. Það var ekkert mikið annað rætt en kynlíf. Það var ekki stundað en það var rætt allsvakalega. Mjög merkilegt.
Þrátt fyrir leiðinlegt laugardagskvöld var þetta afar kósí ferð og er helvíti gott að komast svona út úr bænum og gista í tjaldi...! Takk fyir, ferðaguðir!
Ég ætla hér að lista þær plötur sem gerðu þessa ferð gleðilega:
Spice Girls - Spiceworld
I need somebofy with the human touch
Björk - Post
I go through all this before you wake up so I can feel happier to be safe up here with you
The Ultimate Dolly Parton
Jolene, Jolene, Jolene, Jolene... I'm begging you, please don't take my man
Beck - Midnite Vultures
Lady, step inside my Hyundai
Radiohead - The Bends
The best thing you've had is gone away
Electric Six - Fire (ef við hefðum átt hana)
Let's start a nuclear war... at the gay bar, gay bar, gay bar
Amelie O.S.T
If it's a crime then I'm guilty, guilty of loving you
og Jeff Buckley - Grace
Hallelujah (ég kann ekki metna?afyllri setningu af ?essarri pl?tu...)

Ég fylgdi örlögum mínum til Akureyrar og þau gáfu mér ekki tækifæri...










26.6.03
 
Jei!!! ?g er a? fara ? Akureyri ? morgun! Svona getur spontant l?f veri? skemmtilegt... ?kva? ?etta ? fyrradag og allt tilb?i? n?na... Ge?veikt g?? p?ling!! Svo er
Halla byrju? a? skr? hugsanir s?nar netlei?is... Til hamingju me? s??una und gott gengi in das fj?tj?r.

Ekki ver?ur meira babbla? ? dag ?ar sem ég ?arf a? fara pakka - en hei... ef ?i? lesi? ?etta fyrir 17:30 27/6 - endilega komi? ? dansiball ? L?kjartorgi milli 15:30 og 17:30! JeiJeiJei!! (?arna ver?ur einnig fl?amarka?ur og fj?rugir hlutir ? yndislegu Reykjav?kur bl??vi?rinu) J?nas!


24.6.03
 
Ætli maður þurfi ekki að blogga smá...?

Það er ógeðslega leiðinlegt að keyra reykjanesbrautina í roki og rigningu á beinskiptum Hyundai Pony 1991 árgerð... Ég er nebblega rosa vanur svona sjálskiptum Land Cruiser sem ég keyri oftast en þar sem faðir föður míns lagðist í ferðalög fæ ég að láni bílin hans... en hann er beinskiptur!! Ég hef ekki keyrt svoleiðis bíl síðan ég tók bílprófið mitt... vitiði hvað það er pirrandi að drepa á bílnum þegar maður reynir að taka af stað úr brekku?? Ha? Ha? En sem betur fer lá leið mín um reykjanesbrautina í Bláa Lónið sem var hrikalega afslappandi og leyfði mér að rækta minn sjálfskipta pirraða anda...

Mér finnst að vinnuheiti sem eru stíluð á annað kynið ættu að geta notast tvívegis... Ég hef til dæmis aldrei heyrt um ráðfrú, forsætu eða fyrirseta. Það þarf að breyta þessu svo að enginn miskilningur mun eiga sér stað í framtíð.

Allir að horfa á þáttin hennar Sirrýar á morgun! Kannski verður götuleikhúsið í þættinum... kannski ekki.

Plata gærdagsins:Yeah Yeah Yeahs - Fever To Tell
Boy your just a stupid bitch and girl your just a no good dick
Plata dagsins:Coldplay - Parachutes
Yeah I'll always be waiting for you


22.6.03
 
Ný könnun krakkar!!
OK Computer vann seinast... nokkuð viðsættanlegt. Samt finnst mér Kid A best....


 
Ég er svo klár!! ég gat lagað tölvuna mína alveg sjálfur! Æm verí prád ræt ná.... Jæja í dag er sunnudagur. Vegna þess hef ég verið alveg hrikalega afslappaður... ég sat úti í garði að lesa hugsanleg LFMH leikrit drakk mitt kók og reykti fínustu Camel sígarettur. Já og svo var auðvitað sólskin og manneskja sem tekur lit jafn skjótt og veggur sem málast, verður brátt haldin vera svertingji. Já þetta er nú alveg rosalegt...
Svo var Jónsmessa í gær og sýndi veðrið það rosalega vel. Neon bleik sólarupprásin lýsti upp himininn í gær sem var jafn fagur og litskrúðugu fiðrildin sem flögra um ótroðnar slóðir í djúpum regnskógum suður ameríku.
Í tilefni fallega veðursins í gær horfði ég á sjónvarpið. Zoolander er ein fyndnasta mynd veraldar. There's got to be more to life than being really, really, really, ridiculously good looking

Mig langar að taka smá móment hér og þakka Veronikku og Huldu Björk fyrir að vera fáránlega kósí.
Hei! Æ rílí læk ðís tjikks neimed Veronikka end Hulda!

Ég er voðalega ófyrirsjáanleg og spontant manneskja. Ég ákvað að halda partí á föstudaginn svona um 5/6 leytið. Það er náttlega ekkert rosa sniðugt að ákveða svona hluti seint... Það kom alveg nóg af fólki, en bara á mismunandi tímum... Svo var bara enginn á fylleríi. Mér fannst það ekki nógu gaman, ég var að vonast til þess að fólk myndi koma með læti og dansa og detta og æla út um allt heima hjá mér því það hefur ekki gerst núna í u.þ.b. tvö ár... Það er líka svo rosalega gaman að halda partí heima hjá mér... Ég geri þetta aftur seinna í sumar og þá býð ég fleiri fólki og allir verða fullir... verið tilbúin með kippu í hendi ef ég skyldi efna til teitis á næstunni.....

Pælið í þessu: Ég hitti Stefán Karl, Jónsa og Birgittu í gær.. Geri aðrir betur!!

Mig langar í geisladiska.... Ef það eru einhverjir sniðugir diskar sem ég ætti að kaupa mér, endilega tjáið ykkur um það í comennta dótinu fyrir neðan

Plötur helgarinnar:White Stripes - White Blood Cells
These two sides of my brain need to have a meeting
og The Libertines - Up The Bracket
New York City's very pretty in the night time, oh don't you miss soho


20.6.03
 
Kreizí!!

Linka listinn er sífellt að stækka....

Já til hamingju með gærdaginn, konur mínar. Ég skreið niður laugaveginn í gær vegna þess að þið áttuð afmæli. Í ól. Já svona er þetta bölvaða misrétti...
Annars átti Halli afmæli líka og ætluðum við og restin af Gaur á Maus tónleikana í iðnó, en það var uppselt. Helvítis stælar í þessu fólki alltaf hreint.

Það er rosalega pirrandi að kunna á fiðlu og vera mikil leiklistarmanneskja. Ekki sniðugt. Allir leikstjórar sem haf stýrt mér einhverntíman vilja alltaf endilega að ég spili á fiðluna mína. Ég fæ voða sjaldan að leika eitthvað núna í den gade teater. Ég á bara að spila á mín hljóðfæri. Oftast fiðlan, svo var það melódíkan 17. og svo á morgun Ukuleleð. Ekki kósí.
Ótrúlegt hvað slúður berst fljótt um.

Úúúú, ég fékk fullt af radiohead diskum í láni í gær, bootlegar og smáskífur sem ég á ekki... Svo fæ ég laun bráðum... Kaupa kaupa kaupa.... mmmm ég hlakka til. Fullt af nýjum diskum... Þetta er engin smá fíkn skal ég segja ykkur.

Jæja - - - plata dagsins: Radiohead - OK Computer
You watch your feet for cracks in the pavement


18.6.03
 
Ég fékk bréf í morgun frá Tónlistarskólanum í Reykjavík. Þar stóð: Þú hefur staðist inntökupróf í tónsmíðadeild tónlistarskólans í Reykjavík og bjóðum þig velkominn í skólan.og einnig: Niðurstöður úr stöðuprófi - Tónheyrn II: Staðist. Jibbí jei!!

Í gær hitti ég annan radiohead fanatik í götuleikhús partíi. Þetta var einstaklega skemmtileg upplifun þar sem það er mjög sjaldgæft að geta talað við einhvern um lög eins og Follow Me Around, Big Boots, gömlu útgáfurnar af No Surprises og Paranoid Android og öll On A Friday lögin... Maðurinn á reyndar mikið mikið meira af smáskífum en ég (þar á meðal Just 12" með 2 stúdíóútgáfum af Killer Cars - Interesting...) þannig að ég hef keppinaut.

3 sinnum í þessarri viku hef ég lent í umræðum um barnaefnis nostalgíu... Og ég hóf aldrei samtölin. Þar sem ég bjó í Bretlandseyjum öll barnaskóla árin mín er svo mikið af dóti sem ég kannst bara ekkert við. Þetta er hrikalega leiðinlegt. En ég get talað um Bangsa Bestaskinn, Línuna, Klaufabárðana og svona... en þessi umræða hefur komið svo hrikalega oft upp... Er þetta kannski vegna þess að þetta er eina sameiginlega minning fólks sem þekkist lítið eða er þetta bara algjör tilviljun.

Ég kem Hail To The Thief plakatinu mínu ekki fyrir í herberginu mínu... Það hangir frammi á gangi, þar sem ég fæ ekki að njóta þess jafn mikið =(

HEI!!! plata dagsins: The Velvet Underground - The Velvet Underground
All the people look good in the dark


17.6.03
 
Gleðilega þjóðhátíð góðu landsmenn!! Hæ hó jibbí jei og fleiri skemmtilegar upphrópanir því í dag er kominn 17. júní og enginn nennir að semja neitt barnavænna og skemmtilegra lag í tilefni þess að lýðveldi þjóðarinnar er orðin svona helvíti gömul! Já bara 59 ár síðan danir hættu að ráða okkar... ömm.... lýði.
Já.
Þar sem ég er að vinna sem leikari borgarinnar tók ég auðvitað þátt í hátíðarhöldunum í sveittu þjóðhátíðarrigninguni.
Ég dansaði og hljóp um og söng í risastórum fitu búning gerður aðeins úr svampi (eða skúmi eins og sumir kjósa að kalla það) og svona skemmtilegu sokkabuxna efni svo að við litum út fyrir að vera nakin. Svo vorum við með Heklu, Gullfoss og Geysi í bandi og gengum við með þessi stórvirki niður laugaveginn og fyrir framan MR voru mikil og glæsileg eldgos (þökk sé konfetti-vélinni sem við fengum í láni frá geðveikt merkilegum kalli) og fjallkonan.is söng af innlifun.
Já þetta var nú asskoti gaman, sérstaklega þar sem að þessir búningar voru alveg hrikalega heitir og andaði alls ekki þannig að það var alveg rosalega sveitt og feitt fólk þarna fyrir utan MR.
Vegna þess að við vorum sveitt í dag fáum við frí á morgun Hurrah!! (borið fram með sænskum hreimi - Hurro!) þá má maður jafna út þreytu sína með hrikalega löngum svefni. MMM já.

Ég er alls ekki sáttur við niðurstöðuna á könnuninni...

Pablo Honey 0%
The Bends 0%
OK Computer 38%
Kid A 23%
Amnesiac 0%
Hail To The Thief 0%
Baby, One More Time 38%

ÉG ÆTLA EKKI AÐ TAKA NIÐUR ÞESSA KÖNNUN EF AÐ BRITNEY SPEARS PLATA NÆR AÐ JAFNA 1. SÆTIÐ.

Ég hef ekki hlustað á neina tónlist í dag (fyrir utan þessa nokkra tóna úr Grís söngleiknum með Jónsa og Birgittu *hroll*)
en mig langar núna rosalega að hlusta á þessa frábæru plötu sem nefnist einfaldlega
Yeah Yeah Yeahs - Yeah Yeah Yeahs EP (Bang!/Master)
As a fuck son you sucked!


16.6.03
 
Ég er einn af þeim fáum sem er að vinna á morgun, 17. júní. Þannig að núna er ég heima í tölvunni eins og einhver counterstrike blumbi. Ég ætti að vera á leiðinni á Jagúar tónleikana í þjóðleikhúskjallaranum, en nei ég þarf að sofa vel því ég þarf að vera heví hress í fyrró. Má ekki vera ælandi á krakkanna í skrúðgöngunni, nei, nei. Það væri bara dónaskapur.
Talandi um þjóðleikhúskjallaran, þá bárust mér þessi hrikalegu tíðindi um að Gaur fengju ekki að spila þar 27. júní eins og var áætlað...
Þetta myndi hafa verið svona rosa sniðugt og kannski komið okkur á kortið í borginni... fólkið farið að raula jazzpop helvíti lengi eins og sumir... Jæja, ef einhver vill fá Hina snoppufríða pilta í hljómsveitinni Gaur til að leika á hljóðfærin sín einhverstaðar endilega drop mí a læn (spoonmeister85@hotmail.com)... við erum geðveikt sneddý.

Ég fékk sona sniðugt SMS í dag með engu nafni né númeri, sent úr vit.is þjónustunni. Hrikalega pirrandi... ef þú (lesandi) varst að þessu, endilega láttu mig vita hver þú ert, annars mun mér líða nokkuð óþægilega...

Já rosalega flott skrúðganaga á morgun við lots of fat pípúl end ðe greitest lendmarks of æslend!! Gos í Heklu á morgun kl. 14:00 og 16:00 fyrir utan MR!!! Glæsileg balletsýning og hefðbundnir dansar fyrir landann!!! Bí ðer or bí træangjúlar.

Já, Plata dagsins er þessi
Put your troubles in a little pile, and I will sort them out for you.


15.6.03
 
En hvað veðrið hefur verið gott undanfarið, mér líður eins og ég sé í einhverju sólarlandi....
Ég upplifði einhverja vandræðalegustu stund ævi minnar í dag. Ég var nebblega í vinnunni og það var ekki neinn klósettpappír. Ég varð að ganga í næsta hús og biðja um að fá lánaða klósettpappírsrúllu.... Helvíti gaman af þessu.
Í gær fékk ég kjúkling í kvöldmatinn. Þetta var óvenjulegt þar sem að grænmetisæta.is bauð upp á það. Henni Huldu finnst ekki gaman að drepa dýrin og kom það virkilega á óvart að hún hafði fest sín kaup á slátrað hænsni. Já svona kemur veröldin manni sífellt á óvart.
Í gær voru vinir frænku minnar að stökkva af bílskúrsþakinu heima hjá mér og eyðilögðu garðinn nokkuð.
Ég er með ritstíflu eða eikkað.

Ég á geiðveikt stórt Hail To The Thief plakat núna!! jeij!!
.... og Ramones bol!!
Plötur síðustu tveggja daga....
Joni Mitchell - Hits
They took all the trees and put them in a tree museum
Beck - Odelay
„Who are you?“ „I'm the enchanted wizard of rythm“

Plata vikunnar:
Radiohead - Hail To The Thief
She ate me up for breakfast


14.6.03
 
Já. Nei. Kannski. Á morgun. Í gær. Loksins. Núna. Aldrei.

Í dag átti Hulda Björk ammli en hún vildi ekkert koma að hitta okkur. Þið getið lesið allt um mökin hennar á bloggsíðunni hennar.

Í staðinn var ég á kaffi kúltúra þar sem er geðveikt mikið af spænskum og ítölskum blumbum.
Svo týndi ég vinkonum mínum. Merkilegt hvað maður dettur mikið úr stemningu þegar maður er pirraður. Jæja. Sirkús er ágætis staður. Soldið troðinn. Maður fær so mikið adrenalínkast er maður fer inn á sona staði sem maður má ekkert fara inn á. Svo leiðist manni svo hrikalega því maður þekkir ekkert fólkið sem er þarna inni... I am too young, and they are too old Já já já já já. Ekkert að segja. Götuleikhúsið verður með geðveikt flott sjó 17. júní. Fylgist með í skrúðgöngunni og fyrir utan MR eftirá.............................................................................................................................................................................

Rosalega sniðug stelpa frá Akureyri... einhver mesti MH-ingur sem ég hef kynnst (en aumingja stelpan er í MA) en allavega hún bloggar hérna. Helvíti kósý ha? Jónas.

Plata dagsins í gær:
Blur - Modern Life Is Rubbish
Oh, that sunday sleep
í dag: The Streets - Original Pirate Material
Do you understand or do you need an interpreter

Plata vikunnar
Radiohead - Hail To The Thief
Maybe you'll be president - but know right from wrong

3:24 f.h.
11.6.03
 
Mamma og Pabbi fóru áðan upp í sumarbústað með 7 átta ára stelpur og 1 fimm ára strák. Ég segi bara gangi þeim vel.

Í dag byrjuðu þrír nýjir krakkar í götuleikhúsinu og er það rosalega góð pæling, mikið skemmtilegra og alveg nóg að gera.

Ég komst að því í dag að það er mjög mikilvægt að geta verið karlmaður í nokkurn tíma. Rækta karlmennsku sína soldið. Ég hef alltaf verið roslaega mikið í kringum stelpur og á ég aðalega vinkonur en undanfarið hef ég fundið fyrir þörf til að vera soldið með strákum og gera sona karlmennskulega hluti (eins og að bora og saga og mála) - ég er ekki að segja að sona hlutir séu bara fyrir karlmenn, ekki koma með einhver feminísk komment á mig, ég ber mikla virðingu fyrir konum. Leyfa testesteróninu að njóta sín í smástund. Æm a men!! Ég huxa að þetta sé sona hjá stelpum sem eru mjög mikið með strákum þær þurfa örruglega á smá estrógen bústi að halda. Þetta er hrikalega hollt og ég ætla núna að fara að bóna bílinn reglulega eða eitthvað álíka tilgangslaust og karlrembulegt til að minna mig á kynið mitt. Það er bara svo helvíti gaman að þessu stundum... en ég meika samt ekki að vera að einhverju sona lengi í einu, það tæki mig örrugglega tvö ár að búa til skáp....
Jæja þrátt fyrir karlmennskuna í dag er plata dagsins ekki nýja Metallica platan, heldur:
Björk - Post
Sounds go through muscles, these abstract, wordless, move-ments
en plata vikunnar er ennþá:
Radiohead - Hail To The Thief
The raindrops...


10.6.03
 
Pabbi ætlar núna að blogga....

Hann er núna hættur við.

Hail To The Thief er frábær plata og er hún plata vikunnar (ath. ekki dagsins) ekki nógu heilsteypt en þetta eru einhver beztu radiohead lög sem ég hef á ævinni kynnst og þá sérstaklega We Suck Young Blood, Sail To The Moon og Wolf At The Door.... Svo er special edition pakkningin svo helvíti flott, svona eins og landakort. Bara helvíti Jónas.

Nekt.

Nekt er miskilinn hlutur.
Ég tók eftir því hvað margir stoppuðu við myndina á austurvelli, af núdistunum... Fólkið stoppaði heldur ekkert smá lengi, hinar myndirnar voru alveg jafn fallegar, litasamsetningin og listinn er mjög lík í öllum myndunum, en afhverju þurfti fólkið að horfa á geirvörtur og typpi svona helvíti lengi í staðinn fyrir alla litlu hlutina sem fórust á hvirfilvinda myndinni og tréin og akrarnir og svona.... upp úr þessu spratt mjög merkileg samræða milli okkar Írisar (Iris the Virus) um hversu miskilin nektin er. Fólk stoppar svo rosalega oft við myndir af nöktu fólki þegar það skoðar tímarit og svona og finnst það ægilega merkilegt. Þegar ég skoða tímarit vil ég sjá litadýrð, fyndnar sögur, góðar pælingar og list, en ekki endilega nekt... þótt að nekt sé flott frá listrænu sjónarhorni þá má ekki ofnota hana, pervertar skapast, klámbúllur og þessi menning er orðin frekar óvænleg... fyrir nokkrum öldum var nekt notuð í list og bókmenntum til að gera ástríðuþrungnar senur/myndir áhrifameiri, nekt er mikill hluti af ást og það verður að varðveita hana svolítið. Hún er ekki dónaleg, ekki sjokkerandi, við erum öll með líkama og það er ekkert dónalegt við hann nema þegar hann er misttúlkaður, misnotaður. Niður með klám, upp með rómantík!!!!

Frænka mín hún Steinunn fremur blogg hér

Plata vikunnar:
Radiohead - Hail To The Thief
Don't question my authority or put me in a box!


8.6.03
 
Í dag er 8. Júní. Í dag er Radiohead dagur!! Hail To The Thief verður seld í verslun Skífunnar að Laugavegi 26 eftir 5. klst. og 14. mín. þegar þetta er skrifað. Þetta verður glæsilegt. Búin að hlusta á The Bends og OK Computer og bestu B-hliðarnar (sem ég á) svo eru bara Kid A, Amnesiac og heimildarmyndin Meeting People Is Easy eftir og þá verð ég kominn í réttan gír.... Spennó!!!
Tvær af mínum helstu vinkonum eru byrjaðar að blogga. Þessar stúlkur heita Hulda Björk og Helga KRONic og líta þessi tvö blogg bara helvíti vel út og er ég orðinn hrikalega spenntur fyrir að lesa þetta í framtíðinni. Hamingjuóskir og gangi ykkur báðum betur en flestum.
Verzlingar eru merkilegir. Ég staldraði aðeins við í ammælisveislu Erlu og Sigríðar Sunnu í breiðholti í gærkveldi og í húsinu við hliðina á var verzló teiti. Ein stúlkukindin úr viðskiptamenntaskólanum stórmerka ákvað að henni fyndist örrugglega skemmtilegra að plebbast í MH- og MR-ingum í næsta húsi. Hún talaði allt of hátt og sagði pirrandi hluti eins og „Sko, þegar maður er í versló þarf maður ekki nema að fara yfir eina götu, labba svona 100 metra, fara niður rúllustiga og þá er maður bara kominn í sautján.“ og „Kron er ömurleg búð, ég versla bara í sautján“ og sagði hún þetta við hana Helgu sem, eins og margir vita vinnur í skóversluninni glæsilegu, Kron... Svo kom hápunkturinn...
Vera: „Hver skeit eiginlega í hausinn á þér?!“
Verzlóbjulla: „VERZLÓ!!!!“
Og þá var mikið hlegið.

Mér finnst skórnir í Kron alveg yndislegir og hef ég verið stoltastur af þeim skóm sem ég hef keypt þar.

Ég fékk brjóst í gær. Áritað og allt saman

Plötur dagsins: Radiohead - The Bends
Immerse your soul in love
Radiohead - OK Computer
Bring down the government, they don't speak for us
Radiohead - Kid A
Here I'm allowed, everything all of the time
Radiohead - Amnesiac
While you make pretty speeches, I'm being cut to shreds



P.S. það er comment system á leiðinni, fleiri linkar og nýr hamstur, um leið og template dótið virkar aftur.


7.6.03
 
Ég er í fríi. Algeru fríi. Engum skyldum að gegna. Ég hafði ekki séð tölvuna mína í nokkra daga þar til núna. Ég hef verið upptekinn við að vinna og að sinna félagsskyldum og-störfum (hljómfræði, hljómsveit, LFMH og vinátta) Ég eyddi síustu tveim klukkustundum í að lesa fregnir sambloggara og radiohead manna. Það var ágætt. Hin alræmda hljómsveit Gaur skipuð þeim Helga Möllet - Mækrófón sjóvenist, Halla Dúndurmosa - gítargeit, Pétri Beikon - kíbordist extrodiner, Skúla Keatis - Fönkmeister og Frikka Möntjís - Egils Gull gaur og slagverksmeistara, hélt sína fyrstu tónleika í gær í húsi Ragnheiðar Sturlu í tilefni tvítugsafmæli hennar og voru tónleikarnir gjöf. Þar lék sveitin frumsamda slagara eins og My Wallet Is In My Jacket, Jazzpop og Hvar er sími? en einnig önnur þekkt lög eins og Outtathaway, Lucy In The Sky With Diamonds, There's No Home For You Here, Parklife, Blister In The Sun, o.fl, o.fl. Fygist endilega með þessarri stórmerkusveit í nánustu framtíð þar sem tónleikum mun væntanlega fjölga og frumsömdu efni einnig. Þess má til gamans geta að u.þ.b. 5-7 lög eru í vinnslu og eru þau öll mjög spennandi.

Götuleikhúsið er frábært. Loksins kann ég að sauma. Mig hefur lengi langað til að læra grunnstöðuatriðin í saumum og sniðun og núna hef ég aflað mér þessari dýrindis kunnáttu. Núna fer bráðum í gang hönnunar fyrirtæki okkar Helgu KRONika (sem er með bloggsíðu í vinnslu í öjeblikket - meira um það seinna) og verður það bjútifúl. Ég hef einnig lært að setja í mig linsur, að lesa úr augum fólks, einfaldar leiðir til að afla sér hluti og allskonar frábæra hluti sem nýtast án efa í framtíðinni, í þessarri einu viku sem ég hef verið aða starfa sem götuleikari. Svo hefur líka skapast svo hrikalega góður og jákvæður andi þarna meðal okkar, og í tilefni þess verður hérfrá fastur tengill á hana Mörtu Sigríði

Ég er í baðslopp.

Í kvöld er svo lokapartí LFMH þessa tímabils. Verða þar stjórnarskipti. Það verður í hlíðunum. Svo er ein betri vinkona mín að halda upp á afmæli sitt. Það verður í breiðholti. Það verður spennandi að sjá hvernig ég mun geta verið á báðum stöðum þar sem fjölskyldubíllin er á suðurlandi og ég er heltekin fátækt þar sem ég verð að spara minn síðasta pening til að kaupa nýjasta Radiohead gripinn - Hail To The Thief sem kemur út að miðnætti aðfaranótt mánudags n.k. Djöfull hlakka ég til. Síðasta mánuð hef ég farið í gegnum safnið mitt, aðeins fjögur lög á dag, ekki meira (að undanskildri There, There smáskífu) og kláraði áðan. Á morgun fer ég svo í gegnum heilu plöturnar, allavega síðustu þrjár. Rosalega væri gaman að sjá þá læv. Getur ekki einhver plöggað þá í Íslandsferð? Það væri allt of gott. En ef það myndi gerast yrði ég ábyggilega veikur og lagður inn á spítala daginn sem þeir spila, eða ég týni miðanum. Týpískt.

Plötur síðustu daga:
White Stripes - Elephant
It may well be that I'm your third man, girl, but it's a fact that I'm the seventh son
Massive Attack - Mezzanine
You are my angel, come from way above, to bring me love
og í dag....
Gaur - óútgefin plata
My wallet is in my jacket, my jacket is in my car, my car is in my garage so it musn't be very far.


3.6.03
 
Ég hata rigningu. Ég þoli ekki þegar maður er úti, í sínum sumarfötum - því að það hefði verið ágætlega hlýtt fyrr um daginn og maður er ekki að búast við dembu og svo fellur á yfir hausinn á manni ---- og maður er ekki á leið heim til sín, og maður getur ekki fengið handklæði og hárið manns er allt slímugt og ógeðslegt og límt við hausinn á manni. Ég hata svona lagað.
Ég tók þá stórmerku ákvörðun að fara til danmerkur í byrjun ágúst. Þetta á eftir að vera býsna merkilegt þar sem ég hef aldrei komið til danaveldis - og ég tel mig ekki fullgildan Íslending fyrr en ég hef farið í Tívolí og gengið strikið. Þetta verur blast.
Götuleikhúsið er heví góð pæling.... Ef þið eruð á vappi um miðborgina í sumar (á virkum degi milli 9-5/6) endilega hafið augun opin fyrir stórmerkum uppákomum okkar sem verða án efa hrikalega skemmtilegar.....

Plata dagsins: (í gær) The Kills - Keep On Your Mean Side
Get my name stitched on your lips so you won't get hitched
og (í dag): Goldfrapp - Black Cherry


1.6.03
 
Ef einhver kann á kommentakerfi/veit hvar á að finna endilega sendið mér tölvupóst (spoonmeister85@hotmail.com)


 
Vikan að klárast, alvöru vinnan byrjar á morgun (götuleikhúsið =) ) og allt í góðum fíling. Ég afsaka síðasta pistil, allskonar stafsetningarvillur og óskipulag - en ég ætla ekki að breyta honum.... Sem minnir mig... Eitt besta kórpartí fyrr og síðar var haldið á föstudaginn (að mínu mati allavega) Jónas búinn að breyta bílskúrnum í allsherjar discotheque og allir í góðum fíling - skemmtiatriðin voru liggur við engin - allir of drukknir til að skipuleggja - nema bassarnir - en allir misstu af því atriði svo það var allt í lagi. Því það var slæmt. En þetta var allt saman heví góð pæling og Justin Timberlake fan club Kórs Menntaskólans við Hamrahlíð var stofnaður. Það verður spennandi. Allir meðlimir munu hittast sjöunda hvers mánuðs og hlusta á Justified í gegn. Héví góð pæling. Laugardagsmorguninn vaknaði ég með gríðarlega þynnku og hélt með honum Þorsteini Kára á gráa kötinn Þar sem við fengum okkur Trukk sem inniheldur 2 spæld egg, 4 beikon sneiðar, hálfan disk af steiktum kartöfluteningum, tómatamauk, ristaða brauðsneið og 3 amerískar pönnukökur með sírópi. Fljótlega eftirá fór ég í siglingu. Það var ekkert neitt voða sniðugt, þar sem ég er hrikalega sjóveik manneskja. Og nýbúinn að borða tonn af mat. Og nokkuð þunnur. Ðat úosönt fönn.
Ein betri vinkona mín, hún Aldís er að fara til Danmerkur í sumar og var haldið kveðjuteiti fyrir hana, en vegna þess að hún er að fara ætla ég að vitna hér í Garth Algar.... It's like... people only do things because they get paid.... And... that's just, really sad. Þín verður saknað Aldís mín.

Ég hef ákveðið að taka áskorun Atla og hef ritað stóran hluta plötu(eða geisladiska)safns míns og það má finna hér

En... það er alltaf gaman að kaupa sér hljómplötur, en plötur dagsins í dag og í gær eru þrjár....
The Flaming Lips - The Soft Bulletin
Muse - Origin of Symmetry
You've seen too much, too young, soulless is everywhere
og Sonic Youth - Dirty
Can I have some money, I'm going to the store, Can I have some money, I can't tell you what it's for