be[¡]kon

28.9.03
 
Ég villtist inn í 10-11 í gærkveldi þar sem að afar skemmtilegur afgreiðslumaður tók á móti mér og Kobba. Hann vildi endilega að við smökkuðum öll Jelly Belly brögðin sem voru þarna í boði og djöfull er þetta ógeðslega fökked öpp nammi. Hver vill borða hlaup sem er alveg eins og bragðið og popp með smjöri og þegar ég segi alveg eins þá meina ég aaaalveg eins. Ótrúleg bragðfræði í gangi þarna. Þá ekki að vera poppbragð á nammi. Eða ristaðbrauð. Eða Café Latte. Eða Jalapeno. Ojj bara. Svo í BNA er örrugglega hægt að fá kartöflubragð eða bjórbragð. Gubbbragð. Ef ég vil fá ristaðbrauð eða bjór þá vil ég ristaðbrauð eða bjór, ekki nammibaun.

Plötur:
Lamb - Lamb
I could wrap you up in cotton wool.
The Kills - Keep On Your Mean Side
Get my name stiched on your lips.
Autechre - Confield


27.9.03
 
Getur einhver plöggað mér nýja Strokes disknum eða nýja Belle & Sebastian?

Svo er svíþjóð víst öööömurlegt land.


 
Sjitt. Ég hef ekkert tímaskyn lengur. Hvaða dagur er í dag?
Er að hlusta á Mars Volta plötuna í augnablikinu og verð að segja að hún er bara ansi hreint mögnuð. Rosalega löng lög á henni og ég vera fíla þetta.
Annars rakst ég á þetta áðan. Ég hef bara ekki skemmt mér jafn vel mjög lengi. Hversu margar bíómyndir og sápuóperur getur ein manneskja horft á eiginlega?
Það var víst einhver kúbversk sveit að spila í Hátíðarsal MH í gær, en ég var sofandi niðri í NKJ og engum datt í hug að vekja mig og heyra þessa ljúfu tóna. Djöfull var ég bitur. Annars var heví stemning í NKJ í gær. Það var sona vinadagur þar sem allir í kjelleren bökuðu/keyptu gotterí og var því raðað á borð og allir sátu á öðrum stöðum en venjulega svo að samskipti við aðra Texasbúa gæti átt sér stað og allir gætu orðið vinir. Síðan voru blöðrur útum allt líka. Djöst læk kristmes (- hey kristsmessa! - vá aldrei fattað þetta áður!) Þetta er mikill sigur fyrir MH-andann og vona ég innilega að þetta hugarfóstur Diðriks og Signýjar deyji ekki og verði að hefð, sjálfsagður hlutur eftir sona 2-3 ár.
Mmm hlakka til jólanna. Eða ekki. Jólin eru óþarfa tímaeyðsla. Aðfangadagur er vissulega kósí en allt hitt í kringum þessi Jól er útí hött. Mig vantar samt jólavinnu... Getur einhver boðið mér vinnu plís?
Mig langar til Tokyo.

Gúdsjitt plötur:
The Mars Volta - De-loused in the Comatorium
Mínus - Halldór Laxness
Queen Adreena - Drink Me


20.9.03
 
Bloggíbloggblogg...
Sagði maðurinn þegar ég spurði hvað klukkan væri. En núna er hún hálf fimm og jeg er sona tiltölulega nýkominn úr sveittri stórfélagsferð þar sem allt gekk út á að ganga af göflunum og henda tennisbolta í gegnum rúðu með gati í, sona einsog hjá gjaldkerum í bönkum. Ég huxa að myndir verða settar inná heilabu.net innan skamms, en þangað til megið þið skoða þetta.

Við erum komin með busa í ráðið okkar. Hún heitir Júlía og er fróðari um tónlist en jeg. Það finnst mér svalt.

Mér fannst mjög fyndinn samanburðurinn á VÍ og MH í Daglegu lífi morgunblaðsins. Fólk gerir sér kannski ekki grein fyrir því en þessi staðalímynd skólanna tveggja er rosalega mikið til staðar. Nemendurnir sögðu svo akkúrat rétta hluti um hvort annað sem voru síðan staðfestir af gagnstæðu nemendunum. Mér fyndist það voða gaman ef það væri ennþá sona gamnistríð milli þessarra skóla vegna stjórnmálaskoðanna og svona... það myndi bara skapast svo helvíti sterk stemning milli nemenda og svona. Reyndar verður Verzlóball í MH á næstunni samkvæmt áreiðanlegu slúðri en Verzló ætlar víst ekki að taka þátt og halda sitt MH-ball. Það er svoldið tilgangslaust að gera grín af einhverjum einum skóla ef hinn vill ekki svara. Ööööömurlegt. Ojjj bara.

Góðar plötur:
Sonic Youth - Dirty
I love you, I love you, I love you, what's your name?
The Blood Brothers - Burn, Piano Island, Burn
Death inverts the red from romance
White Stripes - De Stijl
A boy's best friend is his mother or whatever as become his pet
The Raveonettes - Chain Gang of Love
Shellac - 1000 Hurts


12.9.03
 
Hérna já... Ég er í svona léttu spennufalli núna en þegar ég segi létt þá meina ég geiðveikt miklu. Ég hef verið undir miklu miklu álagi og var veikur líka og þegar allt það er búið líður manni rosarosa vel og fer að hlusta á Radiohead og fer í eikkað trans. Ég ætla að fara í sumarbústað um helgina og reyna að læra. É er strax komin afturúr í stærðfræði og ég skil þessa þjóðhagfræði bara alls ekkert. Ég verð að taka mér tíma í óbyggðinni og heyra góða tóna meðan ég gerist fróðari.

Strax eru þrír busar búnir að sækja um í LFMH á aðeins þrem dögum. Ótrúlegt. Það voru líka 109 manns sem skráðu sig í LFMH og verð ég að segja að það er bara met dauðans. Ég vona að þetta fólk haldi áfram annars verður tilbreytingarlaust í vetur. En þessir busar sem sóttu um er allt fáránlega gott fólk. Það verður erfitt að velja sona á milli, en ég veit nú hver fær mitt atkvæði en það er einn svalasti busi sem ég hef rekið augun á í lengri tíma, að undanskildri 1. manneskju (eða síðan ég var busi).

Svo finnst mér öööömurlegt að vera veikur. Sérstaklega á miklum annartímum, maður er svo fús að hjálpa til en maður gefst upp eftir fimm mínútur og allir halda að maður sé eikkað gerpi sem lætur alla gera hluti fyrir sig og manni líður svooo öööömurlega og maður fer heim og nagar bein.

Svo langar mig að segja að Helga og Erla eru geiðveikt góðar manneskjur og auðvitað hann Tommi minn Jórvík...

Plata dagsins:
Radiohead - OK Computer
Hey man, slow down. Idiot, slow down


 
Oh my, oh my, oh my! Hvað er að gerast krakkar? ég bara spyr? Are you all from Mexico or something huh? With your Tequila and Crack Pipes eh? And Carlito? Where have you been man? Já nóg fyrir alla... Sko. Ég er núna soldið hífaður og auðvitað fann ég mér tíma til að blogga. Það er ekki á hverjum degi sem maður gefur sér tíma til að blogga. En nú er tíminn. Milli þess að kasta skóm og setja upp stillasa þá hef ég skemmt mér eins og fimm ára krakki í barnaammæli þar sem kókið rennur úr töppunum. Í síðustu daga hefur þetta komið fyrir: Ég spilaði á tónleikum í norðurkjallara í fyrsta sinn, ég hélt glæsilegt partí. ég bjó til busasjóv, ég (og fleiri) myrkvaði allan salin í MH með því að setja álpappír í alla gluggana þar, ég fékk að busa, ég fór á brjálaðasta MH ball nokkurn tíman haldið, end ðen söm, hóf leiklistarnámskeið, skoðað busana vandlega (og djöfull líst mér á þetta fólk!) og ég held að upptlaningin er búin. Ég bara get ekki haft gaman af lífinu nema það sé nóg að gera hjá mér.
Ég bjóst við að busadagurinn yrði ömurlegur. Bandarískt þema. Á 11. september. En svo var ekki. Maður gleymdi algerlega hörmungunum í New York og þetta stórfélagslið er bara býsna hugmyndaríkt. Ég var að búast við einhverjum armí dúddum að hlaupa um allan skóla með gerfi M-16 og einhverjar ömurlegar klappstýruæfingar. En þetta var svo sannarlega ár niðurlægingarinnar. Óðríkur á skilið gott hrós fyrir promið sitt, Skemmtiráð fær gott klapp á bakið fyrir Idol keppnina og stórt og mikið lófatak fyrir Busaballið, Myndbandaráð fær klapp fyrir fínar myndatökur... Ég veit ekki hvað ég á að segja um innihaldið, of gróft eða bara fyndið... spurning? Íþróttafélag fær góðar viðtökur fyrir að vera fyndin. Fréttapési slær alltaf í gegn, Nemó fólk, þið hélduð þessu vel saman, Lagnó... Tja, jú jú það varð einhver að mála krakkana, Gettu Betur fá sona ahem*. Vefnefndin var heví góð á því og náttlega Málfundafélagið fylgir því með góða tollgæslu, Listafélag: Þið voruð alltof gróf. Súrmatur er alveg í lagi en köld innyfli! Veistu nei. Og LFMH fær náttlega brjálað lófatak fyrir mínímalístískasta og krípíasta busaatriði sem hefur sést síðustu þrjú árin....
*Sko, þið máttuð alveg leggja smá metnað og vera aðeins með fólkinu... Daði fær samt exkjús

Síðustu mánuðir og eiginlega bara ár hafa verið svooo mögnuð að ég og gott fólk höfum ákveðið að skrifa sona Íslendinga sögu um okkar menntaskólagöngu. Þetta er alveg ægilega skemmtilegur ritháttur og það er bara mjög erfitt að segja frá dramatískum atburðum og fylleríum á annan hátt án þess að vera leiðinlegur.

En plöturnar þessa vikuna eru ekki nema tvær en það komst varla annað í spilarann en þær eru dammdararammdammdammdamm!
The Flaming Lips - Yoshimi Battles The Pink Robots
og
Kings of Leon - Youth and Young Manhood


4.9.03
 
Þegar ég var í 8. bekk fór ég að stunda þann einkennilega sið að safna blaðinu "Myndbönd mánaðarins" Það er reyndar hálf asnalegt, því að þetta blað er alveg ókeypis og mun ekki vera neins virði þegar það er orðið gamalt. hugsa ég. En mér þykir alveg óskaplega vænt um blöðin mín (þrátt fyrir lítinn lestur) og ætla að halda þessu áfram svo lengi og blaðið er gefið út. Þetta safn er orðið alveg gríðarstórt núna en síðasta árið hef ég bara alls ekki verið nógu duglegur en ég bið ykkur lesendur að aðstoða mig. Mig vantar blöð frá Maí mánuði, Júlí mánuði og Ágúst mánuði 2003 og líka Apríl 2001. Ef einhver á þessi blöð á heimili sínu væri það mér mjög kært að fá þessi eintök í hendurnar. Takk fyrir.
Vó, ðis is vei smoler ðan a normal sæsd blogg!

Plötur:
Radio 4 - Gotham
Just dance through the underground!
The Blood Brothers - Burn, Piano Island, Burn!
I packaged my heart and fed-ex'd it to the octopus queen.
Autechre - Confield
............................................................

Mig Langar í:
Diskin arna með Kings of Leon
gott par af cowboy-stövler
einlitt gult bindi
ömm já...





1.9.03
 
Svo er það þannig að ég er kominn verulega í gang. Þar sem ég er í stjörnumerki ljónsins - "Leo" þá líður mér talsvert illa ef það er ekki nóg á döfinni hjá mér. Næstu vikunna er ég upptekinn 24/7 og ætla samt að reyna að troða lærdómi og félagslífi inn í stundarskrá tilverunnar. Þó er ég hræddur um að líkami minn og sál þoli ekki þessa pressu... Fyrir um tvem árum síðan var ég einmitt líka á fullu í starfsemum lífsins en þá krassaði minn mannlegi harðidiskur og ég hætti öllum starfsemum (fyrir utan að stunda leiklist) og gerði fátt. Einn daginn fékk ég bara blakkát og fékk væg geðköst og þar af leiðandi varð stundaskráin mín tóm. Aðeins leiklist átti forgang en það var einmitt ekkert annað í forgangsröðinni. Hugsanlega hefur þetta verið bara lokapróf gelgjuskeiðsins, að vera voða svartsýnn á öllu og gera bara ekki neitt? En svona eftir frumsýningu á leikritinu, Rótlaus fór ég að sjá hlutina öðruvísi og tilveran hefur verið á uppleið alveg síðan og stundaskráin að verða þéttari og þéttari... Springur hún aftur eða er þetta bara sálrænt bensín? En þetta árið ætla ég að stunda eftirfarið:
Skólan - u.þ.b. 25 klst. í viku,
Tónsmíðanám - u.þ.b 15 stundir í viku,
MH kórin - u.þ.b. 4 klst. í viku, l
eiklist (námskeið og félagsstjórn) - u.þ.b. 10 klst. viku,
vinskap og skemmtun - u.þ.b. 10 klst. í viku,
svefn, u.þ.b - 45 klst í viku
og Gaur - u.þ.b. - 4-5 klst. í viku.
samtals eru þetta ca. 105 klst. í viku en það eru 168. klst. í viku, jújú þetta tekst! ég get meira að segja lært skynsamlega og bloggað. og borðað eitthvað inná milli. frábært. Takk fyrir að lesa. Ég met það mikils.
Ég fór áðan á setningu Tónlistarskólans í Reykjavík, mætti soldið seint og settist á aftasta bekk, við hliðina á Jónasi Sen sem kenndi mér einmitt á Píanó þegar ég var einmitt að þreyta lokaprófið mitt sem ég talaði um áðan en hann hafði enga þolinmæði í að kenna mér. Ég brosti nú til hans samt sem áður og hann horfir á mig og ég sá að augu hans sögðu "Ertu baktería, eða?" og svo hélt hann áfram að senda SMS. Merkilegt.

Í dag girnist ég...
Aðeins stærri geisladiska möppu. Eða kannski mjög litla? hmm...
Bifreið
Stóra dagbók/skipulagsbók
Svona Van's skó með breska mod merkinu.
Loftræstingu í herbergið mitt.

Plata dagsins:
Blur - The Great Escape
We like to sing along, though the words are wrong