be[¡]kon |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
div class="%20ut&%20yfir&%20inn&%20undir"
align="center" color="#FFFFFF"
[/table]
Archives Apríl 2008 Mars 2008 Febrúar 2008 Janúar 2008 Desember 2007 Nóvember 2007 Október 2007 September 2007 Ágúst 2007 Júlí 2007 Júní 2007 Maí 2007 Apríl 2007 Mars 2007 Febrúar 2007 Janúar 2007 Desember 2006 Nóvember 2006 Október 2006 September 2006 Ágúst 2006 Júlí 2006 Júní 2006 Maí 2006 Apríl 2006 Mars 2006 Febrúar 2006 Janúar 2006 Desember 2005 Nóvember 2005 Október 2005 September 2005 Ágúst 2005 Júlí 2005 Júní 2005 Maí 2005 Apríl 2005 Mars 2005 Febrúar 2005 Janúar 2005 Desember 2004 Nóvember 2004 Október 2004 September 2004 Agúst 2004 Júlí 2004 Júní 2004 Maí 2004 Apríl 2004 Mars 2004 Febrúar 2004 Janúar 2004 Desember 2003 Nóvember 2003 Október 2003 September 2003 Ágúst 2003 Júlí 2003 Júní 2003 Maí 2003 |
31.12.07
Top 20 danslög!
Allt að verða vitlaust! Partí mix f. kvöldið fylgir! 20. Martin Landsky - Let Me Dance (Sebo K. Remix) 19. Luciano - Drunken Ballet 18. Sebbo - Beirut Boogie 17. Kieran Hebden & Steve Ried - People Be Happy (Audion Remix) 16. Ricardo Villalobos - Baila Sin Petit 15. Christian Burkhardt - Kreiskollaps (Frederico Molinari Remix) 14. Ito & Star - Sudoku Kid 13. Shlomi Aber - Freakside 12. Dusty Kid - Tsunamy 11. Lucio Aquilina - Feeling Plastik 10. Junior Boys - Like A Child (Carl Craig Remix) 9. Marc Houle - Techno Vocals 8. Samim - Heater 7. Dub Kult - Cluster Fuck 6. Solomon & Stimming - Feurvogel 5. Gaiser - Withdrawal 4. Audion - Noiser 3. Dusty Kid - Milk 2. Ricardo Villalobos - Primer Encuentro Latinoamericano 1. Luka & Lazo - Dust no. 4 (Barem Remix) ÁRSLISTAMIX (Lögin í þessarri röð: Drunken Ballet/Cluster Fuck/Withdrawal/Beirut Boogie/People Be Happy/Let Me Dance/Kreiskollaps/Dust no. 4/Noiser/Milk/Like A Child/Techno Vocals/Sudoku Kid/Baila Sin Petit/Heater/Freakside/Feeling Plastik/Tsunamy/Feurvogel/Primer Encuentro Latinoamericano) Gleðilegt nýtt ár! P.S. Það er eitthvað óhljóð á 21. mín, bölvað ves, en það líður hjá. 29.12.07
10. Skátar - Ghost of the Bollocks to Come
![]() Fyrsta plata Skáta sýnir að það er til band á Íslandi sem tekur sig ekki of alvarlega. Skemmtilega klikkuð plata sem fær of litla athygli a.m.m. 9. Mugison - Mugiboogie ![]() Mér fannst Mugison skemmtilegri á Lonley Mountain, en þetta er þó góð tilbreyting. Gæjinn hefur eyra fyrir góðum lögum. Flott sánd á þessu rokk dóti líka. 8. Seabear - The Ghost That Carried Us Away ![]() Alls ekki slæmt. Þó ég sé lítið fyrir bluegrass er þetta notaleg plata, og hefur svona mússík vantað á Íslandi. 7. Benny Crespo's Gang - Benny Crespo's Gang ![]() Ekki alveg 9.6 en samt er þetta eitthvað það besta sound sem ég hef heyrt á rokkplötu frá Íslandi. Góður kraftur og vonandi heldur sveitin áfram á góðri braut. 6. Múm - Go, Go, Smear the Poison Ivy ![]() Mér er vel við að Múm hafi fært sig úr þessu súper-krútti yfir í meiri popp-smíðar. Platan vinnur mikið á og skilur bros eftir á vörum. 5. Ólöf Arnalds - Við og við ![]() Mér var rosalega illa við þetta í byrjun árs, en það var bara vegna einhverja fordóma. Þetta er ótrúlega vel gerð plata og rödd Ólafar er stórkostleg 4. Sometime - Supercalifragilisticexpialidocious ![]() Ég held ég sé einn af fáum sem fílar þessa plötu svona rosalega vel. Ég held það sé vegna þess að fyrstu lögin á myspace voru alveg ömurleg. En Curver hefur gert ótrúlega hluti við sándið á þessarri plötu sem rennur í gegn eins og heitt kakó. 3. Mr. Silla & Mongoose - Foxbite ![]() Ég elska svo margt við þessa plötu, litlu blúslögin, noise-ið, röddin á Sillu og öll litlu smáatriðin, það eru þau sem gera þessa plötu stórkostlega. 2. Sprengjuhöllin - Tímarnir okkar ![]() Mikilvægasta plata ársins 2007. Ársins verður minnst með frösunum "Eigum við að ræða þetta?" og "Djöfull er ég sammála með þennan Bigga í Maus!" 1. Hjaltalín - Sleepdrunk Seasons ![]() Besta plata frá Íslandi síðan Ágætis byrjun. Sjáið bara til. 26.12.07
Top 15 lög ársins 2007 (bara erlend)
(þið getið halað þeim!) 15. The White Stripes - Conquest Það er bara svo gaman að hrópa: COOO-OOOO-OOON-QUUEEEEESSSST! Og þessi Zorro-brass... frábært. 14. Liars - Houseclouds Hverjum hefði dottið í hug að Liars gætu gert Beck lag? Og hvað þá betur en Beck sjálfur? Latir synthar og groovy trommur gera þetta lag að eitri. sweet. 13. Kanye West - Flashing Lights Þegar beatið laumast uppað manni í gegnum strengina - damn. Svo kemur þessi vocal: "Flashing (Flashing) Lights (Lights)" og það hljómar ALVEG EINS OG BLIKKANDI LJÓS! ÓTRÚLEGT! 12. Simian Mobile Disco - I Believe Þessir gæjar föttuðu hversu svalt það er að spila hraða teknó 45 snúninga plötu á 33 snúningum - svo bæta þeir við þessum æðislega vókal. snilld. 11. of Montreal - She's A Rejecter Þetta lag smátt og smátt smokraði sér innan í mig. Nú er ég oft á dag farinn að syngja: "There's the girl that left me bitter, want to pay some girl to just walk up to her and hit her.. BUT I CAN'T I CAN'T I CAN'T!!!" magnað. 10. Devendra Banhart - Seahorse Þetta hljómar eiginlega alveg eins og Golden Brown (nema ekki í 5/4) og Stairway to Heaven - en - kannski er það þessvegna sem þetta er svona skemmtilegt. Svo kemur einhver keðjusöngur þarna og maður getur bara ROCKað OUT þarna í lokin. feitt. 9. Arcade Fire - Ocean of Noise Ég kann að meta Chris Isaac soundið í þessu lagi, blautu trommurnar, þrumurnar, öldurnar og FOKKING BRASSIÐ Í LOKIN!! Sem dregur hljómsveitina uppúr þessu ógurlega hafi... dásamlegt. 8. Panda Bear - Take Pills Lítil lestarferð verður að rússíbana - en það verður aldrei ógurleg ferð! Við sjáum falleg blóm og dýr að leika sér á leiðinni og öllum líður vel! Allir eru glaðir! æðislegt! 7. Animal Collective - Fireworks Þetta lag hljómar svolítið eins og að vera niðri á brennu á gamlárskvöld, allir að tala saman, krakkar að hrópa, hundar að ýlfra, það er kalt úti og dimmt en eldurinn brennur þessvegna er hlýtt og flugeldarnir springa nánast allstaðar. Allir eru glaðir. yndislegt. 6. Kalabrese - Auf dem Hof Þetta er klárlega lag sem fleiri þurfa að heyra. Minimal fönk til að byrja með, en svo læðist blásarasveit upp að þér (vá hvað það er mikið af brassi á þessum lista í ár?!) og verður lagið að allsherjar fönkveislu undir lokin, best er þó þegar lagið fer yfir í moll á 7undu mínútu. geggjað. 5. Jens Lekman - A Postcard to Nina Ég hefði í raun geta valið hvaða lag sem er af Night Falls Over Kortedala en textinn í þessu lagi er bara svo æðislegur. Jens setur upp ótrúlega vandræðalega aðstöðu, með þessarri stelpu, Ninu, og pabba hennar. Einnig rímar hann ótrúlega skemmtilega en flottast er að hann skuli setja textan upp í formi bréfs. sturlun. 4. Battles - Atlas Úff. Ég heyrði þetta lag fyrst í útvarpinu, var þá búinn að heyra mikið lof um þessa plötu og hugsaði "ha? er þetta battles??" Fór heim og downloadaði plötunni og ég var ennþá meira spurningamerki. En ég hlustaði alltaf aftur og aftur, spurningamerkið hvarf smám saman og þetta varð að einni mest spiluðu plötu ársins hjá beikoninu. En þetta lag stóð alltaf uppúr - Gary Glitter trommurnar, stærðfræði rokk uppbyggingin og þessi sturlaði effekt á röddinni hjá Braxton. brjálað. 3. LCD Soundsystem - Someone Great Það segja margir að "All My Friends" sé betra. Mér finnst þetta svoleiðis miklu áhrifameira. Þessar synthstungur í byrjun fara svo langt inní mann, sömuleiðis klukkuspilið sem komplimentar rödd Murphy... Svo er textinn alveg hreint afbragð. Þegar ég komst að því að þetta væri samið um dáinn vin (en ekki fyrrverandi elskhuga) felldi ég tár, fullkomið nútíma erfiljóð. fallegt. 2. of Montreal - The Past is a Grotesque Animal Ef það er eitthvað sem ég syng oftar en textinn sem ég nefndi áðan þá er það "THE MOUSEY GIRL SCREAMS VIOLENCE! VIOLENCE!" Hissing Fauna snýst algjörlega um þetta lag. Þetta er miðjan, hápunkturinn, kjarninn. Svona reiður texti er vanfundinn í indie-popp geiranum. Svona reiður og persónulegur. Þetta er svolítið eins og að hlusta á Pinkerton - einhver innri manneskja öskrar "já! já! ég skil þig! já!" allan tíman. Og tæpar 12 mínútur er langur tími. geðveikt. 1. Radiohead - Arpeggi/Weird Fishes Þetta lag stóð uppúr á túrnum í fyrra, gítarsamspilið hjá thom og jonny fór alveg með mig, en mér datt ekki í hug að kláruð stúdíó útgáfa ýrði svona ótrúleg (eða jú mér datt það reyndar í hug. gerði í raun ráð fyrir því). Ég man morguninn 10. október þegar ég renndi plötunni fyrst í gegn. Man hrollin sem ég fékk í hápunktinum á Nude, laginu á undan þessu. Svo byrjaði þetta og ég réð barasta ekki við mig. Ég var með gæsahúð allan tímann meðan á þessu lagi stóð. Hárin risu um allan líkama. Þegar lagið droppar um miðbik og ekkert er eftir nema rafpíanó og röddin hans Thom hélt ég að ég yrði ekki eldri. Ég felldi tár. Ég vissi ekkert hvað var að gerast. Ég mun aldrei gleyma þessum miðvikudagsmorgni í október. fullkomið. 25.12.07
5 Bestu EP plötur ársins:
1. Fuck Buttons - Sweet Love For Planet Earth ![]() 2. Animal Collective - People ![]() 3. Yeah Yeah Yeahs - Is Is ![]() 4. Gaiser - Eye Contact ![]() 5. Joanna Newsom & The Ys Street Band og Gleðileg jól!! 21.12.07
10 bestu máltíðir ársins 2007
1. Dumplings á dumplings staðnum í Xian. djöfulsins snilld var það maður. 2. Samloka 15. á 10 dropum. Svooo mikið gúmmelaði. Allt þetta grænmeti og beikonið og helvítis brie-ið. Mmm.. og svo þessi brjálæðislega sinnepssósa. Ég get ekki hugsað um þetta án þess að slefa beinlínis. Ótrúlega vel útilátið og bara. Fullkomið. 3. Búlluborgari með frönskum og bernaise. ég smakkaði aldrei bernaiseið fyrr en í ár og þetta er einhver besta bernaise sem til er, smellpassar með þessum ódýru macains frönskum 4. Steikarsamloka Grillhúsins. Berglind kynnti mér fyrir þessarri einskæru samloku í vor og hef ég borðað hana oft síðan. Allt of góð sinnepssósa. 5. Zinger Tower Máltíð á KFC. ég veit ekki hversu oft ég er búinn að fá mér þetta sjitt í ár. 6. Maturinn á Ólíver í sumar. Fór með götuleikhúsinu á ólíver í lok sumars þar sem við fengum einhverskonar semi-hlaðborðs máltíð... Það var allt þarna. Man ekki alveg eftir forréttinum en næst kom bleikja og eitthvað pasta og svo önd og naut og meira gúmmelaði og síðan í lokin fengum við svona "death by chocolate" gæja. Djöfull var það mikil snilld. 7. Tvöfaldur með beikon á vitabar, franskar með. Og að sjálfsögðu bjór líka. 8. Pizza á hróa m. Pepperoni, Piparost og Ananas. Það er einhver snilld við þessar hróa pizzur, þær bara batna og batna. Svo er líka bara svo gott að éta, fullur, um miðja nótt, búinn að bíða í klukkutíma og á nærbuxunum. Skylda að hafa hvítlauksolíu og kók með. Gott er svo að hita upp tvær sneiðar í morgunmat. 9. Síðasti morgunmaturinn í íbúðinni í Beijing. Ég fékk náttúrulega dumplings og edik (algjör snilld, þau voru búin að vera vakandi mjög lengi að búa þetta sjitt til handa mér, sturlun) en svo var komið með handa mér einhverskonar eggjapönnukaka með vorlauk og einhverju meira gúmmelaði sem var eiginlega ótrúlegt á bragðið. Ég vildi að ég vissi meira um þetta. 10. Maturinn í sendiráðinu. Ótrúlega var gott að borða þennan mat eftir pínlegar máltíðir í 4 daga. Algjört rugl. Djöfull var líka gaman að detta í það! 17.12.07
Jæja, ég er að spá í að gera einn svona lista, alveg óundirbúið og ónúmerað:
Skemmtilegustu plötuhulstur/pakkningar 2007 of Montreal - Hissing Fauna, Are You the Destroyer? ![]() vínill: ![]() Ótrúlega skemmtilegt þetta hringja konsept, mjög nordic eitthvað, sérstaklega gaman í CD útgáfunni þegar 5 hringurinn fylgir með á sér blaði. Sniðug hugmynd. Blonde Redhead - 23 ![]() Ekkert sérstakt við pakkninguna, en þessi mynd er bara æðisleg Panda Bear - Person Pitch ![]() 7 æðislega fallegar myndir inní sem fylgja líklega hverju lagi plötunnar, sem eru einmitt 7. Myndin framan á fær mig svo alltaf til að hlæja, Jens Lekman - Night Falls Over Kortedala ![]() Mig langar í klippingu hjá þessu skýi. Djöfull er hann líka myndarlegur. Menomena - Friend and Foe ![]() Ok þessi mynd er ógeðsleg, en... Þetta er ótrúlega skemmtilegt. Það eru göt á henni, og á disknum eru númer í kös, og nöfn á lögunum í engri sérstakri röð. Maður þarf nefnilega að snúa disknum til til að finna út lagaröðina, í gegnum götin á myndinni. Ótrúlega skemmtilegt segi ég aftur. Svo er lítið annað sem vakti sérstaklega athygli mína, Justice fær props fyrir að vera töff, og guli þeminn á Battles plötunni er flottur, en ekki nógu flottur. Svo skilst mér að Radiohead hafi dottið einhver snilld í hug, kemur í ljós á gamlársdag. Böndin í ár virðast hafa spáð meira í tónlistinni sjálfri í ár, frekar en pakkningunum. NEMA ÍSLENDINGARNIR: Amiina - Kurr ![]() Við erum að tala um ótrúlega flotta mynd og svo einhverskonar barnabóka þykkt og allt mjög skrýtið. Múm - Go, Go Smear the Poison Ivy ![]() Það er hægt að skipta um myndir sem eru allar ótrúlega fallegar og eftir Ingibjörgu Birgisdóttur sem er í miklu uppáhaldi hjá mér svo er hægt að BORÐA HULSTRIÐ AAAAAA Benni Hemm Hemm - Ein í leyni ![]() ææ ég fann ekki stæri mynd en guð hvað ég hef gaman af þessu! Origami! og síðast en ekki síst... Hjaltalín - Sleepdrunk Seasons ![]() svo skilst mér að vínillinn verði ennþá flottari... úúú 14.12.07
Ég er að sturlast úr leiðindum hérna í lengdum opnunartíma á laugaveginum, svo, ég ætla að byrja á þessu árslista veseni.
Bestu myndir sem ég sá á þessu ári en komu samt út nýlega Ég var ekkert rosalega duglegur að fara í bíó, en ég sá nú eitthvað, bæði nýtt og gamalt. Hér eru 10 bestu: Superbad Stranger than Fiction Children of Men Meet the Robinsons Harry Potter & The Order of the Phoenix nei ókei þær verða bara 5. það er alveg nóg. annars horfði ég á rosa mikið Arrested Development og Heroes og Næturvaktina. Það er alveg jafnlangt og 20 bíómyndir eða eitthvað. annars verð ég eitthvað að flippa á sirkus með Heimi og Sigga í kvöld ef þið viljið líta við. Svo er ég hérna inní smekkleysu núna. Að gera nothing. Ef þið viljið líta við. |
||||||||||||||||||||||||||||||