be[¡]kon

26.1.04
 
Ég er kominn með eitthvað æði fyrir Japönskum, blóðugum, listrænum Yakuza/hryllingsmyndum.

Ég horfði á myndina Ichi the Killer (Koroshiya 1)um helgina. Mynd þessi fjallar um lítið annað en pyntingaraðferðir yakuza hópa í japan og svoleiðis.... mjög blóðug en bara svo ótrúlega flotttt og smekkleg. Þessir japönsku leikstjórar (og líka Tarantino) gera ofbeldissenur svo ótrúlega smekklegar og fallegar að það er bara best. (Peter Jackson gerði þær bara fyndnar, ekki mjög fallegar í sínum eldri/heldri? myndum).

Núna langar mig bara að eyða hellings af pening í Japanskar Yakuza DVD myndir... en ekki í geisladiska! Safnið mitt er bara orðið svo fínt að mig langar eiginlega ekki í neitt... Pabbi minn fór til Hollands um daginn og bauðst til að kaupa eitthvað og mér datt bara eiginlega ekkert í hug sem mig langaði virkilega í. Ég fékk bjórkippu í staðinn. Kannski ég fari bara að safna einhverjum hip og happenin cult bíómyndum frá japan og öðrum löndum. Kannski einhverjar bollývúdd myndir. Og Party Monster, nýju myndina með Macaulay Culkin þar sem hann leikur morðóðan og ungan skemmtistaðar eiganda á móti Seth Green. Þessi mynd hefur bara ekkert birst hér á landi og ég er mjög reiður. Búnað verað bíða heillengi.
Poohey.
Það vantar einhver svona indí bíóhús hérna í reykjavík sem sýna svona hip og kúl indí/költ bíómyndir. Ég held að það myndi vera frekar vinsælt.
Samt er alltaf fáránlega gaman að monta sig af öllum þessum myndum sem maður hefur séð og neimdroppa hellings af költ bíómyndum og fólk er bara eikkað hmm... ókei... flott pétur, Artí-fartí-indí-plebba-lúðinn þinn....
EN Í RAUN ER ÞAÐ BARA ÖFUNDSJÚKT ÞVÍ ÉG ER SVO KÚÚÚÚÚLLLL OG EKKI ÞAU OG ÞAÐ ER BARA GEGT OG JÁ....
*ræskj*


Fleiri, fleiri linkar....

Kári "plebbi" Finnson
Hjörtur Ekki-úlfur
Þóra dani

Fleiri, fleiri plötur

Pavement - Slanted & Enchanted
Kimono - Mineur aggressif
The Raveonettes - Chain Gang of Love
The Rapture - Echoes

og að lokum eitt fyrir þá sem vantar einhvern til að elska...


9.1.04
 
Þessi göt koma sér vel, skal ég segja ykkur.
Skólatíminn er sá eini sem ég hef til að blogga. Og það er <________>

a) fínt
b) skull
c) dónalegt
d) kappakstursbíll



Annars er til óóóógeðslega falleg síða sem er tileinkað mörgum mh-ingum (smellið hér) en þó aðallega engum.

Í vinnunni minni var gaman... þar til ég komst að því að það tekur svona 2-3 klukkutíma að ganga frá og þrífa búðinna sem lokar klukkan ÞRJÚ!!! þannig að ég er að vinna annað hvort föstudagskvöld milli 18 og 6 sem er ógeðslega kuntu fáránlega asnalega drullu ömurlegt og tussu viðbjóðslega mikið skull.
En ég verð allavega ríkur í vor og get farið á... Hróarskeldu hátíðina í Danmörku og séð David Bowie!!!!
og KORN!!!!! *ræskj*

Ég bara vona að Radiohead langi líka að spila og fyrrverandi kærastinn minn og núverandi hjásvæfa - Beck
Svo eru Pixies með eikkað kömbakk.... (haha - brund-bak!!!.. ojjj...) if ónlí ðei vúld plei.
Ég held líka að The Darkness myndu vera skemmtileg tónleika-upplifun...
The Rapture kannski líka?? hú nós...

Já... ég náði aldrei að klára að gera alla þessa lista en ég bara nenni því ekki núna... ykkur fannst þetta heldur örugglega ekki merkilegt, mér fannst þetta aðallega gaman. Svo varð ég líka undir árás af ónefndri manneskju sem hellti yfir mig hálfri pepsi flösku, meðan ég svaf í hinum indæla NKJ (it's gúd tú bí bakk...) Svo stal hún símanum mínum og hótaði að taka hann með sér til ónefds lands í Asíu.... Og var það allt vegna lista míns, svo að ég geri ekki meir. (Þó það væri gaman að hafa plötulista en það er líka ógeðslega erfitt hvort eð er því allir þessir gegt kúl og trendí gagnrýnendur eru allir að tala um diska sem er fáránlega erfitt að klófesta. Þó vantar nokkur orð á 10. bestu orð listann eins og bóbó, tupac og fleira... skull.

Jæja. Diskurinn minn er að klárast sem heitir......

The Strokes - Is This It!
He's gonna let you do-o-own