be[¡]kon |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
div class="%20ut&%20yfir&%20inn&%20undir"
align="center" color="#FFFFFF"
[/table]
Archives Apríl 2008 Mars 2008 Febrúar 2008 Janúar 2008 Desember 2007 Nóvember 2007 Október 2007 September 2007 Ágúst 2007 Júlí 2007 Júní 2007 Maí 2007 Apríl 2007 Mars 2007 Febrúar 2007 Janúar 2007 Desember 2006 Nóvember 2006 Október 2006 September 2006 Ágúst 2006 Júlí 2006 Júní 2006 Maí 2006 Apríl 2006 Mars 2006 Febrúar 2006 Janúar 2006 Desember 2005 Nóvember 2005 Október 2005 September 2005 Ágúst 2005 Júlí 2005 Júní 2005 Maí 2005 Apríl 2005 Mars 2005 Febrúar 2005 Janúar 2005 Desember 2004 Nóvember 2004 Október 2004 September 2004 Agúst 2004 Júlí 2004 Júní 2004 Maí 2004 Apríl 2004 Mars 2004 Febrúar 2004 Janúar 2004 Desember 2003 Nóvember 2003 Október 2003 September 2003 Ágúst 2003 Júlí 2003 Júní 2003 Maí 2003 |
21.3.08
Kominn frá NY
Það var aldeilis gaman. Sá þessa menn spila. Matthew Dear spilaði frekar tilfinningalaust og ótilkomumikið sett með einhverjum voða miklum session-tónlistarmönnum. Smá vonbrigði. Junior Boys spiluðu leiðinlegt og fyrirsjáanlegt electro-house set. Mikil vonbrigði. Það var uppselt á El Guincho :( En ég gerði samt allskonar spennandi líka sem ég ætla ekki að þylja upp hérna þar sem ég hef heitið þess að ræða einungis tónlist á þessarri síðu. Í staðinn ætla ég að þylja upp allar þær plötur sem ég keypti: CD Atlas Sound - Let The Blind Lead Those Who Can See But Cannot Feel Quinn Walker - Laughter's an Asshole/Lion Land Xiu Xiu - Women As Lovers Xiu Xiu - The Air Force These Are Powers - Terrific Seasons Stereolab - Emperor Tomato Ketchup Beck - Odelay (Deluxe Útgáfa) Islaja - Blaze Mountain Recordings Jandek - Glasgow Monday (DVD) Glass Candy - B/E/A/T/B/O/X Flower Travellin' Band - Satori El Guincho - Alegranza Audion - Suckfish Superpitcher - Today Chromatics - IV: Night Drive Magda - She's A Dancing Machine Boris - Akuma No Uta Vínill Fuck Buttons - Street Horrrsing Destroyer - Trouble In Dreams Dengue Fever - Venus On Earth Skugge & Stavöstrand - Gräns EP Argenis Brito - Sentidos Opuestos EP Anthony Collins - Cannibale Korablove - You Made Me Feel Ulrich Snauss - Far Away Trains Passing By Devo - Q: Are We Not Men? A: We Are Devo! Einstürzende Neubauten - 1/2 Mensch John Coltrane - A Love Supreme (180g) The Stooges - Fun House (180g) Pocahaunted - Peyote Road A Place To Bury Strangers - A Place To Bury Strangers cLOUDDEAD - Ten Kraftwerk - The Man Machine Scott Walker - Scott 3 (180g) Scott Walker - Scott 4 (180g) Nice. 11.3.08
Farinn til NY
Horfið á þetta á meðan: hugsanlega 100x fyndnara fyrir 2 árum þegar þetta kom út. En mjög fyndið engu síður. 8.3.08
Mest niðurdrepandi tónlist allra tíma
Hæ öllsömul. Ég hef verið alltof slappur upp á síðkastið við að skrifa litla pistla hérna en ég hef verið einum of iðinn við að þykjast vera rokkstjarna og superstar DJ. Áhugasamir um rokkstjörnustörf mín geta mætt í kvöld á lokatónleika HELVÍTIS túrsins en þar ásamt hljómsveit minni "Skelkur í bringu" munu, eins og að venju, Swords of Chaos og Fist Fokkers spila. Baunirnar munu að sjálfsögðu spila og til liðs við okkur hefur gengið Fjöllistahópurinn Kumpánar. SWC beiluðu. Vegna rokksins hef ég spilað mikið rokk í i-podinum undanfarið en þar ber helst að nefna tvær plötur: Be Your Own Pet - Get Awkward ![]() Þessir fjörugu kids eru með glænýja plötu sem gefur síðustu ekkert eftir (sem var á topp 5 yfir uppáhaldsplötur beikonsins árið 2006) Jemima Pearl, söngkona sveitarinnar og ein heitasta pía sem ég veit um er farin að syngja meira eftir melódíu en textarnir eru þó áfram jafn ótrúlega kjánalegir og skemmtilegir og fyrr. Ég veit nú ekki hvort bandið hafi eitthvað bætt sig spilanlega þó, en þeir hafa örugglega verið ansi duglegir við að mæta í partí, drekka sig fulla og vera með læti. Ekki beint tími til að æfa sig en það er líka allt í lagi. Be Your Own Pet - Zombie Graveyard Party The Goslings - Occassion ![]() Hér er hinsvegar mjög drungaleg og þung tónlist á ferð. Mikill metal-grunnur sem er þó algjörlega falinn með þvíílíkum hávaða. Sjaldan hef ég heyrt jafn út-í-gegn-háværa plötu. Algjör sonic árás. Upptökur eru líka svo yndislega hráar. Ég myndi ekki einu sinni kalla þetta lo-fi. Frekar bara... no-fi. Ég held það orð lýsi þessarri plötu ágætlega. Semsagt. Þessi plata gæti drepið þig. The Goslings - Parsley Halo Have a Nice Life - Deathconciousness ![]() Þessa á ég reyndar eftir að hlusta á. en er svo rosalega spenntur fyrir að ég verð að hafa hana með (ég er nefnilega svo mikið að hlusta á þessa Vampire Weekend plötu sem FÆST NÚNA Í SMEKKLEYSUPLÖTUBÚÐ OG HVERGI ANNARSTAÐAR Á ÍSLANDI) Platan er í fyrsta sæti yfir 2008 plötur hjá Rate Your Music (æðisleg síða - það er linkur á mína hér til vinstri). Plötunni er lýst þá sem einhverskonar blanda af Shoegaze, Drone og Post-Punk og gætir heilmikilla áhrifa frá böndum á borð við Joy Division, The Cure, My Bloody Valentine og Kid A m. Radiohead (mjög niðurdrepandi allt saman). Fréttatilkynning frá bandinu (sem gefur jafnframt plötuna út sjálft) lýsir plötunni sem "The most depressing album of all time". Vá. Platan er á tveim diskum, einhverskonar undirplötum: The Plow that Broke the Plains og The Future og hefur að geyma allskonar frábær laganöfn: A Quick One Before the Eternal Worm Devours Connecticutt, The Big Gloom, There Is No Food, I Don't Love og Holy Fucking Shit: 40,000. Með fylgir lagið með uppáhalds nafninu mínu. Have a Nice Life - Waiting for Black Metal Records to Come in the Mail Nú ætla ég að hlusta á plötuna. Gæti verið að ég hengi mig eftir að hlusta á þessa plötu ef hún er svona niðurdrepandi, svo bara. Takk fyrir allt. P.S. Ég er búinn að laga linkana í Topp 5 hérna til vinstri og nú getiði líka fengið lög með Dirtbombs og Quinn Walker! UPDATE: Ég er enn á lífi. Platan var alls ekki nógu kúl. Alls enginn hávaði. Og þetta hljómar dálítið eins og The Killers að spila Mogwai. Vesen. Heppilegt samt að lagið sem fylgir færslunni er mest kúl lagið á plötunni. 2.3.08
|
||||||||||||||||||||||||||||||