be[¡]kon |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
div class="%20ut&%20yfir&%20inn&%20undir"
align="center" color="#FFFFFF"
[/table]
Archives Apríl 2008 Mars 2008 Febrúar 2008 Janúar 2008 Desember 2007 Nóvember 2007 Október 2007 September 2007 Ágúst 2007 Júlí 2007 Júní 2007 Maí 2007 Apríl 2007 Mars 2007 Febrúar 2007 Janúar 2007 Desember 2006 Nóvember 2006 Október 2006 September 2006 Ágúst 2006 Júlí 2006 Júní 2006 Maí 2006 Apríl 2006 Mars 2006 Febrúar 2006 Janúar 2006 Desember 2005 Nóvember 2005 Október 2005 September 2005 Ágúst 2005 Júlí 2005 Júní 2005 Maí 2005 Apríl 2005 Mars 2005 Febrúar 2005 Janúar 2005 Desember 2004 Nóvember 2004 Október 2004 September 2004 Agúst 2004 Júlí 2004 Júní 2004 Maí 2004 Apríl 2004 Mars 2004 Febrúar 2004 Janúar 2004 Desember 2003 Nóvember 2003 Október 2003 September 2003 Ágúst 2003 Júlí 2003 Júní 2003 Maí 2003 |
22.12.06
6. og síðasti hluti: Topp 50 plötur 2006
Þetta tók mig rosalega langan tíma og vinir mínir hafa undrast yfir þolinmæði minni og áhuga. Svo að einhver annar en ég getur haft gaman af þessu læt ég fylgja með eitt lag af hverri plötu sem þið getið svo downloadað og dæmt sjálf. Þó eru heilmargar plötur sem ég var ekki búinn að heyra þegar ég smíðaði listann (s.s. á meðan ég var í prófum - sem ég er búinn með. að eilífu. ég er stúdent. jess). Ég vona að ykkur finnist þetta spennandi. Og gleðileg jól. 50. Sufjan Stevens - The Avalanche ![]() Hvað er kallinn að eyða tíma í svona þegar hann hefur eitt metnaðarfyllsta tónlistarverkefni sögunnar framundan. Fín tónlist svosem, en þetta hefði bara átt að koma út í Deluxe-útgáfu af Illinois eftir 5 eða 10 ár. Þetta lækkar bara meðaleinkunn kallsins. Hann ætti að vera dúx. Fylgilag: The Avalanche 49. Trentemøller - The Last Resort ![]() Ef Trentemoller hefði bara gefið út aukadiskinn sem fylgir stundum með plötunni, væri þetta sko efst efst uppi. Platan sjálf er bara ótrúlega fyrirsjáanleg og væmin. Eina viiirkilega góða lagið er Chameleon sem er líka á aukadisknum í sinni upprunalegu mynd. Aukadiskurinn heldur henni hérna inni á listanum þó. Fylgilag: Chameleon 48. The Rapture - Pieces of the People We Love ![]() Fyrstu 6 lögin á þessarri plötu ætti í raun að koma þessu á topp 10, en síðustu lögin eru svo óhugnalega leiðinleg að það eyðileggur algjörlega heildina. Fylgilag: First Gear 47. Claude VonStroke - Beware Of The Bird ![]() Hálf klikkuð danstónlist sem virkar vel nokkrum sinnum, eins og meðal-góður brandari virkar í 5 skipti. Fylgilag: Deep Throat 46. Ratatat - Classics ![]() Flott plata en er aðeins of svipuð þeirri seinustu. Hún einhvernveginn hverfur inn í andrúmsloftið og maður gleymir því að maður sé að hlusta á eitthvað sérstakt. En ef maður hlustar virkilega þá er alveg að finna flottar sprettur inn á milli. Fylgilag: Lex 45. Parts & Labor - Stay Afraid ![]() Þungum gítar-riffum, sterkum skosk/írsk-þjóðlagalegum-söng (ég er ekki frá því að það séu sekkjapípur í gangi líka) og heilmiklum hávaða er blandað saman á þessarri frumlegu og orkumiklu rokkskífu sem er þó nokkuð einsleit og verður leiðingjörn eftir smá tíma. Fylgilag: A Pleasant Stay 44. Oliver Huntemann - Fieber ![]() Hvað get ég sagt? Trylltustu synthlínur allra tíma mættar hérna allar saman á eina plötu. Einfaldur bassi og snerill er undirstaða þessarra plötu hjá Huntemann sem kafar í rætur þýskrar danstónlistar og bætir við smá fitu. Lögin hér eru þó svo rosalega einsleit að platan sem heild rennur í sandinn, en allir DJAr gætu rifið af hvaða þak sem er með einhverju lagi héðan. Fylgilag: French Fries 43. The Fiery Furnaces - Bitter Tea ![]() Ein mest óskiljanlega hljómsveit síðusta áratugar gefur út enn aðra óskiljanlega plötu, eiginlega of óskiljanlega. Ekki jafn skrýtin þó og seinasta, þarna ömmuplatan, hún var alveg hræðileg. Þau verða bara aðeins að slaka á og virkilega vanda tónlistina í stað þess að flýta sér svona, 4 plötur á 2 árum væri heilmikið afrek ef þær væru allar jafn tryllingslega góðar og fyrstu tvær plötur sveitarinnar. Önnur þeirra kom út fyrir 3 árum. Fylgilag: I'm In No Mood 42. Dudley Perkins - Expressions ![]() Skemmtileg soul hip-hop plata frá Stones Throw labelinu. Eins og flestir frá því batteríi er Dudley með alveg sérstætt flæði og einstakan stíl. Hann suðar saman sýrudjassi, soul og old school hip hop töktum sem gerir plötuna einstaklega heita. Manni finnst maður vera aðalspaðinn þegar maður hluistar á þetta. Fylgilag: Funky Dudley 41. Peter, Björn And John - Writer's Block ![]() Aðeins of grípandi indie tónlist sem minnir heilmikið á The Shins og eiga lag sem var einnig "nauðgað" á myspace síðum heimsins. Sum lögin eru samt rosalega flott, sérstaklega næstsíðasta lagið, Roll The Credits sem hefur að geyma virkilega góðan anti-climax a la shoegaze. Fylgilag: Roll The Credits 40. The Advantage - Elf-Titled ![]() Líklega mjög fyndnir en lúðalegir gæjar endurskapa gömul nintendo lög með gítörum og tilheyrandi. Pínu þreytandi en heilmikil skemmtun... fyrir nintendo kynslóðina. Fylgilag: Contra-Alien's Lair & Boss Music 39. The Pink Mountaintops - Axis Of Evol ![]() Söngvari Black Mountain hér á ferð með einstaklega fallega folk-rock sólóplötu sem minnir einna helst á Brian Jonestown Massacre. Hann er vopnaður gítar og trommuheila sem hann notar af heilmikilli einlægni, sérstaklega gítarinn. Þó er tónlistin ekkert að slá nein met í frumleika svo að hún gleymist nú örugglega fljótlega. Fylgilag: Cold Criminals 38. Hot Chip - The Warning ![]() Þetta hefði átt að vera snilld. Platan er ekki alveg nógu vel heppnuð en geymir þó gullmola sem voru alltof mikið spilaðir á skemmtistöðum og myspace síðum allra Íslendinga. En, hún rennur voðalega vel í gegn. Fylgilag: No Fit State 37. Sonic Youth - Rather Ripped ![]() Ég elska Sonic Youth af öllu hjarta, en þeir bregðast mér rosalega með alltof einfaldri plötu. Undir seinni helmingin fer hún þó að batna, en verður aldrei að almennilegri plötu, þó mætti halda að hún virki vel á vínyl, þar sem hún virkar frekar tvíkskipt, fyrri hlutinn popp hlið sveitarinnar og seinni hlutinn framúrstefnu hliðin. En ég vil jafnari blöndu. Ekki svart og hvítt bara. Grátt væri betra. Úff. Léleg samlíking, en þið skiljið hvert ég er að fara. Fylgilag: Sleepin' Around 36. Junior Boys - So This Is Goodbye ![]() Rosa fallegt og vel mótað raf-popp sem á örugglega eftir að heltaka alla íslenska "hipstera" í naked ape peysum og myspace síður þeirra. Fylgilag: Double Shadow 35. Ghostface Killah - Fishscale ![]() Fyrrverandi Wu-Tang meðlimur bjó til plötu sem skilst mér fjallar aðallega um kókaín. Fyrst þegar ég hlustaði á þetta slökkti ég eiginlega strax og hugsaði "Æ. Enn ein leiðinlega hip-hop platan". En síðan núna 10 sinnum seinna get ég ekki annað gert en öskrað "aawww shiiiii!!!" í hvert skipti sem ég hlusta því þetta er bara svo illin'. Fylgilag: Be Easy 34. Gossip - Standing In The Way Of Control ![]() Plata sem ég hlustaði alltof lítið á þar til núna. Leifar frá diskó-pönk tímabilinu sem fara þó sínar eigin leiðir með kraftmiklum dívu-söng. Fylgilag: Standing In The Way Of Control 33. Booka Shade - Movement ![]() Einhverjir mestu snillingar danstónlistar í dag með plötu í fullri lengd. Leiðinleg og tómleg lög fylla upp í snilldina og draga plötuna á langin. Fylgilag: Pong Pang 32. Cat Power - The Greatest ![]() Chan Marshall ákvað að fá sér Motown bak-sveit sem breytir tónlist hennar til muna frá hinu hefðbundna trúbadorssándi hennar. Manni finnst maður vera kominn inn á einhvern neðanjarðar jazz/soul klúbb þegar maður kveikir á þessarri plötu og líður alltaf voða vel, þar til maður hlustar á textana, sem fjalla nær allir um einmanaleika og þunglyndi. Þá hættir maður að brosa og maður fer að gráta. Fylgilag: Islands 31. Spank Rock - Yo Yo Yo Yo Yo ![]() Ferskt hip-hop frá NYC undir heilmiklum áhrifum frá old school B-Boy hip-hoppi frá sama stað fyrir 10 árum síðan. 1 MC og 2 DJs gera hljómsveitina, en nokkrar beibs koma og hjálpa til, meðal annars Amanda Blank sem kom á Airwaves og ég missti af. En mér skilst að hún sé meeegabeeeib. Hún er allavega hard hittin' bitch í laginu sem hún syngur í, Bump. Sem ég ætla ekki að láta fylgja með. Fylgilag: Backyard Betty 30. Belle & Sebastian - The Life Pursuit ![]() Krúttleg og sæt plata frá B&S sem eltast bara við lífsgleði núna. Rosalega notaleg plata. Verst hvað þau voru leiðinleg og óáhugaverð á tónleikunum sem ég sá í Belgíu. Og missti af Broken Social Scene vegna. Djöfullinn. Það besta við þessa plötu er þó inni í bæklingnum: From Juan Pablo Q: hi, I am from Mexico, the fist thing I want is congratulate you: congratulations. the second is this i am 16 years old, I really dont like buissnes work and adults but I would like to work or do some thing for the summer, I would like to go to the forest with my frinds and buy a beautiful painting in the internet. but I like baking cakes but I am not sure to sell them, and I like to make t-shirts of my favorite bands and stuff but i dont like to make money from the music i really enjoy. so what could i do? I could just Relax in my house all summer but I really love the forest. thanks, Bella y la Bestia bye ( I dont chew English) Einhvernveginn tekst mér alltaf að heyra röddina í Pedro úr Napoleon Dynamite þegar ég les þetta. Fylgilag: White Collar Boy 29. James Holden - The Idiots Are Winning ![]() Plötusnúður með minimal techno sérsvið gefur út sína fyrstu sólóplötu sem fylgir eftir rosalegu remixi sem kom út í fyrra á The Sky Was Pink með Nathan Fake. Leikur sér með hljóðlandslög (soundscapes...) og flott minimal groove. Sérstaklega athyglisvert er 2 mínútna lagið "Intentionally Left Blank" þar sem ég held að meðal athygli manneskja sé mjög líklega komin niður í 2:05, frekar en 4:33. Fylgilag: 10101 28. Wooden Wand & The Vanishing Voice - Gipsy Freedom ![]() Þetta lið fékk í hendurnar eitthvað drasl, tóku alltof mikla sýru, bjuggu til hljóðfæri úr draslinu og ýttu á record. Framúrstefnulegt og frumlegt en umfram allt, hrífandi. Fylgilag: Hey Pig, He Stole My Sound 27. CSS - Cansei De Ser Sexy ![]() Sex ótrúlega sætar Brasilískar stelpur (og einn dude) eru þreyttar á að vera sexí. Rosalega gaman að hoppa um við þessa plötu. Fylgilag: Meeting Paris Hilton 26. Benni Hemm Hemm - Kajak ![]() Benedikt Hermann Hermannsonn er gífurleg viðbót í íslenska tónlistarmenningu. Ég elska hann. Á þessarri nýju plötu heldur hann sér bara við texta og nógu mikið af brassi, sem var algjörlega það besta við síðustu plötu hans. Útsetningar hans á bæði hljóðfærum og röddum verða alltaf hlýlegri. Þessi plata er kærkomin viðbót í íslenskt tónlíf, sem mér finnst oft vera einum of grunnhyggið. Fylgilag: Ég á bát 25. Boris - Pink ![]() Þessi japani kallar sig Boris. Hann býr til skemmtilega framúrstefnilegan metal. Ekkert sérlega bleikt neitt. Einhverskonar silvur-grá-blátt frekar. Maður tapar sér algjörlega í þessarri plötu, en hún þarf að vera rosalega hávær, helst í magnara sem fer upp í 11. Fylgilag: Pink 24. Justin Timberlake - FutureSex/LoveSounds ![]() Justin hefur tekist að gera viiiirkilega flotta popp breiðskífu. Hvert einasta lag kemur á óvart. Sérstaklega lagið sem ég læt fylgja með. Rödd Justin skín hérna líka alveg í gegn og er einstaklega falleg. Hún fær hvað best að njóta sín í loka R'n'B-ballöðuni, Another Song. Það er samt eitt voða ljótt Crunk lag í miðjunni sem fer alveg rosalega í taugarnar á mér. Fylgilag: LoveStoned/I Think That She Knows 23. Yeah Yeah Yeahs - Show Your Bones ![]() Heilmikil þróun hjá hljómsveitinni. Og í rétta átt þar sem gamli stíllinn er alveg rosalega mikið í tísku hjá Corporate-tónlistarbransanum. Þó voru þau tilnefnd núna um daginn til Grammy verðlauna.... hmm... jæja. Mér finnst þetta tryllt plata. Virkilega góðar lagasmíðar og söngurinn kraftmikill og einlægur. Fylgilag: Warrior 22. Beirut - Gulag Orchestar ![]() Þessi gæji, á aldur við mig, er ekki frá bandaríkjunum. Tónlistin gefur samt alveg annað að kynna. Hann útsetur af snilli tónlist undir áhrifum frá þjóðlögum Austur-Evrópu. En svo allt í einu kemur einhver gamall skemmtari í spilið. Hvað er það? Það er alveg fáránlegt. Fylgilag: Prenzlaurberg 21. Lindstrøm -It's A Feedelity Affair ![]() Útúrklikkað diskó sem mætti helst heyra á skemmtistöðum á mars og júpíter, og að sjálfsögðu ef ég sit við stjórn hér í Reykjavík. Fylgilag: Music In My Mind 20. Thom Yorke - The Eraser ![]() Radiohead = 5 = (2+2) = 4 Nigel Godrich = n Thom Yorke = 2 n(2+2)-2 = 20. Fylgilag: Cymbal Rush 19. Band Of Horses - Everything All The Time ![]() Áður óþekkta bandaríska indie hljómsveitin sem sló reikilega í gegn fyrr á þessu ári halda að þeir séu hestar. Hestar eru fallegir og það er þessi tónlist líka. Allan tíman. Allt saman. Og tónlistin er ekki bara fyrir hesta. Heldur líka fyrir ketti, hana, hreindýr, svín og endur. Og mig og þig. Fylgilag: Wicked Gil 18. Howlin' Rain - Howlin' Rain ![]() Einn gæji úr Comets on Fire og annar úr Sunburned Hand of the Man eru Howlin' Rain. Tónlistin hljómar rosa lítið eins og þær sveitir blandaðar saman. Heldur hljómar það eins og ferðalag í gegnum eyðimörk í Bandaríkjunum á hippatímabilinu með fullt af eiturlyfjum, aðallega sýru í farteskinu. Fylgilag: Roll On The Rusted Days 17. Ellen Allien & Apparat - Orchestra Of Bubbles ![]() Apparat Organ Quartet kemur ekki nálægt þessarri plötu sem er ótrúlega dansvæn en aðallega herbergisvæn. Þessi nýjasta tækni í hljóðforritum getur gert ótrúlega hluti, farið er á staði sem enginn maður hefur farið áður. Fylgilag: Bubbles 16. Islands - Return To The Sea ![]() Islands-vinirnir í Íslands (hahaha) eiga skemmtilegan frumburð sem kom þó ekkert sérlega á óvart en batnar við hverja hlustun. Ég kýs enn Unicorns plötuna framyfir, en ég hef voða gaman af þessarri. Leiðinlegt að missa af tónleikum þeirra í Listasafninu (ég sá samt mega exclusive VIP only tónleika í smekkleysu... (ókei kannski ekki VIP only)). Fylgilag: Don't Call Me Whitney, Bobby 15. Asobi Seksu - Citrus ![]() Þetta er kröftugt shoegaze-popp sem kom mér hinsvegar rosalega á óvart. Frábær heild og rosalega draumkenndar og fallegar söngmelódíur. Tekur algjörlega yfir líkama þinn og stundum neyðist þú til að öskra af og til eða svona, opna munninn eins og þú ætlir að öskra en gerir það ekki því að nágranarnir myndu halda eitthvað. Fylgilag: Red Sea 14. Nathan Fake - Drowning In A Sea Of Love ![]() Þennan dúdda nefndi ég áðan. The Sky Was Pink er hérna í sinni original mynd og þau orð, ásamt plötutitlinum lýsa nokkurnvegin hljóm plötunar. Draumkennt, kraftmikið og ástríðufullt. Það væri hægt að kalla þetta einhverskonar Boards of Canada lights ef á að líkja þessu við eitthvað. Fylgilag: Long Sunny 13. Beck - The Information ![]() Þessi plata var bönnuð á vinsældalistum Bretlands. Útskýring er neðar með plötuhulstra-listanum. Miðað við Guero er þessi alveg milljón sinnum svalari. Nigel Godrich er líka svo flinkur í að gera þetta fullkomna sánd, allt sem hann gerir verður svo fágað. Það er samt svolítið eins og þessi plata hafi farið framhjá gagnrýnendum, sem ég skil alls ekki, miðað við hversu mikið lof Guero fékk. Beck fer samt ekki á þær hæðir sem hann komst á með Sea Change, en er alveg nálægt. Fylgilag: 1000 BPM 12. Comets On Fire - Avatar Comets On Fire hafa slakað aðeins á frá því á seinustu plötu. Svolítið bandarískt folk-ívaf og meira horf til fortíðar (gömlu, góðu rock-out/noise kaflarnir eru þó enn til staðar) en öll lögin eru rosalega vandlega uppbyggð og spilamennskan að sjálfsögðu ótrúleg. Fylgilag: The Swallow's Eye 11. Xiu Xiu - The Air Force ![]() Mun betri plata en La Foret frá því í fyrra og í raun ein besta sveitarinnar. Greg Saunier úr Deerhoof ljáir sína pródúser og trommuhjálp og hljómsveitarmeðlimurinn Caralee McElroy syngur hér í fyrsta sinn, sem gefur Xiu Xiu nýjan hljóm og fjölbreytni, sem vantaði algjörlega síðast. Ótrúlega tilfinningarík plata sem á vel á veturnar. Fylgilag: Boy Soprano 10. Ghostigital - In Cod We Trust ![]() Loksins komin á disk öll þau lög sem maður sturlaðist við á tónleikum á fyrra. Plús fleiri ný. Öll vel innpökkuð af Bibba Curver, heilmiklir hæfileikar þar á ferð. Textar Einars eru líka alveg ógeðslega fyndir, en í leiðinni voða raunsæir. Hann fæst við íslensk samfélags-vandamál af mikilli kaldhæðni, eins og aðeins íslendingar kunna. Ásamt þessu fáum við líka magnaða alt-rödd Ásgerðar Júníusdóttur, skrækróma öskur Katie-Jane Garside úr Queen Adreena, scratch hæfileika Gísla Galdurs og að sjálfsögðu stórskemmtilega trompetleik Hrafnkels Flóka. Fylgilag: Crackers 9. Danielson - Ships ![]() Þessi gæji. Barnaleg folk tónlist í ætt við Animal Collective. Ótrúlega ljóðrænir textar og barnalegar melódíur sem halda manni brosandi og krúttlegum. En útsetningar á blásturshljóðfærum, röddum og framúrstefnulegir hljómagangar og taktskipan gera þessa plötu að miklu meira en bara krútti. Fylgilag: Did I Step On Your Trumpet 8. Minus - Min2Max ![]() Smá svindl að hafa safnplötu á listanum en þessi lög hefðu aldrei komið út öðruvísi en á 12" vínyl hvort eð er. Þessi lög eru öll bara svo ótrúleg og einstök, hvernig tónlistarmennirnir nota þessi pínu hljóð til að gera dansgólfs-skrýmsli (sbr. nafnið á plötunni) er mjög aðdáunarvert, þá sérstaklega Baby Kate m. Heartthrob og Have To Get Back m. WiNK sem ég nefndi hér áður á danstónlistartopplsitanum. Þrátt fyrir að safnplötu sé að ræða eru lögin nógu svipuð til að hægt sé að kalla þetta eitt heildar-tónverk. Ein mest spilaða plata þessa árs, jafnt heima og á klúbbunum. Fylgilag: Marc Houle - Simpler 7. Destroyer - Destroyer's Rubies ![]() Dan Bejar úr The New Pornographers er maðurinn á bakvið þessa tónlist, sem er nokkuð flókin og sérstök. Ég var heillengi að grípa við þessu en gerði það þó að lokum og er skilinn eftir gapandi þegar ég hlusta núna. Textarnir spila þátt í því, en þeir geta verið mjög áhrifaríkir á köflum en tónlistin hefur einhvern magnaðan og fagran blæ, sem gerir þessa plötu bæði dularfulla og fallega. Fylgilag: 3000 Flowers 6. The Decemberists - The Crane Wife ![]() Það er búið að droppa írsku þjóðlagastemningunni hér algjörlega, sem ég fílaði aldrei neitt rosalega mikið þó ber söngurinn ennþá þann keim, sem gefur tónlistinni mjög fallegan brag. Lögin hér eru öll ótrúlega áhrifamikil, fáguð og bara drulluvel skrifuð. Colin Meloy er hér búinn að festa sig í sessi sem einn mesta popptónsmið áratugarins. Fylgilag: O Valencia! 5. Be Your Own PET - Be Your Own PET ![]() 30 mínútur af unglinga-pönk-sturlun. Hrærir verulega í hausnum á manni en skilur mann eftir skælbrosandi. Svolítið eins og að horfa á Fear & Loathing In Las Vegas. Fylgilag: Fuuuuuun 4. Joanna Newsom - Ys ![]() Hörpusnillingurinn fær til liðs við sig útsetjarann Van Dyke Parks, sem er á bakvið Smile m. Brian Wilson og Pet Sounds og einn mesta pródúser allra tíma, Steve Albini. Svo setur maður rödd Jóhönnu ofan á þetta allt saman, en hún hefur þroskast heilmikið frá því á síðustu plötu. Útkoman eru 5 epísk lög um birni, apa og nokkrar stelpur. Ég læt fylgja með lokalagið því það er styst, fljótlegast að hlaða því niður. Hin lögin fara öll yfir 9 mínútur. Fylgilag: Cosmia 3. Sunset Rubdown - Shut Up I Am Dreaming ![]() Maðurinn með ótal hliðarverkefni, Spencer Krug, gefur hér frá sér líklega sína bestu hlið. Hér sýður hann saman, ásamt þrem öðrum, ótrúlegan galdraseið sem fær allar tilfinningar heims til að flæða frá hjarta til allra útlima og springa út af þvílíkum krafti. Besta post-emo-indie platan síðan Funeral m. Arcade Fire. Fylgilag: Stadiums & Shrines II 2. The Knife - Silent Shout ![]() Mest hæpaða hljómsveit síðasta árs breytti algjörlega um stíl og sanna að þau systkinin eiga hæpið alveg skilið. Silent Shout er plata sem varla er hægt að leggja frá sér og er alltaf jafn tryllingsleg í hvert skipti sem maður hlustar. Drungaleg og mögnuð raftónlist sem á eftir að lifa mjög lengi. Fylgilag: Forest Families 1. Liars - Drum's Not Dead ![]() Það er bara ein plata sem ég hef heyrt sem slær þessa plötu út í gæðum, uppbyggingu, tilfinningaþrunga og skemmtun. Það er Kid A með Radiohead sem ég hef talað um sem bestu plötu allra tíma í 5 ár eða svo og ég held ég fari ekkert af þeirri skoðun, en svei mér þá hvað þessi plata kemur nálægt. Ótrúleg vinna var lögð í þessa plötu og það skilar sér sannarlega. Ég á erfitt með að útskýra áhrifin í orðum, þannig að ég skipa ykkur að kaupa þessa plötu á stundinni, horfa á myndirnar þrjár sem fylgja á DVD (hver meðlimur fyrir sig bjó til myndband við alla plötuna í heild) í almennilegu hljómkerfi og þið munið aldrei vera söm. Ég læt bara alla plötuna fylgja með. Hví ekki. Drum's Not Dead |
||||||||||||||||||||||||||||||