be[¡]kon

31.5.03
 
Jó .... ðis is mad!!!! Ég er í kórpartíi -------- Ég er býsna fullur í öjebliket...... Samt er ég ennþá í fyrirpartí, samt. heví góð pæling... gamli ofleikur er upp í sumarbústað... hmm... hvort er skemmtilegra - það get ég ekki sagt ... Atli ---- við verðum að semja betur um þetta plötu dagsins fæmi en..... í dag er það Fischerspooner - #1---- Electro sjitt from hell. --- Violence paints the sky Skemmtiatriðið er ömurlegt eins og venjulega en ég Högni og Helgi plöggum þetta með Freestyle dansinum sem við erm a semja akkúrat núna....... White Stripes eru heví góð pæling...... Jæja --- meiri bjór.... Ég er með copyright á Plötu dagsins Atli minn ----- í gær var reyndar Belle & Sebastian - The Boy With The Arab Strap þökkk sé þér....


29.5.03
 
Bisý bisý bisý bisý, bisý læk a bí. Ég hef engan tíma haft til þess að komast að tölvunni minni undanfarna daga og ég afsaka bloggleysi. Ég er nefnilega búinn að vera að vinna!! Ég er að bera tekk olíu á gluggakarma og hurðir á hús í skerjafirðinum. Ekki alveg mitt sérþekkingarsvið að nota þykka pensla og svona en þetta gengur bara nokkuð vel... Ástæðan fyrir því að ég sé að vinna er vegna þess að ég bakkaði óvart á bíl (eins og ég hef reyndar gert marg, margoft en núna skildi ég far eftir á hinum bílnum) og þar af leiðandi þurfti ég að stússast í einhverju leiðinda tryggingarveseni, en það kom svo sannarlega á óvart að eigandi bílsins (Þrælljótur Fiat Multipla - ég var hálffeginn að hafa skemmt hann pínu - ætli þetta hafi verið dulvitundin?) bauð mér vinnu við að mála nýja húsið sitt.... Núna verð ég betur staddur í sumar (Götuleikhúsið dugar engan veginn fyrir allt sumarið). Ég er búinn að vera að bíða og bíða eftir þessu blessaða skólablaði okkar MHinga, áttum að fá það í pósti eftir helgi - mér sýnist önnur helgi vera að ganga í garð - hmmmm.... ef bréfalúga heimilis míns færir mér ekki þau gleðilegu tíðindi að Beneventum hafi borist í gegnum þau (ó já, bréfalúgan mín getur talað - og ekki sem verst heldur) munu fingur fjúka. Og kannski einstaka táin.
Svo er bara hressilegt kórpartí á morgun, þetta verður ein besta pæling í langa tíð... fleira, fleira, fleira - Nýja Radiohead smáskífan er komin í hús, safnið alltaf að stækka - núna á ég 19 geisladiska með sveitinni og þar tel ég ekki með hina fjölmörgu tónleikadiska..... Mhhmmm æ löv reydíohed.
Vorvítamín Hamrahlíðakóranna var bara fín pæling ekkert eitthvað frábært, mættu vera færri ungbörn, þau trufluðu stemmninguna sem hefði getað skapast - þau voru líka u.þ.b 20 á alrinum 0 - 18 mánaða. Ótrúlegt. Matrix Reloaded er alveg eins og ég bjóst við, ekki jafn góð og sú fyrri, ekki jafn margar pælingar, betri slagsmálaatriði og alveg býsna góð. Ég man ekki fleiri atburði síðastliðna daga - ég ætla að reyna að telja upp plötur dagsins en suma daga var ég allt of upptekin til að geta hlustað á tónlist - ég veit ekki hvað er að koma fyrir.
26/5 - Radiohead - There There
We are accidents waiting to happen
27/5 - Pixies - Surfer Rosa/Come On Pilgrim
Let's go let's sit let's talk, politics go so good with beer
28/5 - The Vines - Highly Evolved
You know you really oughta move out of California
29/5 - ekkert komið eins og er. Ég hef bara heyrt kórtónlist og útvarpið í dag. Núna verð ég að gera eitthvað í málunum...... Sjáumst.


25.5.03
 
Moðerfokker. Ég hafði ekki hugmynd um að neftóbak gæti farið með svona fólk. Atli mosó ber núna titilinn mest fokked öpp gaur sem ég hef augum litið Þessi maður var að drekka litháenskt vodka allt gær kvöld og heví magn af neftóbakki. Þessi drengur var býsna góður á því þegar ég hitti hann um hálfeittleytið - labbaði skakkt og talaði óskýrt um hvað maður væri „fáránlega góður gaur“ Svo bauðst Vera til að skutla honum heim. Fyrst fékk hann sér meiri neftóbak. Svo fór hann inn í bílin. Það tók hann korter að setjast upprétt. Svo þurftum við að sækja Ívar úr kópavoginum. Við vorum ekki viss hvar í kópavoginum hann væri, svo í stað þess að hringja öskraði Atli nafn hans út um gluggan um allan Kópavog - og Reykjavík. Loks fundum við húsið.... Atli fór inn að ná í hann. Ákvað fyrst að hlaupa á grindverk og detta heví vel, pissa fyrir framan alla á miðju túni og detta svo aftur. Það tók hann aftur korter að setjast rétt í bílnum. Svo vorum við kominn með hann heim til Steina þar sem hann ætlaði að krassja. Þar lét ég hann taka stafrófsprófið (labba í beina línu og snerta nefið) sem gekk skemmtilega og svo reyndi hann að fara heljarstökk afturábak. Mér varð illt í kjálkanum eftir að hlæja svona mikið.
Þessi dagur (24/5) var heví fínn. Vaknaði kl. 8 og fór út í bakarí handa m+p (pælí góðum syni!!!) söng í útskriftini sem var mjög skemmtileg þrátt fyrir sína rosalegu lengd. Svo gaf pabbi mér nýja skó frá Camper - gríðarlegir skór, fór næst á Matthew Barney opnunina - heví góð pæling!!! - og nældi mér í frían bjór - ennþá betri pæling!!!! Þegar ég fékk nóg af sýrunni sem Cremaster er fór ég heim.... kom samt aðeins við í Skífunni og náði mér í Date With The Night smáskífu yeah yeah yeahs Svo var horft á Evróvisjón með undirleik Pizzu frá Eldsmiðjunni.... mmmm.... Heví góð pæling. Norska lagið var lang best. Einlægasta lagið og líka að eina sem var þægilegt að hlusta á. Allt hitt var frekar óþægilegt. t.A.T.u voru með sitt besta lag hingað til, samt var það hrikalegt. Austuríska lagið var fáránlega góð pæling. Svo vann þetta helvítis Holly Valance rip-off lag frá Tyrklandi. *gubb* Eftir keppnina var haldið í Bóbó í kringlubílastæði, Næst var það Glaumbar til hennar Viggu - Vigga, gott teiti! - Svo fórum við Vera í þennan skemmtilega bíltúr með Steina og Atla. Endað var á glæsilegum Bóbó fyrir utan háskólann.
Föstudagskvöldið var líka magnað. Við Vera keyptum okkur vatnsbyssur og sprautuðum á bjullur og blumba á laugaveginum. Svo hélt Hulda Björk prívat tónleika á Austurvelli.
Halli er loksins byrjaður að blogga!! Þið getið skoðað það hér
Plötur síðustu þriggja daga: 23/5 - Justin Timberlake - Justified
Gonna have you naked by the end of this song
24/5 - Radiohead - Amnesiac
Cut the kids in half.
25/5 - Yeah Yeah Yeahs - Fever To Tell
Cool kids belong together


22.5.03
 
Jó! mæ thööögs!!
Ég er að fara að læra tónsmíðar!! Byrja í haust, 3ja ára nám, Raftónlist og Kammer og allskonar hljómfræði og vesen. Æm göna bí big. Var í stanslausri tónlist í 7 klukkutíma í dag, fór í stöðupróf í tónheyrn - vissi ekkert út á hvað þetta gekk, mætti bara og gerði eitthvað, örugglega farið asnalega. Samt er ég með heví tónheyrn. Kann bara ekkert að skrifa tónbil..... Svo fór ég í hljómfræði, heví pæling... Kóræfingu og hljómsveitaræfingu. Hlakka til að fara að spila á almannafæri. Búnir að vera að æfa í 3 eða 4 mánuði ekkert ennþá búnir að spila neitt. Víl köm át við a blast.
Ég féll ekki á önn, bara í líkamsrækt. Það er heví slæm pæling. Fólk á ekki að falla í leikfimi, það er ekki einu sinni próf!! Ég bara náði aldrei að mæta. Missti alltaf af þessum plebba rútum (var í fyrsta tíma á mið.) Svaf alltaf yfir mig... Svo einn daginn, vaknaði ég heví hress, ætlaði ekki að missa af strætó svo ég fór bara á bíl, keyrði uppí laugardagshöll og bara heví góður á því... Svo er enginn í höllinni... ég bara vot ðe fökk og fór bara að rúnta. Kemst svo að því að tíminn hafði verið í víkingi upp í fossvogi - þar sem ég hafði alltaf misst af rútunni vissi ég nátlega ekkert hvert ég ætti að mæta. Fór svo í einn svoleiðis tíma. Einn sundtíma Eina göngu og svo alla hlauptíma. Rútur eru asnalegar.

Jamms, plata dagsins : The Strokes - Is This It?
You ain't never had nothing I wanted but, I want it all, I just can't figure out, nothing.
En í gær var það : Belle & Sebastian - If Your'e Feeling Sinister
Can I write a requiem for you when your dead?


21.5.03
 
Jæja, þá er þriðjudagur. . . . . ekkert að gera í fríinu nema að hanga í miðbænum og skoða sömu vörunar aftur og aftur og aftur og aftur....
Ég fór að skoða gömlu geisladiskana mína í dag. Ég fann Moby diskin, Play og setti hann í spilaran.... heví góður diskur, maður hætti alveg að hlusta á þetta þegar allar auglýsingar innihéldu lög eftir kallin.... En svo hættu auglýsingarnar að nauðga litlu grænmetisætuni og núna er bara hægt að hlusta á þetta aftur. Góð pæling. Heví góð pæling.
Vinkona mín klippti mig svo áðan. Hún hefur aldrei lært hárgreiðslu eða neitt svoleiðis en það sem hún getur skapað með skærum ..... bjútiful, bjútiful end íven mor bjútifúl.
Maður er bara svona helvíti ferskur þessa dagana.

Svo sá maður myndbandið fyrir There, There mjög flott myndband, næstum jafn súrt og Knives Out .... Hann Tommi minn breytist í tré í lokin. Ég á eftir að velta mér uppúr symbolismanum næstu vikurnar. Bara vika í smákífuna!!!!
Svo fer ég á tónleika með útvarpshausnum í Nóvember, í London. Mér er alveg sama þó ég þurfi að fara einn. Ég ætla að fara!!!!

Plata dagsins er Moby - Play
Don't nobody know my troubles but God...


19.5.03
 
Ég taldi dósir og flöskur í ruslapoka í dag - djöfull var það leiðinlegt 6 svartir ruslapokar og ég þurfti að telja oní þá. Fékk ekki einu sinni borgað fyrir það, fór með gömul dagblöð líka í sorpu - fæ engar þakkir. Ég ætla að lögsækja pabba minn.
Ég fór líka að leita af vinnu. Ítrekaði í Aktu Taktu, fór í Skífu og Japis, Bónusvídeo og Dominos, 11-11 og 10-11. Og Ikea. Og Fjölskyldu- og Húsdýragrðinn. Allt fullt nema á Dominos og Aktu Taktu. Ég mátti bara sækja um á netinu hjá Dominos. Það væri örugglega gaman að svara í símann hjá Dominos. Bulla í fólki. Maður væri samt líklega rekinn. Það er samt miklu skemmtilegra að bulla í afgreiðslufólki í símanum hjá Dominos.
Kúnni: Ég ætla að fá stóra pizzu með pepperoni, skínku og sveppum - mikið af sveppum, alls ekki gleyma þeim
Afgr: Já, má bjóða þér Brauðstangir og Ískalda Kók með þessu?
Kúnni: Jú takk, en ekki gleyma sveppunum - þeir eru lang mikilvægastir
Afgr: Allt í lagi, það er þá 15 tommu pizza með pepperoni, skínku og miklum sveppum, brauðstangir og 2l. Kók
Kúnni: Akkúrat - ekki gleyma sveppunum
Afgr: Þetta eru þá 2630 kr. og mátt sækja á Skúlagötu eftir 20. mín - hálftíma.
Kúnni: Já takk - og mundu - alls enga sveppi!! *skella strax á*

Karlinn í 10-11 á Hverfisgötu var mesti blumbi sem ég hef séð. Hann sat inni í kaffistofu og breyttist æi hund þegar hann talaði við mig - urraði og sagði NEI það er ekkert laust. Ég þakkaði fyrir mig kurteisislega og svo beit hann af mér löppina - ég þurfti að fara á slýsó á eigin bíl og láta græða á mig nýja löpp. Það verður ekki til í gervilöpp í nokkurn tíma svo að núna er ég með tréfót.

Plata dagsins er Blur - Think Tank
We got a file on you!!
Að telja dósir og flöskur í poka er mjög leiðinlegt, þessi diskur hélt mér gangandi.

P.S. Pistill gærdagsins hefur aðeins verið skoðaður betur. Efnið aðeins útpældari.


18.5.03
 
Fullu fólki er ekki treystandi. Ég ætlaði að fara á tónleikana sem voru á Grand Rokk í gær... Mínar uppáhalds íslensku rokksveitir að spila - Maus, Botnleðja og Vínyll auk Dáðadrengja og Haltri Hóru. Félagi minn og trommuleikari ætlaði með mér á þessa tónleika þar sem engin annar nennti að fara. Þessi ungi sveinn fór á fyllerí í árbænum og hringdi ég í hann með nokkru millibili - ertu ekki að fara að koma? Þá var hann held ég í þrjú skipti „á leið í eitt partí í viðbót“ Ég gafst upp á drengnum kl. eitthvað og fór hrikalega fúll heim. Uppi í rúmi las ég nýjast tölublað The Face og rakst á viðtal við mannin sem stofnaði lesbíu poppdúettin t.A.T.u. Auk þess að vera umboðsmaður einhverjar léglegustu hljómsveitar nútímans er þessi maður mikill heimspekingur og vöktu pælingar hans athygli mína nokkuð mikið.
„I want to cure feelings of fear in people. Pornography is a good feild for it. Because society, schools, church and religion - all press down on people and make them afraid. Man is afraid of church and is afraid of society. The reason for war is being afraid. The reason for the Iraq conflict is that he is afraid. It is not money. it is the feeling of fear. America is afraid. Iraq is afraid too. Hann er að reyna það sama og var reynt með Sex Pistols að sjokkera fólk með þeirri stefnu að láta fólk finna fyrir raunveruleikanum. Seinna í viðtalinu segir hann People have got to understand why they are living. People in the U.S. don't know why they are living. They forget. We have to understand why we are living and what dying means, or we start to be afraid of pornography and we start to be afraid of many things. That's what I've been thinking. Það er nokkuð í þessum pælingum, fólk er alveg að gleyma ástæðuna fyrir lífi, fólk er ekki sátt við dauðann, það er hrætt við hann - þar af leiðandi er það hrætt við klám og hvað nágrannakonan gæti hafa verið að segja um þig. Hann sagði einnig að í Indlandi þar sem voru litlar reglur fann hann fyrir meiri hamingju og meiri skilningi á lífinu. „We are living in a karaoke world“ Karaoke þýðir dauð hljómsveit - Heimurinn er dauður en þykist vera lifandi fólk þarf að finna fyrir lífinu, vera meðvitaðri um að einhvern tíman munum við deyja og hætta að vera hrætt við allt. Lesið þessa grein endilega - The Face, June 2003

Nýi Radiohead diskurinn kemur út eftir 22 daga!!

Plata dagsins er Aphex Twin - Drukqs


17.5.03
 
Jamm, það er búið að vera heví
Hví er fólk að taka þátt í svona raunveruleikaþáttum?? Þeir eru ekki einu sinni raunverulegir... Hvaða manneskja færi að velja sér mann úr 20 manna hópi sem henni var útvegaður til að giftast? Ég myndi aldrei meika að taka þátt í svona, einhver kona að eyðileggja á manni tilfinningarnar fyrir framan milljónir manna með því að velja hinn gaurinn, kannski er hinn gaurinn ekki einu sinni að fíla hjónaband meðan aðrir væla yfir hversu fullkomin þessi kona sé, raunveruleika þættir eru ekkert grín... þetta er stóralvarlegt mál, ég stofna til fjöldamótmæla fyrir framan Bandaríska sendiráðið kl: 03:47 aðfaranótt mánudags 19.maí - Niður með Bachelor! Fleiri teiknimyndir!!
Hvað varð um allar stuttu teiknimyndirnar sem voru alltaf á milli sjónvarpsþátta? Litlu leirkarlarnir sem gátu breytt sér í hvað sem er... og strikið sem talaði í bullmáli....
BLEIKI PARDUSINN!!!!! snökt
Í gær var haldið í heljarinnar ferð í sumarbústaðinn minn og próflokum fagnað með pompi og prakt.
Poppin' Kristel við mæ hómís
Það komu nokkrir kvennskælingar til okkar og gáðu hvort það væri „brjálað partí“ við sögðum þeim að koma bara oní pott, en þau vildu það ekki - það er ekkert partí án kvennskælinga í heitum potti! eins og enginn orti.
Svo vaknaði maður við heví læti í ónefndum úlfi sem hótaði að hella fötu af vatni yfir mann ef maður kæmi ekki í brennó. Það var öskrað á hann af ógurlegum krafti og skaust úlfurinn upp á klett og ýlfraði eins og hann ætti lífið að leysa.
Svo fengum við pönnukökur eða „crépes“ í morgunmat og einnig mjög ferska og exótíska ávexti... kreizí sjitt æ tell jú.
Svo var farið í Eden á leiðinni til baka og rifist um hvað grænmeti væri í raun og veru.
Svo bauð ég Bóbó bóbó.
Plata dagsins í gær var The Ramones - The Ramones
Hey, ho, let's go!!
en í dag er það Beck - Mutations
I've been looking for my shadow, but this place is so bright and so clean


15.5.03
 
Beck er heví sexí gaur!!!
Lady, step inside my Hyundai


 
Skráið ykkur endilega á innkaupalistan minn


 
Núna á hverjum degi verður pistillinn plata dagsins
Í dag er það Anti-Pop Consortium - Arrythmia
Got a problem that I can´t fix, then just deal with it


 
mmm... Það er komið sumar!!! Loksins!!! Enginn skóli, engin vinna (ennþá) og bara alger slökun og nautn
„these are the best days of your lives“
Jæja, núna getur maður farið að djamma! MH prófin búin og allir í góðu skapi.... Ég fer út í sumarbústað með mínum helstu vinum á morgun. Þetta er það eina sem hélt mér gangandi í gegnum prófin... ég hefði aldrei verið svona duglegur við að læra hefði ég ekki haft neitt til að hlakka til, þetta verður heví gaman, heitur pottur, grillmatur, kampavín og kósí fílingur. Gúd Sjitt!!
Ég horfði á mynd Michael Gondry Human Nature í gær... þetta er virkilega góð mynd. Heví pælingar gagnvart nútíma samfélagi og geðveikur húmor, enda voru einhver besti handritshöfundur nútímans að baki - Charlie Kaufmann - Maðurinn á bak við Being John Malkovich og Adaption... Allir eiga að leigja sér þessa mynd eins fljótt og mögulegt er.



14.5.03
 
Sját át tú Eyþór fyrir að vera plöggari andskotans - Æ vont tú hev jor beibí


 
Hahahahahahahaha ha ha haha hahaha ha ha ha?
Núna ætla ég að byrja að blogga... herma eftir öllu þessu fólki sem hefur ákveðið að láta skoðanir koma fram á almannafæri og láta vita af sínu daglega amstri - eða sínum daglega hamstri..... Ég heiti Pétur. Ég er fæddur á Íslandi og uppalinn í Bretlandseyjum. Svo var ég endurmótaður á Íslandi.

Ég er búinn í prófum!!! Það var hrikalega gaman í svona tvo klukkutíma. Svo komst ég að þeirri staðreynd að það er gjörsamlega ekkert að gera í þessari viku milli prófloka og staðfestingadags.... nema að djamma, en ég gerði það ekki í gærkveldi þar sem flestir vinir mínir eru ennþá í prófum. Ég sit bara og væli heima hjá mér...
Ég horfði samt á Matrix í gær .... alveg hrikaleg tilhlökkun í næstu mynd. Hún er samt örugglega leiðinleg - svo mikil tilhlökkun í myndina að maður á pottþétt eftir að verða fyrir vonbrigðum.

Ég á ekki daglegan hamstur.

Það sem ég ætla að gera í sumar:
Skapa tónlist.
Hlusta á tónlist.
Kaupa tónlist.
Lesa heimspeki.
Vinna í götuleikhúsinu.
Grilla hamborgara
Reyna að eyða ekki of miklum pening
Redda mér miða og flugmiða á Radiohead tónleika einhversstaðar í veröldinni
Hanna föt
Gera listaverk
Gera eitthvað meira skapandi