be[¡]kon

30.11.05
 
ÞEMAVIKA #1 - BARNAHATUR

Börn
Búa ofan í tjörn
rífum úr þeim görn
eins og villtur örn.

Hatur
Samasem matur
fyrir þann sem er latur
og rosalega dapur.


29.11.05
 
ÞEMAVIKA #1 - BARNAHATUR

ég ákvað þetta þema í gær. í gær var myrkur klukkan 9:30. þá byrja frímínútur. ég var þreyttur, óglaður og það var mánudagur. Í frímínútum hef ég það hlutverk að fylgjast með einum strák. Venjulega heldur hann sér í sama tækinu og er þar allan tímann. Í gær ákvað hann að hlaupa út um allt og prufa öll hin tækin. Og ég á eftir, þreyttur, nýbúinn að þurfa að elta krakka undir borð og stanslaust að segja þeim að "hafa ekki svona hátt". því það var mánudagur og það var kalt og það var dimmt. Og börnin voru bara ekkert skemmtileg.
Í huganum sagði ég aftur og aftur: "Ég hata börn núna"

Í hádeginu fór ég með nokkrum unglingum í matsal til þess að njóta ógeðslega matarins í mötuneytinu. neinei ókei það er alveg fínn matur.
Tvær vinkonur í salnum voru búnar að borða og stóðu upp. Báðar vel yfir kjörþyngd. Ein missir jafnvægið aðeins.
Jújú, ég hneykslast smá á hvað þær væru nú feitar, en ekkert meira, hugsa bara "æjæj"
EN. ekki unglingarnir. Um leið og þær eru farnar útúr salnum byrja allir að Hlæja. HLÆJA. Einn strákur stendur upp og gerir grín að aumingja stelpuni, allir hlæja að honum.

Hvernig í andskotanum er þetta hægt? Ég meina það hlýtur að vera ástæða fyrir því að stelpurnar séu svona. Og það er ekkert til að grínast með. Guð hvað mig langaði til að slá þennan strák aðeins til þarna í gær, þegar það var kalt og frekar dimmt og mánudagur.


28.11.05
 
ÞEMAVIKA #1 - BARNAHATUR



27.11.05