be[¡]kon

29.5.04
 
Hérna. Ég er svangur og loksins er kominn fyrsti gesturinn í þetta bassapartí sem ég er að halda.

Annars er hérna eitthvað sem ég vil sýna ykkur. Ef þetta er satt er þetta alveg frekar fúlt og ömurlegt.

Ef ekki er þetta eitt besta skipulagða gabb í heimi.

Takk.

Plötur:
The Cure - Disintegration
Joy Division - Unknown Pleasures


25.5.04
 
Þá er ég byrjaður að vinna... Og er þetta alveg hin fínasta vinna. Sláttur og allt tilheyrandi í borgargörðunum í laugardal. Ég var að búast við einhverju svaka puði og púli og einhverjum hnakka-kollegum, en þetta er bara fínasta fólk, m.a. er Jón Þór annar gítarleikari Ísidor annar flokkstjórinn minn, það hlýtur nú bara að teljast frekar fínt. Svo er maður bara annaðhvort að slá eitthvað svona dót með Sonic Youth í eyrunum (og allt í kring líka...) eða þá bara með hrífu í hendi og gott spjall við gott fólk... jájájá. Annars eru líka fullt af svona man-jobs "sem að stelpurnar/kjeellingarnar ráða ekki við" (Tjaa... yfirflokkstjórinn er svona útbrunninn þrítugur "karlmaður")eins og að flytja bekki um allan garð og keyra um í pallbílum og gá hvort að það sé nokkuð af pokum svona á svæðinu.

Svo er Erla þarna í næsta bæ við, skrúðgörðunum... og Björg hinu megin í Grasagörðunum, svo er Frikki á vappi þarna í Húsdýra og Fjölskyldugarðinum... ægilega fínt.

Allavega, ég er búinn að velja mér nýja uppáhaldsmynd. Hún heitir 24 Hour Party People og fjallar um hið frábæra tónlistarlíf í Manchester frá 76 - 92 minnir mig, Joy Division, Happy Mondays og hinn frábæra pródúser Martin Hannet og svo auðvitað ris og hrun Factory Records.
Alveg ótrúlega skemmtileg mynd fyrir þá sem fíla breta og indí tónlist.
Einnig fannst mér athyglisvert að sjá Happy Mondays þarna á ferð og hugsa, heyrðu þeir spiluðu í muthafuckin' NKJ fyrir tæpum 15 árum... (15 ár??!!! sjitt... ðö næntís eru bara óld njús... sjitt...!) Afhverju eru ekki einhverjar góðar erlendar hip indí sveitir að spila í NKJ í dag? Ha? Ég vil fá The Unicorns skiluru... kannski maður sendi þeim ímeil og fái þá til landsins.. þeir geta bara gist í stofunni í nýja húsinu! Mega Mad-Sex.
... The Unicorns á innipúkan! það væri tilvalið, krakkar... hugsa sér line-öppið... Mugison, Hudson Wayne, Dáðadrengir jafnvel eða Mammút?, Trabant, Rúnk og The Unicorns! frábært!

Jamms og kjamms, nóg í dag...

Plötur:
Portishead - Portishead

Sonic Youth - Dirty

The Streets - Original Pirate Material


23.5.04
 
Vúhú! ójá! núna er hægt að downloada topp 5 lögunum í hverri viku! Alltaf nýtt á fimmtudögum þannig að ekki láta það bíða... þetta er ekki allt mp3 eins og er en ég á eftir að bæta það seinna... party on!!! Farið hingað til að skoða kræsingarnar... Beikonlistar

eða klikkið á linkinn hér til vinstri...


21.5.04
 
Ég fór líka á þessa hrikalega fínu listdans-sýningu, Hibiki í gær hjá Sankai Juku dansflokknum frá hinu geysilega fína austur-landi, Japan... draumastaðurinn minn... Tokyo, Osaka, Kyoto, Hiroshima... úlala. Allavega, þetta voru 6 karlar sem dönsuðu þessa fínu dansgrein sem kallast Buto en þar er voða mikið pælt í öllum smáhreyfingum eins og hreyfingum í fingrum, hálsi og andliti. Gerðu þeir þetta rosalega fallega og tóku þeir alveg góðan tíma í þetta allt saman.

Svo tóku þeir með sér til landsins 6 glerlinsur sem þeir fylltu af vatni og nokkur tonn af sandi, en sviðið var þakið í því efni... ekki vildi ég vera sá sem þreif það upp. Eftir sýninguna kom þessi svakalega artí hneiging síðan. Þá vaknaði upp spurningin: Ætli þeir séu svona ótrúlega rólegir og alvarlegir ekki á sýningartíma eða eru þeir svona - "Jéée.... förum og fögnum sýningunni! Fáum okkur feitan bjór, maður, já!"

"Þorsteinn Kári kjútípæ gerði sér lítið fyrir og bjargaði deginum." sagði Aldís einn daginn í góðri færslu og vildi ég segja að hann sé alveg svoldið mikið í því að bjarga manni... Hann nefnilega lánaði mér bók í gær sem heitir Á morgun segir sá lati og er hún einhverskonar leiðarvísir að því að vinna bug á svokallaðri frestunar-áráttu sem ég ku vera haldinn og varð til þess að ég féll í 3 áföngum núna seinast og hrikalegu gengi mínu í skólanum og hefur líka átt þátt í að klúðra ýmsum öðrum hlutum sem ég tala ekki um hér auk þess að fara í taugarnar á alveg gífurlega mörgum vinum og vandamönnum.
En eftir að hafa lesið einungis tvo kafla, kom ég mér strax á fætur um leið og vekjaraklukkan hringdi og kláraði öll þau verk sem ég ætlaði mér að klára í dag, en vanalega hefði það tekið mig svona 2 vikur. Ég þakka kærlega fyrir mig, Þorsteinn og hvet ég alla til þess að taka að ofan fyrir þessum manni.

Plötur:
Radiohead - The Bends

Liars - They Threw Us All In A Trench And Stuck A Monument On Top


19.5.04
 
Fallinn, með 4,9!! dúrúdúrúúú dúrú dúrúrúúú!!
Tja, ég náði 11 einingum af 20 sem hlýtur að teljast slæmt. Núna er staðfest að ég klári á 9 önnum og að ég þurfi aðstoð við þessa óumflýanlegu leti mína.

Ég held að þessi gríðarlega aukandi tölvunotkun mín sé að eyðillegja athyglis-gáfur mínar og einn daginn mun ég ekki lengur geta pantað mér pizzu vegna þess að ég mun alltaf gleyma því að sækja hana. Eða bara nenna því ekki, fresta alltaf og fresta. En til að fagna einkunum mínum breytti ég litadýrðini á síðunni minni svo að hún nái alveg örugglega athygli minni og annara líka í leiðinni. Svo var líka orðið svo leiðinlegt að lesa þetta, þetta var svo grátt og svona, þannig að hey! presto! Fjólublátt! Gult! Bleikt! trúlí ameizinglí osöm dúd!
Ég er samt alls ekki sá eini sem hefur svona gífurlega lítið attention-span... það eru alltaf fleiri og fleiri að bætast í þennan hóp. Þetta hefur auðvitað alltaf fylgt aldrinum, það hafa nú allir tekið eftir því þegar pabbi manns þykist vera að hlusta á mann og 30 mín. seinna segir hann, ha? varstu að segja eitthvað? Samt eru já-in og hmm-in öll staðsett á réttan stað. Merkilegir hæfileikar. En svo tek ég eftir þessu hjá litla bróður mínum, eftir að hann komst í tölvur hefur vilji hans til að vera lengi í einhverju í einu farið minnkandi og minnkandi, áhugaleysið eykst og ég er bara skíthræddur um að börn morgundagsins eiga eftir að halda áfram þessum ósiðlega repúblíkanisma. Já, hann er sóðalegur.
Kannski munu samt börn barna okkar vinna bug á þessu, ég meina mannkynið er enn að aðlaga sig, ætli það aðlagi sig ekki þessarri rosalegu tölvunotkun sem er að skemma heila æskunnar í dag?
Það er barasta aldrei að vita.


Plötur:
The Rapture - Out Of The Races And Onto The Tracks

Pixies - Bossanova


18.5.04
 
Er ég kom heim á föstudagskvöldið var orðið svoldið seint og allir í húsinu sofandi. Það var dimmt og hljótt.
Ég gekk inn og sá að á eldhús-bekknum blasti við mín bréf.Það var stílað á mitt nafn. Ég opna það snögglega í von um að stórar peninga-upphæðir eða atvinnu tækifæri biðu mín þar ofaní, en bréfið var ekki frá neinum milljónamæring, en það var frá stórfyrirtæki. Blaða-útgáfu fyrirtæki. Sama fyrirtækið og gefur út blaðið, blaðið sem ég er áskrifandi að, hið eina og sanna andlit.
Í bréfinu stóð eftirfarandi:
Dear Mr. Eggertsson
We regret to inform you, bla, bla, bla, bla, bla, bla, that THE FACE has ceased publication bla, bla, bla, bla, bla, we will refund your money.

Ég var orðlaus.

The Face ei meir? Getur það verið? Nenna þeir kannski ekki lengur að senda til Íslands og eru bara að búa þetta til?

Ég vissi ekki hvort ég ætti að gráta, hlæja eða bara detta á gólfið og vakna aftur í rúminu mín, þar sem þetta væri hrikalegur draumur?

Hvað á ég núna að lesa?

NME er alltof stutt, Q er aðeins of plebbalegt, FHM er ömurlegt, Vogue og Cosmopolitan eru kvennablöð... hvað hef ég?
Wallpaper?
máske.
Ég verð nú virkilega að leggja höfuðið í bleyti vegna þessa.

Ég fór uppí sumarbústað um helgina. Það var gaman.

Eftir góða kaffihúsaferð í gær eftir kóræfingu komst ég að því að ég hafi verið lyklalaus. Klukkan var eitt og ég nennti ekki, enn einu sinni, að dingla bjöllunni þarna fyrir ofan. Ég ákvað að skríða í gegnum stofugluggan í kjallaranum. Hann var ekki opinn. Glugginn í herbergið mitt var samt næstum því opinn. Vopnaður bíllykil, hékk ég þarna fyrir utan, fyrir neðan útipallinn sem stendur einmitt yfir glugganum, í 10 mínútur að lyfta gluggafestingar-gaurnum með bíllykli.
Sad case.

Plötur:
Goldfrapp - Black Cherry

The Unicorns - Who Will Cut Our Hair When We're Gone?

The Rapture - Echoes



15.5.04
 
Jájájá... ég fór á tónleika í gær, og barasta, fór á, þúst, Eldsmiðjuna á undan. Mmmm. Þar eru góðar pizzur. Og ekki er verra að hafa góðan félagsskap með sér. Þar var gott álegg í boði, en ég ætla ekki að telja það upp því það væri leiðinlegt.
Síðan fór ég barasta til Erlu, sem á nota bene heima við hliðina á the fire factory. Hún var kósí in ðö kókónött og spilaði á píanó fyrir okkur. Svo fóru stelpurnar og mamma hennar Erlu "þóttist vera myndarleg" (Erla, 14.05) og steikti pönnsur. Jömmí.
Svo hættum við að borða pönnukökur og klæddum okkur í útiskó, eftir að hafa talað við þennann. En hann hitti okkur bara á Grand Rokk, þar sem við biðum öll í svona 2 helvítis tíma eftir tónleikunum, því að það var ekki nógu mikið af fólki mætt þarna klukkan 10... þannig að Jan Mayen spilaði ekkert. En line-uppið var síðan Kimono, Snacktruck og Face & Lungs. Kimono byrjuðu að spila útfrá einhverju sem hljómaði eins og sándtjékk, trommarinn byrjaði eitthvað að trommast og allir voru barasta að stilla og svo bara, allt í einu, alveg uppúr þurru, eins og þruma úr heiðskýru lofti... byrjuðu þeir að spila. Og gerðu það vel. Þeir eiga þetta alveg fyrir sér, kapparnir... Spiluðu eitthvað af nýju efni, heyrðist mér og svona, spennandi...
Allavega. Snacktruck spiluðu næst. Þeir voru "Geeeðððveeiikkir" (Þorleifur, 15.05)
Fáránlega góðir hljóðfæraleikar. Báðir. Trommuleikari/söng-eitthvað og Gítarleikari/söng-eitthvað. Trommuleikarinn byrjaði á að öskra eitthvað sem hljómaði eins og japanska, og svo byrjuðu þeir að spila. Í miðju lagi stóð trommarinn upp og fór að spila á trommukjuðana sína, veggina, pípulagningarnar og allt sem hann komst í beisikallí á meðan gítarleikarinn spilaði fyrir þá báða og alla ósýnilegu gaurana í hljómsveitinni, þar sem maður trúði varla að þeir höfðu verið tveir. Maður var alltaf að leita af hinum gítarleikaranum. En kallinn kunni svo vel á fídbakkinn sinn að bara. Hei.
Eftir tónleikana erum við krakkarnir síðan að leita af merchandise, en komumst svo að því að við barasta eigum ekkert kassj. Það var víst ekki hægt að taka fram yfir á kredit korti, þannig að við þurftum að bíta í súrt og fá aldrei nokkurntíman að eignast disk. Svo barasta spyr Erla trommuleikaran hvort að þetta myndi fást eitthvað áfram á íslandi, og hann sagði "no, but I'd rather you have one than not, so here you go, og barasta gaf henni demó.." Svo spiluðu Face & Lungs. Þeir voru fínir. Bassaleikarinn átti flottan bassa og sniðugan mæk en við gáfumst upp eftir nokkur lög, enda voru bjórinn og dillon virkilega farin að kalla á okkur. Þar var nóg af fólki hvort sem það var búið í prófum eða bara ennþá í þeim og góð tónlist að vana, fyrir utan smók-alarmið sem fór af stða svona 5 sinnum inní Love Will Tear Us Apart með snillingunum í Joy Division.
Enívei, ég er að fara uppí sumó með skemmtilegu fólki, endurtekning á sama atburð og í fyrra.... Sem minnir mig! Bloggið mitt á afmæli, krakkar! Ha! jessíjess, búnað vera að í heilt ár, helvíti þétt marr...

Plötur:
Broken Social Scene - You Forgot It In People

The Von Bondies - Pawn Shoppe Heart



14.5.04
 
Hvað er málið með þennan blogger gaur? Eitthvað njú end "imprúvd" lúkk... Mér finnst þetta ekkert auðveldara til notkunar. Fokking Fokk.

Annars langar mig að gifta mig. Búnað vera að fylgjast önnum kafin með brúðkaupinu í Köbenhavn hérna síðustu tvo tímana, alveg makalaust skal ég segja ykkur. Samt fyndið hvernig fullt af erlendu konungsfólki var troðið í eina rútu sem keyrði að kirkjunni, og svo var ekki einu sinni stigi út, þannig að allt þetta fólk í síðum kjólum og hershöfðingja-dressi þurfti að hoppa út... Og labba svo nokkra metra á skítugu götunni að rauða dreglinum.

Veit einhver um einhvern sem vill ráða mig í sumarvinnu?

Plata dagsins:
Broken Social Scene - You Forgot It In People


9.5.04
 
Djöfull bjó ég til geðveikt Swiss Mokka áðan! Einfalt flýtikaffi, tvær tsk. Sviss-frú, hitað vatn, þeytt mjólkurkrem og súkkulaði álegg frá Hollandi (svona spænir sem að fólk setur ofan á brauð...!!?) Verí dílisjös... ég hélt að það myndi ekki ganga og bragðast eins og kaffi með swiss miss, en það bragðast bara eins og alvöru swiss mokka... mjög feitt.
Svo hef ég líka verið að dunda mér við allskonar nýjungar í grillaðri brauðmennsku.. svo sem með kjúklinga karríi, allskonar kryddi, mismikið af osti og mismunandi feiti.... namminamm.
Einnig hef ég búið til nokkra svona "best of" diska með mínum uppáhalds hljómsveitum, núna fyrir valinu voru Air, Belle & Sebastian og Pixies, enda góðar sveitir sem hafa allar gefið út 5 eða fleiri diska. Það er mjög gaman að svona.. skipuleggja þá, velja hvenær þetta lag kemur, útiloka svona lög svo að það komist fyrir á 80 mín. disk... úje beibí... step intú mæ offiss!
Svo er mjög gott til að stytta sér stundir, að taka upp helstu myndbönd af sjónvarpinu, til að eiga í framtíð, en ég hef nú gert lítið af því... enda lítið úrval á sjónvarpinu, nema á skjá einum EN ÞAÐ ER ALLT ENDURTEKIÐ 1700 SINNUM Á DAG! Og svo ruglaðist MTV aftur... fokking sjitt.

Hvað gerir maður ekki til að forðast próflestur?

Svar:
a) Veiða hákarl með lifandi, mennskri beitu?
b) Fylla baðkar af bláu m og m-i, borða það allt og gá hvort maður fái krabbamein?
c) Fara til Akureyris?
d) Dæla úr systkinum sínum?

Plötur dagsins!!!!!!!!!!! JÁ!!!!!!!!!
Belle & Sebastian - Fold Your Hands Child, You Walk Like A Peasant

The kids are melting in the doorway
Belle & Sebastian - The Boy With The Arab Strap

Say cheerio to books now, the only things I'll read are faces


8.5.04
 
Langir prófdagar eru ekki málið. Ég þarf tónlist. Alltaf. Helst háværa. Ég dett úr jafnvægi ef ég heyri ekki háværa tónlist af og til. Þegar það eru engar hljómsvetiaræfingar, verð ég algerlega hugsunar og einbeitingarlaus. Fyrir utan að geta hugsað um tónlist. Er þetta fíkn? Ég vissi ekki að það væri hægt. Hávaða fíkn, tónleikafíkn, geisladiska-eignar-fíkn. Tónlistarfíkn. Þetta er engin slæm fíkn, jújú, þetta kostar pening (eins og allt) en sem betur fer fæ ég engan sjúkdóm útfrá þessu. Þvert á móti, ég lifi á þessu. Ég get ekki ímyndað mér hvað skyldi verða um mig ef ég myndi klúðra tónlistarnáminu mínu (eins og öðru námi... eðá, þúst, lágmarkseinkunn dugar ekki í alvöru námi). Það myndi sogast úr mér allur vilji.. ég hefði engan drifkraft. Myndi ég ekki bara visna og deyja? Tónleikar? Ég myndi náttúrulega eyða öllum penging sem ég gæti eytt í þá. Ég þarf að eiga tónlistarferil í framtíðini. Annars gæti ég alveg eins farið á elliheimili og barðað sagógrjón í öll mál. Með kanilsykri. Namm. (Ágætis hugmynd reyndar, kannski maður bara leggi sig inn...?) Mér finnst ég bara ætti að vera strax kominn á framabraut. Ég er búinn að koma mér í eitthvert hálfgert vonleysi. Allskonar fólk í kringum mig er svo ofboðslega klárt í svona lögðu, jújú, ég er alveg klár, en bara ekki nóg... ekki eins og aðrir. Þetta fólk er líka metnaðarfylrra, gerir hluti sem ég vill gera en geri bara ekki, eyðir peningnum sínum í hljóðfæri og svoleiðis, í staðinn fyrir geisladiska. Ég er 18 ára og mér finnst ég vera búinn að klúðra starfsferil mínum. Allt útaf einhverri helvítis minnimáttarkennd. Það er samt út í hött að gefast upp núna.
Pródúser? Vonandi. Ég kann samt ekkert á þetta, og fullt af fólki í kringum mig er alveg á fullu í þessu, sjálflært, því það ákvað að kaupa græjurnar og leggja þetta fyrir sig. Strax. Ég kann ekki jack shit. Og ég stefni á nám 22 ára. Er það ekki asnalegt? Ætli það nokkuð...
Ég þarf að læra á gítar. 1,2 og byrja.
Ef þið hafið lesið þetta allt, þá eruð þið virkilega ótrúleg og ég þakka ykkur fyrir.

Plötur dagsins:
Air - Moon Safari

My baby blue, is a new star in the sky
Belle & Sebastian - Tigermilk

For every step, there is a local boy who wants to be a hero


4.5.04
 


barað prófa...