be[¡]kon |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
div class="%20ut&%20yfir&%20inn&%20undir"
align="center" color="#FFFFFF"
[/table]
Archives Apríl 2008 Mars 2008 Febrúar 2008 Janúar 2008 Desember 2007 Nóvember 2007 Október 2007 September 2007 Ágúst 2007 Júlí 2007 Júní 2007 Maí 2007 Apríl 2007 Mars 2007 Febrúar 2007 Janúar 2007 Desember 2006 Nóvember 2006 Október 2006 September 2006 Ágúst 2006 Júlí 2006 Júní 2006 Maí 2006 Apríl 2006 Mars 2006 Febrúar 2006 Janúar 2006 Desember 2005 Nóvember 2005 Október 2005 September 2005 Ágúst 2005 Júlí 2005 Júní 2005 Maí 2005 Apríl 2005 Mars 2005 Febrúar 2005 Janúar 2005 Desember 2004 Nóvember 2004 Október 2004 September 2004 Agúst 2004 Júlí 2004 Júní 2004 Maí 2004 Apríl 2004 Mars 2004 Febrúar 2004 Janúar 2004 Desember 2003 Nóvember 2003 Október 2003 September 2003 Ágúst 2003 Júlí 2003 Júní 2003 Maí 2003 |
30.8.03
Its von ov ðós deis.
Meður er eikkað so bjullí, vaknar seint, grátt veður, maður fer í bæin til að hífa sig aðeins upp en svo á maður engan pening og maður fer heim og reynir að skapa eitthvað, t.d. tónverk eða hanna einhverja flík en maður hættir svo við því maður vill frekar borða og klárar sköpunina seinna í vikunni. En núna skapaði ég mat. Ég og hún Steinunn bjuggum til Kínverska útgáfu af "Pínödbötter en djellí" en við smurðum brauðsneiðar með hnetusmjöri og skárum í ferninga og höfðum sólberjahlaup með og dýfðum brauðinu ofaní með prjónum. Drukkum svo kakómalt með sem var í stóru Latte glösunum sem ég tók með heim frá Svíþjóð en hér kemur sagan af því: Á lestarstöðinni á leið út á flugvöll var sona lítil kaffibúð. Mamma og Pabbi voru nýbúin að eignast kaffivél og mér fannst vanta svo kaffiglös. Ég fer á afgreiðsluborð með 4 glös og ætla að borga með kortinu mínu og afgreiðslustúlkan segir, sorrí böt ðers sömþing rong við jor kard... ég bjóst náttlega við að það var vegna þess að kortið var erlent svo ég hleyp í hrað banka og reynað taka út pening en þá er ég bara búinn með peningin minn eða sona flest og gat ekki tekið út 100SEK svo ég fer aftur og segi, "æl pei við ðís hír 29krónurs end træ ðe rest við ðe kard"... hún eikkað "ók" og svo bara "sorrí"... ég bara "træ þrí glassis" og aftur bara "sorrí" svo fer yfirmaðurinn hennar inn í tjillstað starfsfólks og hún tekur þessar tuttuguogníu krónur sem ég átti í klinki og lætur mig hafa öll 4 glösin og bara "uss" og ég bara "þenk jú fabjúlös pörsön" og bara verð rosalega klökkur... og hún brosir voða hlýlega og bara vá. Eitt glas kostaði 35. Ég mætti náunga niðrá bankastræti í ljósbláum jakkafötum með glitrandifjólubláa hárkollu sem spurði mig mjös skemmtilegra spurninga eins og "hvaða varnir notar þú" Svar: "Derhúfuna mína" og "hver á frumkvæðið" Svar: "Jón Sigurðsson" og fl. og svo reyndi hann að selja mér kvennanærbuxur. Kómískt. Plötur: Beck - Midnite Vultures Lady, step inside my Hyundai The Eighties Matchbox B-Line Disaster - Hörse of the Dög I drink all night and I sleep all day Anti-pop Consortium - Arrythmia She laughed, asked me if I knew Mike Zane, in 15 I was like "not really, no" "I know he's got that blow" I was like "oh" took a picture of that body in my mind, yo, than it was time to go. Mig langar náttlega í eikkað... Ný heyrnartól Góðan kodda Hvíta Converse skó til að lita og mála. Liti og fatamálingu 27.8.03
Voðalega er gott að hafa fest rætur sínar í MH á ný. Núna er maður orðinn hluti af kúlunni og sit jeg í Norðurkjallara... úúú.... Svo er skólinn líka svo hjartahlýr og listafjelagið á svo sannarlega skilið hrós fyrir átstanding vinnu. Jagúar tónleikar bara fyrstu helgina... verí gúd... og svo MH-hljómsveita tónleikar þann næsta.... Vá og meirasegja Gaur í lænöppinu.... Þetta verður svo sannarlega skemmtilegt... Svo á Leikfjelagið líka skilið smá hrós og Beneventi einnig... Allir eru heví duglegir. Ég hvet alla til að djoina LFMH því það verður voðalega skemmtilegt sniðið núna... Námskeið hefst 8. september nk. og kostar ekkert of marga peninga... Ðis is só kreizí! Ég hvet einnig marga á tónleika 5. sept. nk. í NKJ með skemmtilegum MH-tengdum hljómsveitum (reyndar er þetta sona busa-fríttinn dæmi, en hinir mega alveg koma líka...) meðal annars hin frábæra og umdeilda rokk/popp/djass/jú-neim-it hljómsveit Gaur!
Ef ekki væri fyrir skólanum væri jeg örrugglega vælandi yfir þessu landi. Mig langar svo að fara að kanna ótroðnar slóðir (allaveg þær sem ég hef ekki troðið áður) í Evrópu og Asíu, jafnvel Ástralíu og njóta þar öðruvísi menningarlífs og skoða heimin frá mínu eigin sjónarhorni... ekki leikstjórasjónarhorni. Ég væri svo til í að vera að fara með kórnum til Ástralíu, en neeeeiii.. ég er ekki nógu fokkin' reyndur.... fokking fokk. En allaveganna, hér er plötur helgarinnar og fleirri daga: Beck - Odelay Goin' back to Houston - Do the hot dog dance The Sounds - Living In America Hold on, hold on! The Datsuns - The Datsuns It's been sixteen days since I seen your ass Og svo langar mig í.... Nýja fokking Ravonettes diskin Skrifborðsstól Allar Harry Potter bækurnar Svo er líka komin ný könnun! Jei en samkvæmt síðustu könnun er mjög óþægilegt að tyggja álpappír. 22.8.03
Ég skal bara segja ykkur að ferðin mín til svíþjóðar var bara frekar leiðinleg... Ég bara nenni ekkert að vera segja frá. Bara nokkuð bjullí fílingur og svona. Ok, jú... ég segi sona pínu frá....
Fimmtudagur 14. Ágúst Vaknaði alltof snemma til að fara í flugvél.... aftur. Þegar ég hafði lent þurfti ég að bíða eftir henni Ásu sem var fylgdarkona okkar Ernu (Samstarfsmaður minn frá því í sumar) þarna úti en hún var að koma frá Eistlandi... Ég keypti mér Fanta Lime og sona samloku eins og frá Júmbó.... sem var smurð. Ojjjjjj bara. Þykkt lag af ógeðslegu smjöri. Ég gæti gubbað. Svo lögðum við af stað í bæinn... drösluðumst með töskurnar okkar út um allllt. Rosalega bjullí bær. Ég fékk kötbullar í kvöldmat.... Svo fékk ég að gista á hóteli en þær í einhverju koti lengst upp í sveit sem bauð uppá örrugglega besta útsýnið í Stokkhólm... En ég var nálægar bænum... Það voru síðan 3 sænsk/finnskar Jóhanna Guðrúnir í sama prógrami og við en leiðbeinandi þeirra var óléttur þungarokkari en hún var eina ekki bjullan á staðnum. Einnig voru 2 færeyingar sem voru einnig bjullí og sérstaklega leiðbeinandin... Svo var náungi þarna sem hét Torvald og sonur hans Johannes sem leit alveg eins út og Högni Egilsson.... Ég held að Andri sé bara impostor.... Hinn raunverulegi Andri Egilsson býr í Suður-Stokkhólm og svarar við nafninu Johannes. Plata Dagsins: Radiohead - Hail To The Thief Don't want the loonies taking over Föstudagur 15. Ágúst Ég var túristi þennan dag. Það var ógeðslega leiðinlegt. Það er svo leiðinlegt að vera í stórum hóp og horfa á eikkað sem ein manneskja segir að sé ógeðslega flott og maður fær kannski ekki að sjá nógu vel og maður fær ekki kannski að skoða það sem að þér, persónulega finnst flott.... Ég ætla aldrei aftur í sona gædid túr... Ömurlegt. Þegar ég fer til útlanda þá vil ég sjálfur fara og skoða hluti og vera rosalega anti-tourist eikkað, helst ekki líta á kortið því það er svo gaman að villast á stöðum sem maður þekkir ekki... þá fer maður að þekkja þá betur og rata og sona... Það var mjög pirrandi að allir á staðnum töluðu sænsku. Nema ég og Erna og við hlustuðum á margan fyrirlesturinn og skildum ekki baun... sona annað hvert orð en maður náði aldrei að búa til eikkað samhengi. Plata Dagsins: Yeah Yeah Yeahs - Yeah Yeah Yeahs (Bang!) Shit, I got a gallery in New York! Laugardagur 16. Ágúst Ðö big dei... Við Komum fram á Sergelstorgi um morguninn. Þetta torg getur haldið ca. 70.000 manns í allra mesta lagi. Sem betur fer voru ekki nema kannski 500 að horfa... annars hefði maður stressast upp eins og mófó. Þarna var svo svið og risaskjár og massíft hljóðkerfi. Okkur gekk samt voða vel, vorum voða flott og falleg við undirspil Múms og Stefáns Islandis og þar á milli sungum við. Finnsku bjullurnar sungu einhver 2 léleg popplög - sem þær "sömdu" sjálfar og dönsuðu með en sýndu enga helvítis innlifun... þær kunnu sona alveg að syngja og að hreyfa mjaðmarnar en þær kunnu ekkert að performa... Þær höfðu líka verið í einhverjum spes artist skóla... Ég hefði nú gefið þeim lágmarkseinkunn... Bjullur. Eftirmiðdaginn fengum við að fara á tónleika. Ég sá Good Charlotte, Big Brovaz, Einhverjar sænskar bjulluhljómsveitir og Danskan Michael Jackson lookalike... þá gafst ég upp... og missti víst af bestu hljómsveitunum - Outlandish og The Rasmus... en þær voru örrugglega ekkert sérstakar.... Bjullí.... Um kvöldið fengum við túrgæd af einhverju balli sem var í gangi þarna í Kulturhuset fyrir krakka á aldrinum 15-18... Það var einn salur fyrir RnB og Hipp-Hopp tónlist, einn salur fyrir Topp 20 tónlist (RnB og Hipp Hopp) og svo einn reif-salur... BJULLÍ!!!! Mér leið svo illa þennan dag ég barasta gæti hafið kallað á Eyjólf hvenær sem er... En við vorum svo miklir túristar að við vorum túristar á balli. Plata dagsins: Blumbarnir - Bjullur á Báli Nærbuxna tjekk, nærbuxna tjekk!!! Je, beibí.... Sunnudagur 17. Ágúst Allir fóru snemma þennan dag... nema við. Ása og Erna fóru að versla og sögðu "við hittumst á Sergelstorgi klukkan 17"- klukkan var 12.... Ég náttlega bara... ömm, ha, ooook....? Og er skilinn eftir áður en ég gat sagt H&M er ofmetin... Ég bara vafra um... fer í plötubúðir... peningalaus, finn rosalega fínan markað... fer á netið,sit í klukkutíma á McDonalds og enda á Sergelstorgi klukkan fjögur og bara les Radiohead blaðið mitt... rosalega eikkað einn og einmanna... En þennan dag tók ég eftir hvað Stokkhólmur var bjullu-frí og áttaði mig á því að ástæða bjulluleikans var fjöldi sænskra sveitaunglinga sem sóttu þessa hátíð.... Ég verð að fara aftur einhverntíman og skoða bæinn almennilega... Því hér er mjög fallegt kvenfólk og góðar plötubúðir............................................................ ....................................................................................................................................................... Plata Dagsins: Velvet Underground - White Light/White Heat She would kiss him and maybe they would see a movie. If only he hadn't thought of it before Frábær fyrsti skóladagur! Alltof gott veður og alltof mögnuð stemning... Pulsur og Pepsi á góðu verði... Atli með sína góðu tónlist og bara fínasta stundatafla... Þetta ár verður gott! Plata Dagsins: The Raveonettes - Whip It On Wanna drink and drive, have some fun Mig langar í: Miða og flugmiða á Radiohead tónleika Peninga Meiri tíma Stærra herbergi 20.8.03
Je beibí.... Kominn með stundatöflu og bara kominn skólafílingur í mann. Það er svo gaman að koma svona og ná í töfluna og bara, hei hó! Þetta ár lofar góðu... stundataflan þarf ekkert of miklar breytingar og ég hugsa að það sé bara gott fólk með mér í tíma og svo er þetta nýja kerfi alveg að meltast...
En HEI!!! Mánudagur 11. Ágúst Ég hafði bara ekki verið jafn morgunhress í heila viku... Magnað, hreint magnað. Við Erla vorum bara eikkað í bænum að versla ögn meira þennan dag og ekkret neitt mikilfenglegt að segja frá. En um kvöldið fórum við á rónafyllerí... ðe danisj vei. Við keyptum okkur Vodka og bland og héldum í Nyhavn. Á leiðinni mættum við náunga sem hét Rasmus (sem hafði búið á Reventlowsgade með stelpunum fyrstu vikunnar) og vini hans sem litust alls ekki á þetta ferðalag okkar og sigldi með okkur í Christianshavn á einhvern fínan bar þar, á mótorbátnum sínum, um miðja nótt, og fullt tungl í þokkabót. Bjútifúl. Æ tel jú. Mötj bjútifúl. Okkur leist samt ekkert á þennan bar svo við löbbuðum bara til baka og í Nyhavn og blönduðum okkar stöff og drukkum og tjúttuðum við Djöstin sem hljómaði úr Gettóblaster í fjarskanum... Plötur dagsins: Radio 4 - Gotham! The Liars - They Threw Us All In A Trench And Stuck A Monument On Top Þriðjudagur 12. Ágúst Síðasti deginum okkar var eytt á Robbakaffi. Fyrir utan þær stundir sem við kíktum í búðirnar í seinasta sinn. Þennan dag varð Radiohead safnið mitt mjög ríkt. Fyrst finn ég There There prómóinn á 30 DKK sem er ekkert nema gott og seinna finn ég engan annan en sjálfan Airbag/How Am I Driving 7 laga diskinn á ekki nema 110 DKK (á sama stað fann ég There, There prómóinn á 30$) Það var kreisí... svo var það bara flugvél og bara heim... allir peningar búnir... en þeim gæti ekki hafa verið eytt í betri hluti en þessa stórkostlegu ferð. Plötur Dagsins: Radiohead - Airbag/How Am I Driving Radiohead - OK Computer Stei tjúnd for Svíden! Mig langar í: Yoshimi Battles The Pink Robots Gabríellubók Saumavél 19.8.03
Jei! Ég á ammli í dag.... Voða gaman... eða eikkað.
Já núna hef ég víst algert frelsi, svona nokkurn veginn... Ég má kjósa, taka lán, kaupa sígarettur og alls konar dót... Æ em offisjalí an adölt... Ég finn samt ekkert fyrir neinni breytingu. Jú, skeggrótin mín er orðin soldið góð. Núna heldur áfram sagan um Pétur í danmörku... Laugardagur 9. Ágúst Bevar Christiania O O O Ég fór í tilraunina í dag og skoðaði hana almennilega. Vá hvað þetta er fallegt landsvæði! Ég var búinn að ímynda mér Kristjaníu sem virkilega skítugt pleis, sona fullt af múr húsum og einhverju og djönkís allstaðar og eikkað bjull og sona.... En svo er þetta bara heví kósí staður! Maður labbar þarna inn um hliðið og þar er stór markaður sem blasir við manni, fólk að selja allskonar hluti frá pappírum til bongó tromna... Ég keypti mér svona afrískt klukkuspil, rosalega fallegúr hljómur í þessu. Svo heldur maður áfram og labbar hina margrómuðu götu, Pusherstreet þar sem dílerar velta milljónum á dag og lagt er á borð allskonar jónur og hasstegundir, plöntur og jú neim it... Ekkert annað dóp, kristjaníu búar eru virkilega á móti hörðum vímuefnum... "Say no to hard drugs" slagarinn fannst víða um bæinn. Þegar maður er kominn framhjá götunni og hassbörunum kemur maður inn í svæðið þar sem fólkið býr, þar er leikskóli, leikvöllur, hjólabrettagarður, baðhús og allskonar almenningsþjónustu staðir. Aðeins lengra fer maður yfir brú sem fer yfir þetta fallega, fallega fljót og þaðan sést fallega náttúran sem er þarna. Svo gengur maður meðfram stíg (ath. það er aðeins ein göngugata í kristjaníu, öll umferð bifreiða er bönnuð - hentugt í landi þar sem allir hjóla) og þar eru öll húsin. Fólk byggir húsin sín sjálf eins og það vill... Ekkert svona skipulag. Ekkert hús er eins og fólkið málar þau á allskonar vegu... Ótrúlegt andrúmsloft þarna, fólkið þarna er svo friðsælt, hundarnir eru eins og kettir, liggja um og láta alla í friði... samt eru þeir villtir. Og svo er líka bara frábært fyrir lögguna að hafa allt hass á einum stað. Mér finnst asnalegt hjá dönskum yfirvöldum að leggja niður þessa "félagslega tilraun" og vil ég bara vitna í texta Joni Mitchell: They paved paradise and put up a parking lot. A pink botique, a hotel and a swinging hot spot. Ég hvet fólk að kynna sér þetta landsvæði og vernda það. Kvöldið var svo bara allsherjar fyllerí. 2 bjórar f. 30 á Moose, Tequila á 10 á L.A. Bar, 10 staup á 100 á Basement og Tvöfalt líkjör á Vertigó. Hvað er að gerast/Crazy feet dansin var dansaður af mikilli innlifun og þá einnig diskódansinn góði. Vil ég þakka götuleikhús fólki fyrir að opna augun mín fyrir skemmtilegum hópdönsum..... Kvöldið endaði á Metróstöðinni í Kristjánshöfn þar sem við tókum lest til baka.... Á 0700ðasta tímanum fórum við heim. Plata dagsins: Joni Mitchell - Hits You're a mean old daddy but I like you... Sunnudagur 10. Ágúst Ömmm.... Vaknaði 19:00 var kominn í bæ kl. 21:30 eftir góðan og bjullí McDonalds þynnkubana.... Robert's Coffee var algerlega málið þennan dag. Mmmmm góð tilhugsun að fá sér Latte og liggja í rúminu með bóbó.... Guð hvað það var kósí tilhugsun, EN NEI. Það var lokað. Plebbar. Við leituðum í örvæntingu að jafngóðu kaffihúsi. Við ráfuðum inn á voða kósí stað en eftir að hafa setið í korter föttuðum við að þetta var hommabar... Fundum samt frábæran stað í lokin þar sem við fengum góðar kökur... Ég lenti á sona náunga sem sagði "Hvad?" nokkrum sinnum.... Pétur:Har dú nóle kaker? Dani:Hvad? P:Kager? harr dú kager? D: Hvad siger du, jeg forstar ikke! P: Harr dú nóle kager??? D: Ja, kager. Nej desverre. P: (ohhhh) Geggjað gaman vúúúúú....!!! Plata dagsins: Four Tet - Rounds Hei, til hamingju með ammlið Pétur! Hei, takk maður! Mig langar í... Fullt af Radiohead smáskífum Fyrsta Beck diskinn (One Foot In The Grave) Beck Könnu til að flóa mjólk í 18.8.03
Jæja, þá er maður kominn heim úr norðurlandareisu sinni og guð hvað það er þægilegt að sofa í rúminu sínu.... og nota íslenzka stafi.
Ég ætla bara að halda áfram sögunum mínum en ég mun skrifa um tvo daga í senn. Fimmtudagur 7. Ágúst Við vöknuðum alltof seint þennan dag og vorum heillengi að koma okkur inná Reventlowsgade þar sem við fórum út á vitlausri stoppustöð og villtumst gjörsamlega, en planið var að fara í Tívolí en við vorum ekki komin fyrr en um 16. Aldís og Rósa höfðu keypt sér árskort og svindluðu okkur inn og plögguðu okkur ódýrum dagspössum... Þetta var alveg gaman en ég var einhvernveginn að búast við stærri tívolíi. Fallturninn var náttlega heví og Drekinn en allt hitt var frekar sona meðal eikkað.... Valhöll var samt ömurleg. Ég var að búast við einhverju heví draugahúsi því þetta var allt svo krípí eikkað en þetta var bara andskoti lélegt. Eftir þetta buðu Aldís og Rósa okkur í mat, ægilega fínt pasta og við skáluðum hvítvíninu sem við Erla keyptum í Kastrup og var þetta allt saman mucho kósí. Wayne's World tók við og svo bara Moose þar sem við hittum Atla og Odd og einhverjar íslenskar bjullur. Við skrifuðum síðan póskort þarna (sem ég senti reyndar ekki fyrr en í gær, á flugstöðinni...). Síðan var líka einhver danskur náúngi þarna sem var ægilega mikill Zoolander fan og vitnaði endalaust í þá mynd og sýndi Blue Steel lúkkið nokkuð oft. Svona 2. klukkutímum seinna komumst við að því að hann var módel.... tilviljun? Svo sýndi Atli okkur Kochini's sem býður upp á einhverjar bestu pizzur veraldar. Plata dagsins: The Beatles - Revolver Oh, look at all the lonely people Föstudagur 8. Ágúst Það er alltaf jafn gaman að versla... Það er líka alltaf jafn gaman á Robert's Coffee.... Svo er auðvitað alltaf jafn gaman að Djamma. Þangað til að hlutir gerast. Við sórum að fara ekki á Moose þetta kvöld. Við hófum kvöldið með því að labba um með Gunna frænda hennar Erlu og kærasta Helgu Bjargar götuleikara á meðan hann beið eftir komu hennar. Svo fórum við að hitta Atla sem kom og náði í okkur við Nörreport og tók okkur á Studio Bar þar sem sætasta barþerna í veröldinni átti víst að vera. Þetta var ýkt plebbaleg stemning en þó hittum við þarna Leó, Orra, Kára, Elínu og Sunnu... En við biðum þar eftir A&R en fórum beint á Vertigo eftir það. Þar var einnig sæt barþerna og dansstemning sem var gaman þar til ég kemst að því að síminn minn sé horfinn... Þá hafði Erla látið tösku sína ofan á hátalara og farið á barinn. Það næsta sem við vissum var það að taskan lá á gólfinu og allt út um allt og enginn sími.... eina helvítis samskiptatækið okkar þarna úti glatað... Ég var hriklega pirraður og fékk mér fullt að drekka. Rosalega er Hvítur Rússi góður! Svo fóru Erla og Aldís að fá sér kaffi og ég Rósa og Sunna vorum eftir en hún og Atli höfðu komið á Vertigo stuttu eftir okkur... en Atli hvarf svo bara. Við ætluðum á einhvern stað en svo var eikkað Gay Night þar... Plata Dagsins Beyonce - Dangerously In Love Uh oh, uh oh, uh oh, uh oh Svo vil ég minna á ammlið mitt sem er á morgun, en það er víst ekki hægt að senda mér sms þar sem að helvítis síminn minn er ekki lengur til... En ég er að spá í að herma eftir Egóbústi Ragnheiðar þar sem að mér finnst það einstaklega nothæft en það verður í gangi þar til Ammlisveisla á sér stað, en hún verður í lok ágúst... Mig langar í .... - Rafmagnsgítar - Magnara - Doppótta skyrtu 17.8.03
Já , ágaeta fólk ég er barasta staddur í landi svía og sit á kaffihusi í midborg theirra. Já ég er í stokkhólm og thessi stadur er ógedslega bjullí. Jaeja, nóg um thad, ég aetla ad byrja á byrjun. Segja ykkur frá dvölum mínum í nordurlöndum.
Thridjudagur 5. Ágúst Ég vaknadi í Reykjavík og kláradi ad pakk öllu helvítis dótinu sem ég aetladi ad taka med eftir langar ákvardanir. Afi var búinn ad lána mér bílin sinn svo ad ég gaeti plöggad öllum sídustu plöggunum. Aldís og Rósa voru nebblega búnar ad bidja um snúda úr Björnsbakaríi og Súkkuladimöffins úr Bakarameistaranum. Og Appelsín. Gaeti ekki verid meira vesen en vid Erla nádum ad troda kassa med 4 snúdum og 4 möffins í adra ferdatöskuna. Vid ákvöddum ad kaupa bara appelsín í fríhöfninni. Jaeja, ég skila svo afa bílnum og hann keyrir okkur í flugrútuna (aetti hún ekki ad fljúga?) Rútan fór einhverja heví krókaleid í gegnum hafnafjörd og eikkad... mjög tilgangslaust en Fever To Tell passadi akkúrat inní ferdina... nokkud gott tad, ha? Í fríhöfninni var svo bara til ein appelsín dós, lítil. Vid keyptum hana samt. Fengum svo auka í flugvélinni. En tar var vondur matur eins og venjulega. Einhver gúmmíkjúklingur. Svo er tad Kastrup, svo Hovedbane og svo Serridlegsvej en tar gistum vid Erla flest kvöld. Vid fórum svo beint á Reventlowsgade tar sem thaer bjuggu, Aldís og Rósa. Vid bordudum snuda og möffins og skiptum milli okkar 3 litlum appelsín dósum. Beint ad djamma. Fórum á Moose tar sem ad hitagrádan er haerri tala en bjórverdid. Samt gód tónlist. Eftir hitann á Elgnum fórum við öll á Sam's bar sem er sona karókí staður. Þar hittum við náunga sem sat við hliðina á okkur allan tímann og drakk bjórinn sinn og brosti og sona. Sagði eiginlega ekkert. Fyndinn gaur. Það voru Íslendingar þarna sem buðu okkur að sitja hjá sér þegar þau heyrðu okkur syngja við lagið við Always með Bon Jovi á Íslensku en það var eikkað samansafn af bjullum og blumbum... Við sungum Do You Know The Way To San Jose og Girls & Boys með einstakri innlifunn. Svo fórum vid Erla bara heim... gód byrjun á gódri ferd. Plötur: Yeah Yeah Yeahs - Fever To Tell The Eighties Matchbox B-Line Disaster - Hörse of the Dög Joni Mitchell - Hits Midvikudagur 6. Ágúst Verslun. Er heilsusamleg. Allur dagurinn fór í búdarrölt. Gud hvad tad er gaman ad versla í köben. Frábaerar second hand búdir og fínasta H&M, Litlar saetar plötubúdir sem selja bara góda tónlist og bjór í sjoppum á 9 DKK. Versla, versla, versla. Og svo meira. Eftir gótt búdarrölt fundum vid besta fokking kaffihús í veröldinni. Tad heitir Robert's Coffee (Reyndar sit ég á einu svoleidis í Stokkhólm akkúrat núna... hann er samt býsna bjullí hér...) En tar kemur madur inn í góda kaffihússtemningu og pantar vid barin mjög gott kaffi, besta ískaffi sem ég fékk tarna úti. Svo gengur madur nidur tröppur og tar er svona salur med mismunandi stóla tegundir vid hvert bord.... Háir stólar, lágir stólar, haegindastólar, sófi og já, bíóstólar... Svo gengur madur inn í annad herberergi en tar eru rúm sem er haegt ad liggja á og drekka kaffid sitt og reykja sígaretturnar sínar í besta andrúmslofti í heimi..... Thessi stadur er naeg ástaeda til ad búa í köben.... frábaer stadur til ad fara eftir skóla og laera eda lesa eda tá til ad hvíla threytta faetur eftir góda verslunarferd. Greit pleis. Kvöldid var heví. Vid byrjudum á Moose og fengum okkur bjór. Bjór er gódur. Hlustudum á góda tónlist en vorum ekki lengi ad gefast upp á hitanum. Vid hlidiná var haegt ad fá tequila á 10. kr. Vid fengum okkur nokkur. Svo fórum vid á Vertigo tar sem er dobbel opp på spiritus. Meira ódýrt áfengi og fullt af salstöngum.... möntjís daudans. Svo fórum vid í Christianiu. Frábaer stadur. Allt svo fridsaelt eikkad...Tar hitti ég vini Aldísar og Rósu, Jessicu frá Kanada sem er örrugglega ein fallegasta manneskja sem ég hef kynnst, en hún vann á Sirkus í tvö ár, Christian frá Christianíu en hann faeddist tar og reykir ekki hass. Og svo hittum vid Mr. T, eda Troels en hann neitadi ad segja okkur nafnid sitt vegna lélegs framburds úglendinga. Hann á 1300 geisladiska. Plebbi. Ég fékk mér meiri bjór tar og djöfull var ég ógedslega fullur thetta kvöld. Gud minn gódur. Plötur The Sounds - Living In America Four Tet - Rounds 13.8.03
Sko, þessi ferð var svo skemmtileg að ég get bara ekki lýst henni í einu samfelldu bloggi, ég verð að taka hverna dag fyrir sig en ég byrja ekki fyrr en ég kem heim frá Sverige því það verður eflaust gaman þar líka.... En það er allt í góðu lagi með mig.
8.8.03
Vo! Eg er i køben!!! jæja... madur tekur ekki eftir hvad Island er plebbalegur stadur. Faranlegt. Her er good shit filingur og gott møntjis... Er buinn ad versla mikid og drekka mikid. For i chrstianiu i fyrradag, faranlega fallegur stadur og fridsæll og hevi snidugur... tad ætti ad vera fririki i hverju landi. Ja nog um tad, eg hef ekki mikin tima tid faid details tegar eg kem heim, og svo bara svitjod...
Pløtur: The Sounds - Living In America Four Tet - Rounds The Beatles - Revolver Eighties Matchbox B-Line Disaster - Horse of The Dog 4.8.03
3.8.03
Ótrúleg verslunarmannahelgi!
Krakkar, Reykjavík er málið! Ég hef bara ekki skemmt mér svona vel leeeengi! Innipúka hátíðin í gær var frábær. Ég mætti rétt þegar Egill Sæbjörns var að klára - soldið fúlt en það var greinilega þægileg stemning hjá honum þar sem allir sátu á gólfinu.... Þar mætti ég mínu kvöldföruneyti - Erlu, Adda, Áslaugu og Bylgju. Eftir Egil var maður kominn í bjórinn og beið spenntur eftir neistu sveit - engin önnur en gleðisveitin Rúnk! Þau stigu á svið og hófu tónleikana á laginu Men and Motors sem kom öllum í gott stuð. Svo kom í ljós að Yamahainn þeirra var bilaður en það skipti greinilega litlu þau björguðu sér alveg með hinum hljómborðunum sínum og spiluðu svo Wall Street og Andhól af einstakri snilld og lá við að húsið myndi tryllast af hamingju. Næst kom röð af góðum lögum - CD Extra Bonus Track, Yamaha Algleymi og svo Innipúkalagið en á meðan þau spiluðu hið síðastnefda var klippt á band sem hélt uppi blöðrum úr loftinu - en meiri hamingja. Svo var þessu sluttað með skemmtilegasta lagi sveitarinnar - Atlavík '84. Ótrúleg hljómsveit og framkoma sveitarinnar var virkilega einstök. Það geislar alveg hrikalega af henni Hildi söngkonu - alltaf svo fjörug en samt kúl á samatíma - mjög skemmtilega klædd, í grænum kjól og sokkabuxum í stíl með bleika derhúfu síðan. Jæja. Meiri bjór. Dr. Gunni. Ég bara nennti ekki að hlusta á hann. Mér fannst þetta bara ekkert spes. Nokkuð óskipulagt og ófrumlegt rokk-eitthvað. Framkoma ósköp venjuleg og bara já. Bjórinn og Svisslendingurinn (sem kunni hebresku) sem við hittum þarna voru miklu skemmtilegri. Jæja. Loksins kom að Botnleðju. Þeir voru, eins og alltaf, rosalega þéttir en spiluðu samt aðallega nýtt efni - jújú það er alveg gaman að heyra lög eins og Eurovísu og Brains, Balls & Dolls en mér fannst vanta alveg gamla efnið, Drullumall og Fólk er Fífl hefði ég vilja sjá meira af, en svona verður þetta víst að vera. Þeir spiluðu líka alltof stutt. Þeir spiluðu örrugglega í svona rúman hálftíma. En þetta var samt mjög gaman - ég varð að hlaupa út eftir Eurovísu og anda þar sem ég var næstumþví búnað kalla á eyjólf þarna í pittinum, margir bjórar, mikið hopp og margir olnbogar og slíkt í magan passa ekki vel saman..... Trabant komu svo síðastir með hrikalega flott performans. Rosalegur stíll á köppunum. Allir blóðugir í framan í hrikalega ósmekklegum - en flottum fötum. Þeir spiluðu fullt af nýju efni sem hljómaði alveg rosalega vel. Gamla efnið tókst ekki alveg nógu vel hjá þeim, fyrir utan Lady Elephant - mjög flott, enda kominn stuð í krádið þá... en þeir eru núna farnir að hljóma miklu meira eins og elektrónísk útgáfa af AC/DC sem er einstaklega skemmtileg. Söngvari sveitarinnar var nánast kominn úr öllu er leið undir lok. Fór fyrst úr skónum, svo fór derhúfan (sama húfa og Hildur skartaði fyrr) Næst bolurinn og síðast sokkarnir. Mjög kómískt enda ekkert neitt hrikalega vel vaxinn maður. Þeir slúttuðu svo á nýju lagi sem þeir kölluðu power ballöðuna sína og ringdi konfetti yfir sviðið á loka tónum lagsins. Þeir voru síðan klappaðir upp (eina sveitin sem fékk klapp) og spiluðu lag eftir apparat sem kom svona ágætlega út. Næst tók nonnabiti við þar sem að magar voru svangir og svo heim. Jæja ég er bara farinn að pakka - ekki viss hvort ég bloggi meir áður en ég fer út. Ég reyni að blogga síðan í kóngsins köben en ég lofa engu.... Annars bara: Til ví mít agen.... Plötur: Rúnk - Ghengi Dahls Það er gata í Reykjavík, gatan sú er engri lík, því við hana er Wall Street Trabant - Moment of Truth Go to bahama in stereo Botnleðja - Iceland National Park You gotta ask yourself 2.8.03
Jæja, nú er kominn nýr mánuður og hann er nú sá allra besti hingað til, þótt hann sé varla byrjaður! Jæja hann fór alavega helvíti vel af stað í gær.... Hún Helga mín kæra átti sinn fødselsdag í gær og buðum við Erla henni í lunch í tilefni dagsins. Við fórum á hinn margrómaða Tapas-bar (ég í fyrsta sinn) og stóð hann algerlega undir væntingum, yndislegur matur og vel framreiddur að ekta spænskum hætti! Algert yndi.
Kvöldið byrjaði svo á Kúltúra (nei, nú ertu að grínast!) sem var tómur en voru Dj-arnir alveg frábærar! Spiluðu svona Fönk/Hip-Hop/Jazz/House, ekkert smá skemmtilegt! Bjór var drukkinn í miklu magni (útborgunardagur - manni er eikkað svo skítsama um peningin sinn - þar til daginn eftir......) Tequilað var samt alger hápunktur! Já svo var haldið á Vegamót en maður kemst nú barasta aldrei inn þar - samt vorum við með ekta Ítali með okkur! "Jæja, förum á Dillon" heyrðist næst en þar var einhver mesta kórsamkoma aldarinnar.... Troðið hús af MH-ingum end ðen söm! svo komu hinir meðlimir gaurs utan Helga og Vorum við þar til lokunar. Svo á leið í bæinn hittum ég gamla hagaskóla bekkjabræður mína, Jorra, Kobba, Arnar og Gunna Batman. Það var bara endalaust af fólki í bænum í gær - hver fer útúr bænum um verslunarmanna helgi?? Já, svo er bara innipúkinn á eftir, Danmörk á þriðjudag, Svíðjóð þarnæsta fimmtudag, ammlið mitt 19., skólabyrjun 21., og svo lokahápunktur ágústmánaðar - ammlisveisla okkar Helgu og Veru + kveðjuteiti Finns nokkurs Guðmundsonar 29eða30. Þetta verður heví mánuður! Já! Höh! Kjólin fyrir jólin! Mér finnst fáránleg áttin sem bandaríkin eru að fara. Núna verður maður víst að vera frægur til þess að vera ríkisstjóri.... Það eru ekki merkari menn en Larry Flint og Arnold Schwarznegger að fara í mótframboð núna í Kaliforníu.... Jæja, BNA! Gangi ykkur vel að stofna drauma heim þar sem fræga fólkið stjórnar heiminum! Ætlaði Will Smith ekki í forsetan? Jæja, Plata Dagsins Rúnk - Ghengi Dahls Þessir vinir voru saman í hljómsveit, hljómsveit á Klapparstíg Plata vikunnar The Thrills - So Much For The City So much for the street lights, they're never gonna guide you home |
||||||||||||||||||||||||||||||