be[¡]kon

30.8.06
 
Afturhvörf.

Á morgun byrja ég á ný í dagskóla. Eftir árslanga pásu.

Kannski ég fái mér brúna húfu og græna adidas peysu í leiðinni.

Ég gæti líka alveg eins farið í leikfélagið og flippað geðveikt mikið og fundist spunaæfingar það skemmtilegasta í heimi.

Svo gæti ég farið á busaballið og orðið geðveikt fullur og dansað við Dr. Mista & Mista Handsome því þeir eru svaaaalasta hljómsveit íslands. Og farið í sleik við busastelpu.

Ég gæti farið í kringluna í hádegishlénu og skoðað föt í spúútnik og keypt mér síðan pizzusneið á dominos.

Auðvitað gæti ég líka keypt mér núðlusúpu í maraþaraborg þegar ég er í gati, falið mig í sófa í norðurkjallara og borðað þær og hlustað á Radiohead eða Air eða Sigur Rós og talað við engan.

En ég gæti byrjað aftur að blogga geðveikt mikið og talað út úr rassgatinu á mér.