be[¡]kon

31.7.03
 
Voðalega er maður orðinn eimana. Maður vaknar á morgnana og hefur nákvæmlega ekkert að gera.... Vinnan er búin, hinir vinir manns eru að vinna... Eða þá í útlöndum.
Kvöldin eru erfið líka... Enginn virðist hafa tíma fyrir mann.... Nema Erla. Var einmitt þar rétt áðan að horfa á Holywood Ending.
Þetta er ágæt mynd, skemmtileg tvíræðni í titlinum sem kemur fram í myndinni... Allen er náttúrulega frábær, en þetta er ekki neitt framúrskarandi mynd, miðað við hinar. Hann var langbestur fyrir 20-30 árum síðan, Bananas og What's Up Tiger Lily eru einhverjar skemmtilegustu myndir sem ég hef séð, honum hefur farið versnandi, en þessi mynd og Curse of the Jade Scorpion eru vissulega mikil framför úr myndunum sem komu á undan (Small Time Crooks og Sweet & Lowdown).... Þetta er allt að koma eins og skáldið sagði.
Ég keypti mér nýjan geisladisk í dag (kemur á óvart, ha? Nei.) Þessi heitir So Much For The City og er með hinni nýlegu hljómsveit Írlands: The Thrills. Ég hef ekki heyrt annað eins í nokkurn tíma. Ef hægt væri að blanda saman Is This It?, Yoshimi Batttles The Pink Robots, If You're Feeling Sinister og Mutations væri þetta úrkoman (en þessar plötur eru einhverjar þær bestu sem hafa sést þennan síðasta áratug - að mínu mati...... og vissulega annarra áhugamanna) Þetta er alveg hrikalega sæt og þægileg tónlist sem ég naut hverrar mínútu af. 11 lög (reyndar 12, eitt er falið ... úúúú!) sem eru mjög lík svona í hljómi en virkilega mismunandi og fjölbreytt stemning. Söngvari sveitarinnar hefur einstaklega skemmtilega rödd sem minnir svolítið á Wayne Coyne, söngvara Íkveiktu varanna og setur algjörlega stemninguna á diskin, mjög brothætt en sæt, þægileg. Þetta er frábær "keyra upp í sveit" diskur en er einnig góður með bjórnum á undan partístemningstónlistinni (The Strokes myndu passa akkúrat) Þeir hefðu samt mátt setja þetta aukalag annarstaðar og sleppt aukalagi, lag númer 11 var svo rosalega góður endir..... Já þessi plata mun líklega prýða aðal-diskamöppuna mína í þónokkurn tíma. (Ég á nefnilega 3 sem eru troðfullar... Hinir doka inn í diskaskáp.....)
Ég er að spá í að sæja um sem plötudómari hjá Undirtónum eða Sánd. Ég held ég hefði gott á því.... Hugsið ykkur stafina mína - PE - fyrir neðan grein í Sánd... Eða í tímaritunum Q eða Wire.... Já maður verður ná að byrja einhverstaðar.

Plata dagsins, ef ekki bara vikunnar?
The Thrills - So Much For The City
My agent says writers block, to keep publishers off my back


28.7.03
 
Vel, Vel, Vel.... Long tæm nó sí. But júv bíköm só bjútifúl sins æ so jú last!

Jæja bloggleysið mitt hefur verið afnumið. Það er komin ný tölva á heimilið upp full af nýjustu tækni, þ.á.m. ADSL nettenging. ú je beibí æ læk jor vörk! En hérna já. Vinnan er búin. Flestir vinir mínir eru einhverstaðar úti í buska. (Reyndar er ég sjálfur að fara eftir aðeins 7og1/2 dag!) En þangað til verð ég bara að leika mér. En helgin var mjög merkileg.

Hún endaði á svefni. Á undan því hafði ég verið að leika mér í nýju tölvunni allan daginn og svo át ég fáeina hluti.

Á laugardag sofnaði ég nokkuð snemma. Ég kom heim um 12 úr mjög þreyttri stemningu í listsmiðjunni þar sem ég, Árni og Íris nutum ókláraðra pítsna sem við pöntuðum áður en við lögðum af stað í laugardalinn. Skrúðgangan endaði á Broadway þar sem krakkarnir fengu Ís og hlustuðu á sveppa úr 70 mín. kynna atriðin. Þetta gekk rosalega vel hjá okkur miðað við að við vorum að gera sona í fyrsta sinn... Ég hafði aldrei trommað sona áður. Íris og Árni höfðu einu sinni prófað að spúa eldi, böt ðe kids lövd öss! Það var mjög gaman. Ég veit ekki hversu oft ég heyrði setninguna „má ég prófa trommuna þína“ Og það er ógeðslega gaman að segja „Nei.“ Við hittum hrikalega áhugasaman túrista áður en við lögðum af stað... oooh a parade! Jæja.... Við vorum nýkomin af fundi með framkvæmdastjóra og gjaldkera NFMH þegar við fórum að undirbúa okkur. Hjörtur komst ekki því hann var með mígreni en kom svo á síðustu mínútu með rabbabara í annarri. En hann átti nebblega að spúa eldi í stað Árna en aflýsti vegna hausverkja. En svo klúðraðist það, Árni var búin að standa í svaka veseni með vinnuna sína og læti, en þetta leystist samt. Strákarnir úr NFMH sátu á Sólon með fartölvu og bjór og endurtóku sig rosalega. Þeir höfðu afskaplega lítið að segja. En jæja. Fyrst vaknaði ég.

Föstudagurinn endaði með fínu kórpartíi, fór reyndar heim bara klukkan 3, var bara á sopa fylleríi vegna atviki fyrr um daginn. En það voru allir voða fullir þarna. En jæja, ég var uppfullur af stemningu þegar ég lagði af stað. Við vorum nebblega komin í kl. 2 stemninguna kl. 11 þarna í listsmiðjunni, densin læk mófó's end sjitt. En ég fór til Skúla sem var fámennsta Bassapartí sem ég hef nokkurn tíman vitað af, engin stemnig og kallarnir að prenta út texta fyrir enn annað cover-lagið sitt. Tenórar áttu heví atriði. Altar voru líka góðar en þær voru þrjár. Bassar voru ömurlegir. Eins og Alltaf. Man ekki hvernig Sópranar voru. Það var samt gaman með Götuleikhúsinu... Það er svo skrýtið að fara úr leiklistarstemningu yfir í kórstemningu.... verí vírd jú nó, þetta er eins og grænt og rautt! (ekki alveg svart og hvítt). Maturinn var heví, ég vil hrósa Mörtu og Helgu Björg fyrir einhverja bestu grilluðu banana sem ég hef fengið.... En áður en ég komst þangað varð ég að kveðja Veru, sem er að fara til Frakklands núna í heilan mánuð. En það ferðalag var langt. Ég lenti nebblega í árekstri á leiðinni þangað.
Ég var staddur á Grensásvegi á leið inn á Suðurlandsbraut. Það var rautt ljós á Suðurlandsbraut og einhver fáviti ætlaði að ná gulaljósinu þótt það væri orðið rautt og þurfti bíllinn á undan mér að snar hemla náttlega og ég bara vó, bremsa ca. meter frá þeim bíl þar sem ég horfði á brjálæðingin keyra yfir, og bara bofs. húddið, stuðarinn og bæði framljósin í klessu, vatnskassin lekur, m+p kreizí (ég náttlega í órétti) náði ekki númer á ökuníðingi. Plebbskotinn! En já. þetta var örlagarík helgi. Ég vona að Danmerkur förin mín verði líka örlagarík, en var ég nokkuð búinn að nefna að ég er að fara þangað eftir 7og1/2 dag? Jú! Plataði ykkur! hahahahahahahahahaha!

Ég fór í dótabúð í dag og hneykslaðist á actionkalla leysinu. Þegar ég var lítill lifði ég fyrir turtles köllum og vinir mínir líka. Batman kallar, Spiderman kallar og fleiri kallar voru ógeðslega vinsælir þá líka. Þeir voru bara ekki til núna. Engir svona kallar! Ég vil mótmæla þessu. Fjöldamótmæli fyrir utan skrifstofunar í bandaríkjunum 7. sept. kl. 15:30.......
Ég var heldur ekki nógu ánægður með Legóið. Þetta var bara eikkað sona Bíómynda Legó þar sem maður þarf ekkert að byggja neitt... Vers ðe fön in ðat? Hvar eru kastalanir? Ha? Geimstöðvanar og Fjarsjóðaeyunar og öll skipin og svona! Önnur mótmæli í Danmörku, bara 8. sept. kl. 16:30. Já. Flott.
Kveð í bili

Records du jour (et le semaine)


Anti-Pop Consortium - Arrythmia
I love a chick rockin' a bra, watchin' tv, holdin' keys to her car, boom
The Flaming Lips - The Soft Bulletin
Will the fight for insanity be the fight of our lives?
The Blood Brothers - Burn, Piano Island, Burn!
Death decodes the howls from our hands
The Datsuns - The Datsuns
She makes me feel like, like a motherfucker from hell!
The White Stripes - Elephant
So many times I call the house just to hear the tone
Radiohead - Kid A
Here, I'm allowed everything, all of the time
Radiohead - Amnesiac
While you make pretty speeches, I'm being cut to shreds


25.7.03
 
Je, ný tölva og ný tenging komin.... Meira blogg seinna.... enginn tími núna..... plötur.... seinna líka..... ný könnun.... seinna..... Danmörk... seinna en bráðum...... nýtt útlit... vonandi seinna.... djamm............ núna!


20.7.03
 
Já, það er nóg af súkkúlaði í heiminum í dag.
Ég fór í brúðkaup og veislu í gær. Dóttir móðursystur minnar var að gifta sig loksins og allt heví sniðugt. Þetta var alveg býsna væmið... Það voru engin hefðbundin kórlög, bara svona nýleg popplög, Elton John var sunginn og eitt annað lag og söngvarinn var með hrikalega íslenska rödd. Orgelleikarinn klúðraði bæði inn- og útgöngu marssinum. Kómískt. Presturinn var við að fá flogakast alla messuna og það heyrðist ekkert það sem hann sagði, virtist vera með einhverjar heví pælingar. Mér finnst að prestar ættu að blogga, það væri örugglega mjög skemmtileg lesning... ef þið vitið um prest eða guðfræðing sem bloggar látið mig vita...
Að athöfn lokinni söng brúðguminn frumsamið lag í kirkjunni til heiðurs konu sinnar... Mörgum fannst það mjög áhrifamikið og varð kirkjan mikið táraflóð, enda fallega stund.
Veislan var ágæt. Það átti að vera svona Suður Amerískur fílingur, en fílingurinn var bara í matnum, það voru bleikar og hvítar skreytingar og ræðurnar voru leiðinlegar... nema hjá ömmu gumans, hún var ekkert væmin, heví orðheppin og fáránlega fyndin. En maturinn var frábær.
Jæja það styttist í danmerkurförina og vinnan fer að klárast... ótrúlegt hvað þetta sumar leið hratt hjá, áður en maður veit er maður kominn í Mál og Menningu að finna ódýrt eintak af Stærfræði 3000 en maður finnur það ekki og þarf að borga 5000 kr. fyrir nýtt. Rosalegt. En fyrst eru það norðurlönd. Je... hlakka samt heví mikið til að setja upp leikritið á næsta ári og vera í stjórn LFMH og allt það... vá hvað það verður gaman.... við erum líka ekkert smá dugleg! Jæja það er kannski svolítil bið í næsta blogg þar sem að það eru að koma tvær nýjar tölvur á heimilið og ADSL tenging svo að ég get bráðum bloggað frá mínu eigin herbergi, mmmm hvað það er góð pæling...... jæja, ég verðu víst að drífa mig í matarboð til ömmu...
Records of the past few days
Björk - Vespertine
One hand loves the other
Ske - Life, Death, Happiness and Stuff
Darekani aiwo agerunone
The Kills - Keep On Your Mean Side
There's a monkey on my back, makes me act like that
Radiohead - Hail To The Thief
I will lay me down in a bunker underground


17.7.03
 
Örlögin léku við mig þetta kvöld. Þau banna mér að eyða pening. Ég ætlaði að eyða góðri kaffihússtund með vinkvennum mínum tveimur, þeim Veru og Erlu. Ég lagði af stað, nokkuð seint reyndar og var kominn niður götuna mína þegar ég uppgötva að ég hafi gleymt veskinu mínu... jú jú allt í góðu gengi, hleyp til baka og sæki það. Svo hélt ég göngu minni áfram niður í bæ. Á austurstræti kem ég við í hraðbanka til að athuga stöðu og taka út eittþúsund krónur til að geta keypt mér inneign og bóbó. Ég slæ inn númer, sama númer og ég hafði verið með í þrjú ár og bankinn segir mér að það sé vitlaust. Jæja, fínt... hélt ég hafði bara misslegið eða eitthvað slíkt, reyni aftur og bankinn bara svona helvíti þrjóskur. Jæja, hugsa ég... kannski er þessi hraðbanki bara þroskaheftur, aumingja kallinn og geng í næsta hraðbanka sem segir mér að ég hafi slegið rangt númer of oft inn og ákveður að geyma kortið mitt. Djö.... jæja. Ég held, fýldur á svip, áleiðis á Kaffi Culture eins og svo oft áður. Þar bíða stelpurnar, búnar að vera þarna í dágóðan tíma og eru bara á leiðinni út, en þær staldra við aðeins lengur og ég segi þeim frá bankadjöflinum og Erla býðst til að lán mér fyrir einum kaffibolla. Ég bið afgreiðslumanninn um að færa mér klakakaffi þar sem ég hafði aldrei bragðað svoleiðis drykk fyrr og var mjög spenntur fyrir. "I'll koma til you með it" segir hann og ég bíð í svona 15. mín. auðvitað er kallinn búinn að steingleyma mér og stelpurnar bara, nei, við nennum ekki að bíða. Ég eyddi engum pening í kvöld vegna tæknilegra erfiðleika veraldarinnar. Merkilegt nokk. Á heimleið minni spáði ég í hvað þessi kvöldstund hefði verið frábær hefði ég eytt henni með góðri kærustu í rómantískri göngu um bæinn sem var alltof fallegt... Meiri að segja mamma og pabbi fóru í göngutúr! En, nei! hún er bara ekki til, en hún væri mjög vel þegin þessa daganna.
Hér er lýsing á hinni fullkomnu.
Hún skal bera sig vel, vera ófeimin en ekki montin.
Hún verður að ganga í fötum sem mér (og henni) finnst flott (engir netabolir, takk!)
Útlitseinkenni eru ekki svo mikilvæg, en stór augu og náttúrulegt rautt hár eru mikið í uppáhaldi í öjeblikket.
Hún skalhafa fallegt bros, bæði í munni og augum.
Henni má ekki leiðast tónlist, þvert á móti skal hún vera mikill unandi (og hlusta á samskonar tónlist og ég(sjá plötur)).
Hún skal hrífast af Radiohead, helst eiga síðustu 4 diska (en ég sætti mig við tvo þeirra)
Hún skal hafa gaman af tónleikum og þessháttar.
Hún skal dýrka kvikmyndirnar Amelie og Fight Club.
Hún skal hafa nokkurnvegin sömu heimspeki og stjórmála skoðanir og ég (svona svo maður fari ekki að rífast, aðeins ræða hlutina svolítið)
Hún má ekki hafa of mikin áhuga á íþróttum. (Ekkert vera að æfa neitt slíkt)
Já, þetta er nokkurnveginn komið, ef einhver uppfyllir þessarra óska má hún endilega hafa samband við mig (spoonmeister85@hotmail.com) eða bara í gegnum þetta kommentakerfi þarna fyrir neðan.

Plötur síðustu daga:
The Datsuns - The Datsuns
Harmonic Generator, It's a modulator, yeah.
Rúnk - Ghengi Dahls
Fjalla fenomenon gaf mér Fanta Lemon
Autechre - Confield
bm, tsk tskrrr rrr tsk tsts krrr btrrr
Radiohead - OK Computer
Regular exercise at the gym, three days a week


12.7.03
 
Ég er orðinn svo mikill fíkill. Þessi plötukaup eru gjörsamlega að fara með mig. Þegar ég hef ekkert að gera og búinn að taka til í herberginu mínu (sem ég geri alltaf þegar ég hef ekkert að gera) hugsa ég "best að skjótast aðeins í skífunna" og kem út úr búðinni klukkutíma seinna með allavega tvo diska. Ég keypti þrjá áðan en þeir voru alveg þess virði.... Autechre - Confield, Rúnk - Ghengi Dahls (Loksins!!) og The Datsuns - The Datsuns. Allt frábærir diskar. Maður þarf líka að vanda sig svo rosalega þegar maður kaupir diska. Hlusta á allavega 5-6 stykki og velja svo úr þá bestu, eða engan ef þeir eru ekki nógu góðir (það er samt alltaf hægt að finna einhverja tónlist til að kaupa...) En þrátt fyrir alla þessa peningaeyðslu get ég verið rosalega stoltur af safninu mínu eftir svona 5 ár. En þetta verður hratt að fíkn og hver veit nema maður fórni því að borða og búa, aðeins til að eiga nógu marga geisladiska... Ég verð að hemja mig.
Jæja.... í gær fór ég að djamma eins og maður gerir svona um helgar. Pizzurnar frá Eldsmiðjunni eru ekkert smá góðar!! Maður þarf að borða svona við flest tækifæri, en ég og flikkarnar keyptum pizzu þar og átum með bestu lyst með hjálp góðra evrópska bjóra (Stella Artois og Budvar). En síðan var haldið á Kaffi Culturé sem hefur aldrei verið jafn stemmd og í gær, góður plötusnúður sem spilaði ekki bara þessa helv... Salsa tónlist sem er ekkert smá þreytandi. En það kom fjöldi fólks af minni þekkingu á staðinn 'arna og var glatt í hjörtum ungra manna. Eftir góða setu á þessum ágæta en samt þreytandi bar var haldið á Hverfisbarinn. Mér hefur nú alltaf fundist þetta vera hrikalegur staður en hann kom svo sannarlega á óvart þarna í gærkveldi. Það heyrðist í hljóðkerfunum lög eins og Girls & Boys, Blame It On The Boogie, Groove Is In The Heart og annað gamalt Jackson lag sem ég man ekki alveg hvað heitir í augnablikinu... En þessi staður hefur samt ákveðinn bjulluleika. Ég fór þarna á klósettið eins og vera ber og þá þurftu einhverjar tvær ljóshærðar stelpur að koma inn og horfa á typpið á manni og sýna á sér brjóstin. Bjulluhelvíti. En við þurftum að flýja staðinn til að losa hana Helgu okkar frá einhverjum Blumbadjöful. En við fórum á Vegamót. Eða svona þannig. Dyravörður hleypir inn fimm stelpna fylgdarliði mínu inn en stoppar mig og biður um skilríki. Alls ekkert sniðugt. Hleypa stelpunum inn því þær voru nógu sætar því að einhver mun pottþétt bjóða þeim uppá drykk við barinn. Helvítis Blumbar út um allt. Nó, ðe vörld eint bjullu frí eins og ekkert skáld sagði. En jú, ágætu hálsar, stelpurnar komu náttúrulega strax út og breyttu dyraverðinum í salamöndru þannig að hann varð kremjulegur og eru leifar hans enn á skósólinni minni. Já, þessi Harry Potter's Wizardry For Dummys kemur sér sannarlega vel.
Næst fórum við á Dillon sem var hundleiðinlegur. Eða kannski frekar kúleiðinlegur (kýr eru miklu leiðinlegri en hundar). Svo var það Culturé aftur sem var galtómur en stelpurnar fengu sína Salsa tónlist og dönsuðu meðan ég drakk vatnið mitt. Já svona var gærkveldið. Gott djamm bara þrátt fyrir pirrandi dyravörð nokkurn.
Plata dagsins:Zero 7 - Simple Things
I only make jokes to distract myself from the truth
(ég á eftir að hlusta á þessar nýju)


11.7.03
 
Loksins, loksins, loksins er sumarlegt veður á götum Reykjavíkur. Síðasti rúmur mánuður hefur borið í skaut sér leiðinlegasta veður sem gæti hugsast.... Sona „ekki neitt“ veður - grátt, skýjað, hvorki logn né vindur, bara hrikalega leiðinlegt og óspennandi. En nú er voða gaman, kannski maður fari í lautarferð á morgun.... í öskjuhlíð.... talandi um öskjuhlíð, ætti að lögleiða kanabis? Það er nú spurning... á að herða utan um áfengislög og lögleiða smátt og smátt marijuana? Það er nokkurn veginn búin að sanna að áfengi er nú mun hættulegra en gras og hefur enginn maður látið líf sitt við kanabisneyslu (hass er allt annað mál)... Myndi ykkur ekki líða betur í hasspartíi heldur en á fylleríi? Hróarskelda eða Þjóðhátíð? Ég hugsa að manni myndi nú líða örruggar á hróarskeldu. Samt hef ég komið á hvorugan staðinn, þannig ég get ekki dæmt, en ég dæmi af reynslusögum. Vandamálið við grasneyslu er náttúrulega misnotkun á efninu, heilinn á fólki á til að steikjast gjörsamlega og fólk hættir að vita muninn á hægri og vinstri (reyndar er ég ekki alveg búinn að átta mig ennþá). Ég er ekki alveg sammála að það eigi að lögleiða hass punktur, en það mætti veikja lögin aðeins t.d. það má ekki handtaka þig með minna en tvö grömm eða eitthvað í þá áttina og herða utan um áfengislög, t.d. að gefa fólki ákveðin kvóta í ÁTVR - má ekki kaupa meira en eina bjórkippu eða eina vínflösku í einu, og má bara koma einu sinni á dag, þá minnkar áfengisneysla fólks og verður mun erfiðara að kaupa áfengi fyrir of ungt fólk, sem misnotar áfengið kannski langmest. En það má alveg lækka kaupaldur í 18 ár ef að verður svona kvóti. En stærsta spurningin er: Er samfélagið okkar nógu þroskað til að notfæra sér svona lagabreytingar eða mun þessi rosalega misnotkun á vímuefnum halda áfram?
Plöturnar:
Air - Moon Safari
Kelly, watch the stars
Air - The Virgin Suicides
The word hurricane is the name given to the world's strongest storm
OutKast - Stankonia
Teddy Pendergrast: cooler than Freddie Jackson sippin a milkshake in a snowstorm
Jamiroquai - Travelling Without Moving
You're a rockstar, in some tin foil, with a glass pipe


8.7.03
 
Je! Sigríður Torfadóttir Túliníus hefur skapað bloggsíðu.... mmmm, Æ got ðe möntjís.

Orkuleysa er ekki sniðug. Manni líður svo illa ef maður er orkulaus, svo lekur þessi neikvæða orka út í umhverfið og allir í kringum þig verða þreyttir og úrillir líka. Síðustu þrír dagar hafa verið illa orkulausir. Ég nenni engu. Bara möntja, sofa og slæpast eins og mófó. Svo þarf maður að mæta í þessa orkuríku vinnu. Alveg útúrdúr. Við förum að hlaupa á hverjum morgni og tökum klukkutíma upphitun af allskonar tagi. Það er ekki gott að smita frá sér neikvæðri orku á svona stundum. Allir fara að labba í hlaupinu og gera ekki æfingarnar almennilega, eða allavega þeir sem taka við orku mjög auðveldlega. En ef maður er nógu sterkur, andlega, er hægt að skipta orkunni út eins og ekkert sé en ef slæma orkan heltekur mann svona eins og á mánudögum þá er ekkert varið í að reyna. Já nóg um orku.
Platan: Doves - Lost Souls


6.7.03
 
Úúú ég er heima hjá Helgu S.Öru að þiggja gott þynnku kaffi eftir góðan þynnku morgunmat á gráa kettinum í afskaplega þunnri stemmningu og allt voða þunnt eitthvað. Já þynnkan er meiriháttar. Það verður allt svo þægilegt og kósí og maður er svo góður við alla sem eru líka þunnir og allt svo fallegt eitthvað... eða þannig.
Já þetta var aðal djammhelgi sumarsins... allir í góðum stemmara og fínustu partí. Vinnan var kvöl, skemmtilega þröngir hattar sem við vorm látin vera með non-stop í einn og hálfan tíma í slow motion göngu um miðbæinn... grrr. En svo hitti ég tugþúsundi MH-inga í miðbænum sem voru allir að kaupa sér föt og á leiðinni í ÁTVR... skrýtin tilviljun? Við áttum síðan afskaplega kósí stund, ég Erla, Vera og Helga S.Ara þar sem við pikknikkuðum á Austurvelli. Eftir það hélt ég heim og skrifaði möntjís á töskuna mína þar sem að þetta er uppáhalds orðið mitt í öjeblikket:
Æ got ðe möntjís,
Æ got ðe lemöneid,
Æ got ðe kúkkíes, ðe krím end ðe lemöneid!
(Sungið við lag Prodigy, Poison)
Fór til hennar Möttu síðan og þar var fínasta semikór stemning í eldhúsinu, langt síðan maður hefur sungið sona kórverk, það þarf að plögga góð kórpartíi á næstunni... Kór fólk... gerum e-ð í málunum!
Laugardagurinn var afskaplega vel stemmdur. Mikilvægur og vel heppnaður LFMH fundur snemma morguns, klipping, verslun, mæting Halla og Helga, hljóðfæraverslunar heimsóknir, kolaportið - þar sem ég og Halli fundum spólu sem hét "We're no Angles" skemmtileg stafsetningarvilla. Svo fór ég heim og hannaði bol fyrir kvöldið í stíl við möntjís töskuna frá deginum áður, en það stendur Lemöneid á bolnum. Gaur borðaði grillaða börgera í árbæ og átti DVD stund með RHCP...
Svo var það ammlið hennar Ástu. Gúd sjitt, Ásta! Æ læk jor vörk!
David Bowie var heiðursgestur þar. En hann og erla eru læk ðis.
DJ Banani þeytti skífum eins og mófó from ðe kongó og var voða gaman að hoppa einn um íbúðina og segjast vera að dansa....
Sigga T hélt svo kveðjuvislu hjá henni Sigrúnu sem var lokaáfangastaður kvöldins ig alger hápunktur. Mjög vel heppnað þar til allt fór úr böndunum vegna allskonar gubbs og glerbrots. Helgi keyrði mig síðan heim (á mínum bíl!) og krassjaði. Í morgun var það bara grái kötturinn og bæjarvapp og nú er ég bara hjá helgu og allt verður kósí í dag......... Ég vona að þessi frásögn sé til sóma, en ég veit að það er ekkert alltaf gaman að lesa sona frásagnir, ég fer að bæta mig í þessu en það gæti tekið sinn tíma. Ég var samt að lesa fyrstu bloggin mín í gær og þau voru ógeðslega skemmtileg... Mér fer aftur í þessarri list.... En þangað til ég verð mikið og gott bloggskáld.... ömmmmm...... já!

Plöturnar: Essential Asian Flavaz: Hits, Beats and New Grooves.
Blur - The Great Escape
She likes a man in uniform, he likes to wear it tight
Prodigy - Music For The Jilted Generation
Æ got ðe möntjís, Æ got ðe lemöneid!


2.7.03
 
mmmm.... í gær var útborgunardagur. Frábært. Núna á ég fleiri diska. Og einn mynddisk. Og bol. Og sokka.... Ég fann nebblega þessa kreizí búð sem var að opna á einni hliðargötu Laugavegarins, en þessi búð heitir Nonnabúð og er í umsjón Jóns Sæmundar listamanns. Voða svöl búð sem selur föt, myndlistabækur og vínylplötur... (Retro anyone?) mmm en gaman. Svo er ég að fara til Stokkhólms auk Danmerkurferðarinnar minnar, en hún Ása mennningarstjóri Hins Húsins bað mig og eina aðra stelpu úr götuleikhúsinu um að koma með sér til Svíþjóðar á einhverra ungmennahátíð norðurlanda og vera forsvarsmenn Götuleikhúsins og held ég bara Íslands en ég er samt ekki alveg viss.... En þetta er kreizí og þetta er allt frítt.... Jæja, nú er ég hættur að monta mig og farinn að hlusta á nýju diskana mína eða kannski ég horfi á öll Bjarkarmyndböndin sem ég var að kaupa á DVD? Pæling, pæling. Mmm ég elska pening!

Plöturnar í dag, gær og fyrradag.......

Muse - Origin of Symmetry
You make me sick, because I adore you so
The Blood Brothers - Burn, Piano Island, Burn
Bulemic rainbows vomit what?
The Raveonettes - Whip It On (Recorded In Glorious Bb Minor!)
Lipstick on my face, thunder in the sky
The White Stripes - The White Stripes
Now Jimmy, do you want an explosion now?
The Vines - Highly Evolved
Well I'm fuckin allowed!