be[¡]kon

29.1.07
 
Ókei. Ég hef ákveðið að tileinka þessarri síðu algjörlega tónlist. Á hverjum degi (ja, ég reyni allavega) mun ég kynna nýja plötu og linka á hana þar sem að þetta er orðið allt svo gífurlega einfalt og hratt hérna á netinu.
Á mánudögum verður eitthvað nýtt og spennandi, á þriðjudögum elektróník/dans LP, á miðvikudögum rokk, og þá er ég ekki að tala um eitthvað indie-rokk, á fimmtudögum verður hip-hop, á föstudögum mun ég sjóða saman einhverja feita dans-syrpu, á laugardögum skoða ég plötur frá síðustu öld og á sunnudögum segi ég frá einhverri þvílíkt hæpaðri indie-plötu.

Ég vona að þið takið vel í þessar breytingar og notfærið ykkur það vald sem netið færir ykkur og hlaðið því niður sem ég hendi inn, það ætti ekki að vera neitt flókið. Takk og bless og sjáumst vonandi á morgun, það fer eftir hvort þessi nettenging verður komin upp eða ekki.

Kveðja, Pétur.


25.1.07
24.1.07
 
Jæja.

Nú er ég að spila á kaffibarnum.

Aldrei kemur neinn af mínum vinum.

Ég sendi út myspace bulletin, og það er eins og fólk forðist að koma ef það sér tilkynningu um þetta.

Ég held ég fari að hætta þessu. Ég nenni ekki að spila ef enginn nennir að styðja mig.