be[¡]kon |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
div class="%20ut&%20yfir&%20inn&%20undir"
align="center" color="#FFFFFF"
[/table]
Archives Apríl 2008 Mars 2008 Febrúar 2008 Janúar 2008 Desember 2007 Nóvember 2007 Október 2007 September 2007 Ágúst 2007 Júlí 2007 Júní 2007 Maí 2007 Apríl 2007 Mars 2007 Febrúar 2007 Janúar 2007 Desember 2006 Nóvember 2006 Október 2006 September 2006 Ágúst 2006 Júlí 2006 Júní 2006 Maí 2006 Apríl 2006 Mars 2006 Febrúar 2006 Janúar 2006 Desember 2005 Nóvember 2005 Október 2005 September 2005 Ágúst 2005 Júlí 2005 Júní 2005 Maí 2005 Apríl 2005 Mars 2005 Febrúar 2005 Janúar 2005 Desember 2004 Nóvember 2004 Október 2004 September 2004 Agúst 2004 Júlí 2004 Júní 2004 Maí 2004 Apríl 2004 Mars 2004 Febrúar 2004 Janúar 2004 Desember 2003 Nóvember 2003 Október 2003 September 2003 Ágúst 2003 Júlí 2003 Júní 2003 Maí 2003 |
15.5.07
Í dag gef ég ykkur þrjár nýjar plötur.
Ég ætla að byrja á einni plötu sem ég hef hlustað á rosa mikið síðastliðna tvo mánuði. Hún er eftir þýska techno-hausinn Kalabrese, sem komið hefur fyrir á ýmsum lögum síðustu ár, m.a. með Crowdpleaser & St. Plomb. EN þessi plata er ALLS EKKI teknó, heldur einhver æðislegur house-fusion og verð ég að segja að ég hafi ekkert líkt þessu heyrt áðan. Hér er rosalegt grúv í gangi frá byrjun til enda, kassagítar, málmblástur, einhver reggae MC og ein helvíti heit söngkona. Ég er ekki frá því að neinum einasta manni muni finnast þetta leiðinlegt. Ég meina maður getur ekki annað en brosið þegar maður heyrir sungið í byrjun þriðja lags: "I got PAIN.... in my ASSS!" Kalabrese - Rumpelzirkus ![]() Næst er það plata sem ég hef ekki hætt að spila síðustu viku. Hún er í ofsalega svipuðum kaliber og sú síðasta. Detroit teknó hausinn Matthew Dear AKA Audion er einnig með þvílíka house-fusion plötu með smá indie/alternative kryddi. Platan byrjar eins og maður myndi búast við frá gæjanum sem gerði Mouth To Mouth, harðar synth stungur og pínu pínu hi-hat/snerill, en svo kikkar inn þessi svakalega bassarödd, sem heltekur alla plötuna, undir lokin, er hann mættur með kassagítar og ég er ekki frá því að það sé einn meðlimur TV on the Radio þarna í laginu "Midnight Lovers". Klárlega ein af plötum ársins. Matthew Dear - Asa Breed ![]() Síðast en ekki síst er komið að hype-kóngum ársins en djöfull eiga þeir hype-ið skilið. Þetta er platan sem hefði átt að vera Human After All og býð ég þessa menn kærlega velkomna sem arftaka frönsku-raf krúnunnar. Ég þarf ekki að segja neitt um þessa plötu. Bara hlustið á hana og bráðnið. Justice - † ![]() 8.5.07
Austurbæjarskóli
Hér sit ég á vinnustofu kennara enn einn vinnudaginn í þvílíkum pirringi. Þegar ég vann í eitt ár í Langholtsskóla fannst mér skólastarfið spennandi og gott. Ég var ánægður með hvernig öllu var háttað þar og leið nokkuð vel. Og ég sá að krökkunum leið vel. Nú er ég kominn á 5. mánuð hjá Austurbæjarskóla og sagan er allt önnur. Ég starfa nú í tveimur bekkjum og þeir eru alveg svart og hvítt. Annar bekkurinn er til fyrirmyndar. Virkilega. Krakkarnir eru jákvæðir, finnst gaman að vera, standa saman og læra vel. Þau eru flugklár, að sjálfsögðu er einn og einn nemandi sem ekki stendur sig jafn vel og þessvegna er ég settur inn til aðstoðar, fyrir einn nemanda. Gott og vel. Í hinum bekknum ríkir óreiða, neikvæðni, hávaði og almenn vanlíðan. Nú í fyrstu kennslustund í dag fylgdist ég vel með krökkunum. Ekki ein einasta manneskja var að vinna. Þetta er svona í langflestum stundum sé ég. Ég var ráðinn þar inn vegna eins nemanda. Strákanemendurnir í þessum sama bekk eru einnig verulega til ófriðar í frímínútum. Ásamt mörgum öðrum og mig grunar að þetta sé vandamál hjá fleiri bekkjum. Í fyrri bekknum sem ég talaði um er gáfuð, ljúf og metnaðarfull kennslukona. Í hinum er kennslukonunni alveg sama um hvað krakkarnir eru að gera, hún öskrar af og til "hvaða læti eru þetta eiginlega" og fer svo og nær sér í kaffi/skrifar e-mail/fiktar í skúffunum sínum. Hún gengur ekki um og reynir að hjálpa. Ég reyni að gera það en ekki einn einasti nemandi hlustar á mig. Ég veit að fleiri bekkir haga sér svipað, þar sem ég hef verið í forföllum í nokkrum árgangum. Kennararnir hafa enga stjórn á börnunum. Sú var ekki sagan í Langholtsskóla en þar var skólastjóri sem var annt um skólann sinn. Maður sá hann oft á dag með bros á vör, að bjóða fólki í heimsókn að skoða skólann o.fl. Skólastjórinn hér situr í símanum allan daginn. Ég sé hann aldrei og ég þekki hann ekkert. Ég hef ekki fengið neinar leiðbeiningar um hvernig ég eigi að vinna starf mitt hér. Engin hrós, ekkert gagnrýni bara ekki neitt. Þroskaþjálfi skólans... ég veit ekki einu sinni hvernig hún lítur út og man ekki hvað hún heitir. Ég man þó að hún er kvenmaður... eða var það kannski karl..? Það er komið svo ofsalega illa fram við almenna starfsmenn að það hálfa væri nóg. Stór hluti af þeim eru útlendingar, að stórum hluta austur-evrópubúar. Þau sitja ein á kaffistofunni og tala ensku sín á milli. Af og til er yrt á þær. Sama með mig. Ég sit einn á kaffistofunni. Og sem nýr starfsmaður ætti það ekki að vera ég sem á að kynna mig. Fólk á að koma til mín og segja "já, ert þú nýji stuðningsfulltrúinn" En öllum er skítsama. Þau vita örugglega ekki hver ég er eða hvað ég geri. Halda að ég sé gangavörður eins og allir hinir ómerkilegu sem ekki eru kennarar. Annað mál er sá að Austurbæjarskóli segist vera fjölþjóðlegur skóli og býður til sín heilmikið af útlenskum nemendum. Sem hann gerir. En hvað gerist hjá þessum nemendum? Þau eru öll til trafala. Þau sitja í kennslustundum og læra ekkert, læra enga íslensku, og bekkjarkennurunum er skítsama um þau. Láta þau fá verkefni og gera ráð fyrir að þau leysi þau bara. Ég veit ekkert hvað gengur á í þessarri nýbúadeild svo ég get ekkert sagt um hana, þó ég þekki eina konu sem vinnur þar, og hún er mjög indæl. Ein af fáum manneskjum sem yrðir á mig. Ég hugsa að henni þykir vænt um velgengni barnanna og hjálpi þeim vel. Hún er einnig austur evrópsk. Það er enginn asíubúi sem starfar í skólanum en samt er stór stór hluti nemanda frá asíu og það er að sjáfsögðu ekki auðvelt að læra evrópskt tungumál svona allt í einu. þvert á móti. æi. úfff. þetta er komið gott. ég hef aldrei skrifað svona mikið hér á ævinni. Vonandi gerir þetta eitthvað gagn. Kv. Pétur Eggertsson. 5.5.07
Heyriði halló hér
er einhver hér inni að fylgjast með Heroes? mér finnst það sko aldeilis skemmtilegt sjónvarpsefni og ég vil endilega ræða svolítið þátt númer 20 við einhvern sem hefur áhuga endilega skrifið mér póst. eða hringið. alveg sama. 3.5.07
Halló
Ég uppgötvaði í morgun hvar múmíndalurinn væri. Hann er staðsettur í hálsakotinu mínu. Það er mjög GAMAN. Ef þið viljið skrifa póst þangað þá skrifiði Múmíndalurinn c/o Háls Hálsson Hálsakot 12 550 Hálsborg HÁLSLAND hihihihi um daginn dansaði ég við spaugstofuna. Randver kom og allt. Svo kom KALLI. Berglind er með stór eyru. spaug. stofan. iii ógisslea. hihi BLess |
||||||||||||||||||||||||||||||