be[¡]kon

23.6.06
 
Þetta hér ætti að skemmta þér í dágóðan tíma. MMMM ég elska youtube.


22.6.06
 
(Þessi 2 blog hér eru í raun 1, blogger er bara drasl og vildi ekki leyfa mér að prenta alla þessa runu í einu....)

Ég er búinn að kaupa mér miða á flemsku-belgísku hátíðina pukkelpop. Þessi hátíð er án efa með besta line-up sem hefur sést. En það sem gerir þessi hátíð eru headlinerarnir. Allar þessar sveitir (nema keane) eru þær hljómsveitir sem skilgreina 90's alternative senuna, áður fyrr á þessum lista var Audioslave (Rage Against The Machine) og svo er þarna DJ Shadow og Roni Size. Svo er ég búinn að vera að lesa sögur um að Smashing Pumpkins munu láta sjá sig (og ég er búinn að hlusta á SP síðan ég las þetta, og er alveg ýkt spenntur). Ef Kurt Cobain væri ekki búinn að skjóta sig í hausinn væri Nirvana þarna. Ef þú værir að tala um 90's alternative tónlist myndirðu mjög líklega nefna allar þessar hljómsveitir. Og þessvegna er fólk svona spennt fyrir þessarri hátíð, án þess að gera sér grein fyrir hversu sniðugir skipuleggjendurnir eru. Ég hef aldrei á ævinni hugað að fara á festival út af aðalnöfnunum, alltaf eru það litlu nöfnin sem hafa heillað mig


 
En nú er það komið að okkar kynslóð að upplifa að sjá gömlu uppáhaldssveitirnar okkar. Við erum of ung fyrir Metallica og of gömul fyrir Korn. Við viljum Nirvana. En þeir eru ekki lengur til. Við fáum Radiohead í staðinn og það er fokking geðveikt.

Auk þessa nafna eru einhver bestu danstónlistarnöfn dagsins í dag að spila:

The Knife

Tiefschwarz

Black Strobe

Digitalism

Hot Chip

Tiga

Mylo

James Holden

Anthony Rother

Justice

Erol Alkan

!!!

Carl Craig o.fl

sem mér finnst líka geðveikt af því að við, börn fædd kringum 1985, eigum systkini sem fóru á rave. Við vorum of ung. Við vildum fara. Síðan hefur okkur dreymt um það.

Hvenær verður rave í reykjavík? Getum við ekki reddað þessu? Það hlýtur að styttast í þetta. Allir eru þyrstir í rave. Strobe ljós, glo-sticks og fokking teknó.

Getur það ekki gerst núna þegar sólin er komin til að vera? Í gær var lengsti dagur ársins. Ég hafði ekkert séð sólina almennilega síðan ég var í london fyrir rúmum mánuði síðan. Mér finnst ekki gaman að hanga inni allan daginn í tölvunni. Og fótboltinn er orðinn pínu einhæfur.

Lífið er eintómt og kalt

- kveðja, Billy Corgan

Annars var ég að gera nýtt mix sem er akkúrat 60 mínútur. Endilega dánlódið því hér:

Mix nr. 11

1. Delia Gonzales & Gavin Russom - Relevee (Carl Craig Remix)

2. JPLS - Twilite 7

3. Hugg & Pepp - Hund

4. Gui Boratto - Beluga

5. Audio Werner - Wash The Dishes

6. Booka Shade - In White Rooms (Electrochemie Remix)

7. Cirez D - Knockout (Sebastian Leger Remix)

8. Röyksopp - Beautiful Day Without You (Cass & Mangan Living Underdog Remix)

9. Huggotron - Dance

10. The Knife - We Share Our Mother's Health (Trentemøller Remix)

11. Tiga - Pleasure From The Bass

12. Palermo Disko Machine - Pump


8.6.06
 
Hæ. tónlist hér.

The Knife - High School Poem
Uffie - Pop The Glock (Sebastian Remix)
Spank Rock - Backyard Betty
Gus Gus - Demo 54
Cybotron - Clear
Hell & Anthony Rother - German Bodymachine
Alter Ego - Tubeaction (Losoul's "Serial Biller on Rocky Beech" Remix)
Claude Von Stroke - Seven Deadly Strokes
Trentemøller - Killer Kat
Cirez D - Knockout
Tiga - You Gonna Want Me (Isolée In-My-Bee Remix)
Extrawelt - Fernweh
Duoteque - Drug Queen
Ellen Allien - Brain Is Lost
Simian Mobile Disco - Hustler
Playgroup - Overflow (Optimo Remix)
Lifelike & Kris Menace - Discopolis
Wamdue Project - King Of My Castle
Digitalism - Zdarlight
MU - Chair Girl
Uffie - Ready To Uff
Hot Chip - Over & Over (Naum Gabo Remix)


P.S.


3.6.06
 
Djöfull er eitthvað fáránlegt að fara að sofa núna.