be[¡]kon

27.9.05
 
1. Einu sinni datt einhverjum í hug að kalla mig Pétur Beikon. Ég hef aldrei verið feitur eða neitt þannig, (eða kannski pínu ég veit ekki) en pabbi minn heitir Eggert. Ég er þá að sjálfsögðu Eggertsson. Egg er oftar en ekki borðað ásamt beikon, og þar hafið þið uppruna hins fáránlega gælunafns sem ég hljót fyrir fjórum árum eða svo og trónir hér efst á síðunni.

2. Mér finnst ekkert skemmtilegra í heiminum en að kaupa mér geisladiska. Ef ég á einhvern smá pening, þá er ég ekkert að spara hann. Ég fer út í tónlistarbúð og ég kaupi mér geisladisk og er þ.a.l. í góðu skapi í allavega viku. Stundum verð ég ótrúlega óþolinmóður og brenn þá geisladisk til að hlusta á í bíl eða strætó, en viku seinna fæ ég sektarkennd vegna gervileikans sem býr í brennda geisladisknum.

3. Annar hlutur sem mér finnst skemmtilegt er að gera mixtape. Ekki mixdisk. Tape. Í fyrsta lagi eru 10 fleiri mínútur á kassettu. Í öðru lagi vandar maður sig meira við gerðina og leggur alla þína ást í hana og í þriðja lagi er hægt að mixa þau live og það er ógeðslega skemmtilegt. Verst er að ég geri svona tape alltof sjaldan, því að það tekur alveg minnst 4 klukkutíma að undirbúa, taka upp og gera artwork og allt saman. En þið megið endilega panta hjá mér spólu og ég skal senda hana í pósti og þið megið líka gefa mér.

4. Þegar ég var fimm ára flutti ég til Leeds í Englandi. Ég bjó þar í sjö ár. Að vera barn á Englandi er glatað. Ég sá muninn þegar systir mín fór út að leika sér með vinum sínum á sumrin til 9 eða eitthvað. Krakkar í Englandi borða kvöldmatinn sinn klukkan 5. Hann samanstendur oftast af Fish Fingers eða Chicken Nuggets eða einhverskonar kjöt í raspi sem lítur út eins og risaeðla eða fótur eða ljón, ásamt frönskum og bökuðum baunum. Stundum bara franskar og bakaðar baunir. Svo fara þau að sofa, ca. hálf sex/sex. Þá fara foreldrarnir að elda sinn eigin mat. 10 ára krakkar vaka til átta í mesta lagi, 9 kannski um helgar. Það var ekki skemmtilegt að búa í Englandi. Þegar ég kom aftur hingað í 8. bekk var ég ofboðslega hamingjusamur, þrátt fyrir smá félagslega erfiðleika.

5. Mér finnst leiðinlegt að skipuleggja sjálfan mig. Ég þoli ekki að fara eftir plönum. Reyndar er ég í vinnu og fer alltaf eftir planinu þar, en annars finnst mér leiðinlegt að ákveða fyrirfram hvað ég ætla að gera. Ég meina eru örlögin ekki núþegar búin að ákveða fyrirfram hvað á eftir að gerast?
Hérmeð ætla ég að tileinka mér dada.

Takk.

Ég klukka:
Veru
Þorleif
Kat
Dodda og
Aldísi


25.9.05
21.9.05
 
Einu sinni voru fjórir strætóar.

Einn var gulur og hinn beygði til hægri.


13.9.05
 
Mig langar að vera hippi.


8.9.05
 
Fokk maður. Fór á einhverja John Cage tónleika áðan. Fokk hvað þetta var ógeðslega glatað. Ég meika ekki svona tónlist, ógeðslega fokking artí og ömurlegt... uu... spilum á dótapíanó... uuu... það er svo flippað.... uuu... það er bara ekkert fokking vit í þessu... uu... höfum lag sem er eintóm þögn... blölböölbagsdihsldigjapo.....

Þúst... ég hélt þetta væru einhverjir Mortal Kombat þema tónleikar....



5.9.05
 
Vá hvað það yrði gaman að fara á fyllerí með Róbert Douglas og Birni Bergssyni...


 
Ég sat í strætóskýli með Helga Hóseiarsyni áðan. Ég minntist á hvað veðrið væri fínt og hvað skýin væru falleg. Hann sagði að himnadraugurinn væri enginn venjulegur maður og gæti það sem hann sýndist því hann væri faðir, sonur og heilagur andi. Svo sagði hann mér að enginn marktækur maður vildi lifa sömu ævinni tvisvar. Eins og ég vissi það ekki fyrr. Djöfull er þessi gaur ofmetinn og ruglaður. Þessi heimildarmynd er örugglega ógeðslega leiðinleg.


1.9.05