be[¡]kon |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
div class="%20ut&%20yfir&%20inn&%20undir"
align="center" color="#FFFFFF"
[/table]
Archives Apríl 2008 Mars 2008 Febrúar 2008 Janúar 2008 Desember 2007 Nóvember 2007 Október 2007 September 2007 Ágúst 2007 Júlí 2007 Júní 2007 Maí 2007 Apríl 2007 Mars 2007 Febrúar 2007 Janúar 2007 Desember 2006 Nóvember 2006 Október 2006 September 2006 Ágúst 2006 Júlí 2006 Júní 2006 Maí 2006 Apríl 2006 Mars 2006 Febrúar 2006 Janúar 2006 Desember 2005 Nóvember 2005 Október 2005 September 2005 Ágúst 2005 Júlí 2005 Júní 2005 Maí 2005 Apríl 2005 Mars 2005 Febrúar 2005 Janúar 2005 Desember 2004 Nóvember 2004 Október 2004 September 2004 Agúst 2004 Júlí 2004 Júní 2004 Maí 2004 Apríl 2004 Mars 2004 Febrúar 2004 Janúar 2004 Desember 2003 Nóvember 2003 Október 2003 September 2003 Ágúst 2003 Júlí 2003 Júní 2003 Maí 2003 |
31.10.07
![]() Ég hlustaði á ( ) í gær. Fyrsta skipti sem ég set Sigur Rósar plötu í geislaspilaran nokkuð lengi. Ég var gjörsamlega blown away, gaman að upplifa það einhvernveginn upp á nýtt og svo setti ég strax í kjölfarið Ágætis byrjun í tækið. Ekki að virka. Ég hefði kannski átt að gera það annan dag en æj, maður var allur í klíju við að hlusta á þessi tjjúú og afturábak upptökur og eitthvað. Þessi plata er talin ein sú besta í heimi af mörgum tónlistargrúskurum og svona, en þessi plata er ekkert nema gimmikkar í gegn, allir kaflarnir sem manni fannst geðveikir fyrir hvað, 6-7 árum eru ekkert nema gimmikkar, hjartslættirnir í Svefn-G-Englum, hápunkturinn í starálfi og öll þessi hljóð sem maður fær klíju við að heyra núna. Aftur að ( ), þrátt fyrir að manni finnist þessi "vonlenska" frekar mikið hallæri, þá er tónlistin hér algerlega í fremsta flokki. Hvernig hún ferðast innra með manni og deyfir, hvernig andstæður plöturnar hafa ótrúlega ólík áhrif á mann. Svo er textaleysið svo öflugt, textar geta villt svo fyrir manni um textúr tónlistarinnar en mannsröddin er ákaflega fagurt hljóðfæri sem hefði ekki mátt sleppa á þessarri plötu. En, kannski fyrir utan bullmál Jónsa, er þessi plata alveg laus við gimmikka. Sigur-Rós í hnotskurn og örugglega sú plata sem þeir gefa sig mest í, tilfinningalega. ![]() Þegar ég hafði lokið að hugsa svona ótrúlega mikið út í sigur rós ýtti ég á play á iTunes. Þá hafði ég nýhalað fyrstu plötu L.A. grúppunnar No Age, Weirdo Rippers gefin út hjá Fat Cat (líkt og Sigur-Rós) fyrr á þessu ári. Það var ekkert smá hressandi. Þessir tveir gæjar spila alveg fáránlega lo-fi rocknroll. Við erum að tala um gömul 4-track upptökutæki og miskunnarleysi þegar kemur að pedölum. Ég held þetta sé svolítið hate it or love it dæmi og ég hallast að seinni dálkinum eins og er en umfjallanir fara fyrir ofan garð og neðan. ![]() Akkúrat núna er ég að hlusta á I Believe in You, Your Magic Is Real með YACHT og spyr afhverju í andskotanum þetta hefur farið framhjá mér. Þetta er eins og Animal Collective að spila hip-hop og elektró. Rugl. 29.10.07
Djöfull er mikið af fáránlega feitum tónleikum í kaupmannahöfn í nóvember! Djöfull væri ég til í að vera þarna allan næsta mánuð og lifa á hafragraut bara til að komast á þetta allt, í réttri röð:
Trentemoller, Pharoae Monch, Liars, Mika (Já, það er örugglega geðveikt á Mika tónleikum), Arcade Fire, Air, Deerhunter, Cocorosie, Crystal Castles, Beirut, Ash, The Fiery Furnaces, Stereo Total, Múm, Happy Mondays, The New Pornographers og Okkervil River!!! Þetta er handfylli, svo strax 1. des eru The Twilight Sad að spila. Sjálfur á ég miða á Arcade Fire (sem ég veit ekkert hvar er) en á ekki flugmiða. Ég get þó keypt flugmiða um mánaðamótin, en þá er spurningin, á ég að fara til DK í mánuð vinna á skítugum bar og fara á alla þessa tónleika, eða vera áfram á íslandi til að vinna mér inn fyrir jólagjöfunum... ? Eða fara bara á 2 eða 3 tónleika í köben og vinna mér inn fyrir nokkrum ódýrum jólagjöfum? Og kemur einhver með? Ég kannski finn Arcade Fire miðann áður en ég ákveð mig. Og borga kannski kreditreikninginn. Þetta fokkar mér upp. 26.10.07
Það er kominn tími á þetta:
Peter Parker Mixtape - Október 2007 Dáleiðandi minimal yfir í kaffibarsmúsík yfir í fegursta teknólag sem er til a.m.m. Tracklist: Sven Weiseman - Activity Chain Peace Division - Pulses Duoteque - Logo Luka & Lazo - Dust No. 4 (Barem Remix) Delon & Dalcan - Academy Dub Kult - Cluster Fuck Chaton - Catch The Beat (Agnes Remix) Samim - Springbreak Solomon & Stimmung - Feurvogel Jeff Samuel - Fire (St. Sebastian's Adrenaline Remix) Lucio Aquilina - Feeling Plastik Frederico Franci - Cream Simon Baker - Plastik Ricardo Villalobos - Primer Encuentro Latinoamericano Agoria - Les Violons Ivres Vera - hvað þýðir Ivres? 22.10.07
Síðasti dagurinn á Airwaves varð einn sá skemmtilegasti, vegna gæða allra hljómsveita sem ég sá þann daginn, fyrir utan eina.
Bandið með iTunes dreifinguna, Bloodgroup hófu dagskráina í L28 alltof seint, enda stórstjörnur... Frammistaða þeirra var samt ótrúlega kraftmikil og maður skilur alveg buzzið í kringum þau, en ég nennti samt ekki að horfa á allt, sviðsframkoma stelpunnar fór dálítið í mig. Eftir mikið stress í að taka niður græjur og setja nýjar upp byrjuðu Sometime að spila, sem mér fannst gaman að sjá, Danni (fyrrum Maus trommari) er svaka flinkur á raftrommur og gæjinn með Kaoss paddið var að gera tryllta hluti. Næst kom eina leiðinlega hljómsveit dagsins, Solid Gold, þrír gæjar í eins leðurjökkum og eins hár og eins skegg spiluðu leiðinlegt new wave eins og allir aðrir bandaríkjamenn sem fannst töff að kaupa sér gítar eða micro-korg. Eftir lokun náði ég mér í frían bjór í Nakta Apanum þar sem Retro Stefson voru að spila. Þau stóðu sig með prýði, voru í góðu skapi og smituðu út frá sér, í lokinn kom enginn annar en MC Plútó, besti 11 ára rappari íslands, og reif þakið af húsinu. Eftir nokkra bjóra þar í viðbót dreif ég mig ásamt fríðu föruneyti á Iðnó. Borko hóf dagskránna þar og mikið gerði hann það vel, bandið hans var greinilega vel æft og tónlistin ein sú besta krútttónlist sem ég hef heyrt lengi, hlakka til að heyra hvernig Bjössa tekst að koma þessu á CD. Síðan var matartími og það var ekkert annað í boði en Habibi. Nice. Manni var svo skylt að kíkja í Hafnarhúsið að hlýða á Hjaltalín, sem stóðu sig eins og hetjur á stærsta sviði hátíðarinnar, en lélegur hljómburðurinn þar inni hefur líklega ekki gert góða hluti fyrir þá sem ekki hafa heyrt í sveitinni áður, enda enginn pressa um þau sem mér þykir ekki kúl. Ég fann svo Tobba og Ásrúnu sem nenntu með mér á NASA þar sem ég var restina af kvöldinu, ég plantaði mér á efri hæðinni og sötraði nokkra bjóra, en inn á milli sá ég tvö lög með Mugison sem hélt öllu crowdinu í lófa sínum, hann var rosalega magnaður með þétt rokk band, sem samanstóð af Pétri Ben, sem ég þoli ekki, einhverjum plebbatrommuleikar og einhverjum bassaleikara sem ég tók ekkert eftir, svo ég fór aftur upp að drekka bjór. Ég sá eftir að hafa hangið svona mikið uppi þegar ég sá 3 síðustu lög Ra Ra Riot sem ég hafði fordæmt sem leiðinlegt band - tónlistin var ekkert sérstök, en þau voru alveg ótrúlega flott á sviði, með rafmagnsfiðlu og -selló ásamt hefðbundum hljóðfærum, þau náðu meira að segja að mynda mosh-pit, sem var illa liðinn af þónokkrum inni á staðnum, en það voru allt saman fullir unglingsstrákar að bíða eftir einhverju besta live bandi sem til er, !!!. Þeir gerðu allt vitlaust. Nic Offer er svakalegur performer og fór algjörum hamförum á sviðinu og pöllunum og inni í crowdinu. Nýja söngkonan er frekar svöl og í raun skemmtilegri en gamli söngvarinn sem hætti, hann var frekar hallærislegur fannst mér. Ég hefði þó verið til í að heyra eitthvað efni af Louden Up Now, en það kom mér virkilega á óvart hversu vel þetta nýja dót virkar live, mig hefði aldrei nokkurntíman grunað þetta. Ég varð að halda svo áfram að dansa, og heppilega var Patrick Chadronnet að spila á Barnum. Svona fær maður ekki nógu oft að heyra á Íslandi, alvöru Minimal DJ sem hélt crowdinu föstu taki, með ótrúlegum dáleiðandi melódíum og þægilegum klikkum og klökkum. Ég held að ein ástæðan fyrir því að þetta virkaði vel, var vegna góðs kerfis þarna á efri hæðinni, en það eru alls ekki góð kerfi á neinum skemmtistað á íslandi, ég skil ekki afhverju það fjárfestir enginn í þessu, það breytir svo ógeðslega miklu. Ég fann fyrir að ég hafði ekki nærri því jafn mikið úthald í dansinn á sirkus, þar sem kerfið var alls ekki jafn gott, en svo var líka erfitt að hreyfa sig í öllum þessum troðningi. DJ Skeletor og DJezus stóðu sig samt mjög vel og spiluðu ótrúlega skemmtilega tónlist fram eftir kvöldi, ásamt stuðnings frá mér og DJ Lazer sem hefur greinilega æft sig smá og stóð sig betur en venjulega. Trúbadorarnir á Celtic fengu mig svo til að koma mér heim og gangandi Pop-Up gluggi fékk mig til að íhuga um að spila póker á netinu á leiðinni vestur í bæ. Ég svaf til 17:30 daginn eftir. 21.10.07
Jæja, þá ætla ég að hætta að vera neikvæður því góðir tónleikar eru farnir af stað... Í gær spiluðu hjá okkur 3 hljómsveitir. Fyrst til að byrja var dúóið Best Fwends frá Texas sem spiluðu tónlist af kassettutækjum og hrópuðu eitthvað með og uu. hoppuðu mikið. Það var alveg gaman, bara pínu skrýtið. Næst á eftir spilaði annað dúó, en nú frá Englandi. Slow Club heita þau og voru ótrúlega krúttleg og lítil, einskonar ensk útgáfa af Moldy Peaches í rauninni, bara kassagítar og mjög frumstætt tromusett, ásamt einum stól sem trommuleikarinn, Becky, hafði með sér og trommaði á.
Svo kom aðal attractionið kl. 6, Jenny Wilson, AKA Andrea Gylfadóttir frá Svíþjóð. Hún söng voða fallega og svona en þetta var voðalega eitthvað.. meh... óáhugavert og semi-leiðinlegt bara. Kvöldið hóf ég svo á NASA, þar sem ég náði tveim lögum með Mr. Sillu og Mongoose sem mér fannst nokkuð áhugavert og röddin hennar Sillu nær alltaf að fanga hjarta manns. En ég staldraði stutt þar því menn voru óðir að ná sér í Habibi - besta fokking sjitt sem ég hef smakkað lengi - og bjór á Bellys. Það var gott. Við löbbuðum svo á Hafnarhúsið og biðum þar í langri röð í mjög stuttan tíma, en ég fór svo bara einn inn, þar sem Orri Jökulsson var með falsað armband og var tekinn niður af svona 5 wannabe löggunum í gæslunni sem ætluðu að handtaka og handleggsbrjóta greyið strákinn. Þá var Trentemöller ný hafinn að spila sína drungalegu danstónlist sem missti svolítið marks fannst mér í hafnarhúsinu, Bassinn dunaði svo rosalega og dreifðist svo að hann týndist gjörsamlega, en bandið var mjög flott og gaman að sjá þá alla á stanslausri ferð um sviðið. Henrik Vibskov stóð sig mjög vel á trommum, hann var bara eins og trommuheili sá gæji... En ég ætlaði sko ekki að missa af Deerhoof og skellti mér hinum megin við götuna hálftíma fyrir ellefu - og beið í akkúrat hálftíma, kom inn á fyrsta laginu og djöfull var ég sáttur að ná því. Ég hefði verið fúll að hafa misst af augnabliki af þessum tónleikum. Þeir voru, vægast sagt, ótrúlegir. Ólýsanlegir, liggur við. Þau voru svo einbeitt og atvinnumannsleg, tónlistin þeirra sem manni fannst áður vera smá grínleg fær allt aðra sýn eftir þessa tónleika. Ég hlusta á þetta allt, allt öðruvísi núna. Þetta var svo dýnamískt hjá þeim, eina stundina eru þau að spila krúttlegt popp, svo allt í einu free jazz, svo allt í einu rokk... ég gat ekki beint verið að "slamma" eða hoppa upp og niður því ég var bara gapandi yfir hvað þau voru samstillt og ótrúleeega þétt. Ég hefði verið til í að vera þarna í minnst tvo tíma í viðbót. En, ég varð víst að yfirgefa gaukinn eftir aðeins 45 mín. tónleika. Allir aðrir fóru líka, Jakobínarína hljóta að hafa spilað fyrir 5 manns. Ég fór hins vegar yfir í Hafnarhúsið og beið í korter og náði fyrsta laginu með of Montreal líka! Það voru aldeilis skemmtilegir tónleikar, en kannski ekki alveg jafn skemmtilegir og ég hafði vonað eftir, enda Hafnarhúsið frekar slappt venue. Það týnist svo sándið þarna inni og maður heldur ekki athyglinni, nema maður sé alveg fremst. Sem ég var ekki. Bandið var skrautlegt og skemmtilegt, en kannski ekki alveg nógu þétt, hefði Kevin Barnes klónað sig til að spila á öll hljóðfærin, hefði þetta verið ótrúlegt, en hann spilar inn á m.a. alla síðustu plötu. Þetta byrjaði rosa vel hjá þeim, en þeir virtust missa smám saman crowdið og staðurinn fór að hreinsast út í miðju prógrami þegar Kevin ákvað að fara í Gladiator búninginn sinn. Þá fór sándið ennþá meira að týnast og tónleikarnir fóru bara niður á við. Ég var þó skælbrosandi allan tímann og restina af nóttinni líka og fór sáttur heim eftir gott rommglas á Boston. 19.10.07
Stuttu á eftir að ég skrifaði síðast byrjaði Smoosh að spila hérna uppi, ég var reyndar fastur bak við afgreiðsluborðið og gat þ.a.l ekki séð þá tónleika, en þetta hljómaði frekar basic, fyrir utan virkilega þéttann trommuleik elstu stúlkunnar. Á eftir þeim spilaði Elíza, fyrrum meðlimur Bellatrix en hún var frekar leiðinleg. Skil ekki hvað hún er að gera tónlist ennþá.
Tuttugu mínútum eftir að hún klárar labba inn "töffararnir" í The Duke Spirit og spila sitt enska hype-rokk af fullum krafti og heilla alveg einhverja, en ekki mig. Þeir voru samt mjög kurteisir og rosalega þakklátir... Þegar þeir voru að klára slær út rafmagnið og Einar Örn fer í panik að leita af rafmagnstöflunni því M.E.G.A. og Kali voru í fríi og enginn vissi hvar hún var. Jan Mayen spila fyrir 20 manns síðan og loksins gat ég lokað og fengið mér bjór. Eftir bjórinn komu margir aðrir, sumir þeirra voru á Kjarvalsstöðum, þar sem Icelandair var að halda eitthvað exclusive yfir-pródúserað partí. Safninu var breytt í flugsstöð og allur pinnamaturinn var í flugvélamatarboxi. Þema. Eftir rútuferðina niðuríbæ (!) og viðkomu á ölstofunni fór ég á Retro Stefson á NASA. Ég veit ekki afhverju mér fannst það, kannski hef ég séð þau of oft, en mér fannst þau hálf kraftlaus, og ekki alveg að ná þessum stóra sal til sín, sem var trrroðfullur. Þau tóku þetta sama sett og venjulega plús 2 eða 3 lög. Raggi úr Bertel! hefur bæst þarna við og spilar á Sax í tveim lögum, annað eitthvað svaka prog-lag sem var greinilega illa æft og náði aldrei að hitta í mark. Þrátt fyrir að tónlistin sé ótrúlega skemmtileg, er eins og þau hafi ekkert nennt að leggja of mikið í að æfa sig, kannski orðin góð með sig..? Ég vona þó að þau standi sig næst, hef síðan í fyrra haft dálæti af bandinu sem var, imo, einn hápunktanna á airwaves í fyrra. Ég rölti síðan yfir í Hafnarhúsið og fékk mér annann bjór, bölvaði Lay Low og beið svo eftir Grizzly Bear. Þeir stigu á svið á akkúrat réttum tíma og hófu prógramið á held ég nýju lagi, kannski af þessum nýja EP, hef ekki heyrt hann ennþá, mjög sjarmerandi gæjar og lifðu sig vel inní fyrstu tvö lög, en urðu svo þreyttir, og ég líka af krádinu, sem masaði og talaði ALLAN tímann á meðan tónleikum stóð, þeir reyndu að spila af krafti, en virtust svo gefast upp... "We're gonna play two slow songs now, then we'll play Knife, OK?" Mér fannst frekar ömurlegt að heyra þetta. Þeir höfðu enga þolinmæði fyrir þessu krádi, en ættu kannski að vera vanir því, búnir að túra nærri stanslaust í heilt ár og þar af heilmargar hátíðir! Þetta voru mjög mikil vonbrigði og ég væri alveg til í að sjá þá aftur í öðrum, minni sal þar sem fólkið er þarna til að meta tónlistina, en ekki því það er í tísku að vera á tónleikastaðnum, eins og virðist vera staðan með airwaves í dag. 18.10.07
Aaaaahhhh. Þetta er byrjað. Einhverjar fáránlega töff unglingsstelpur voru að labba inn í hús með hljóðfæri... búinn að selja svona þrefalda dagssölu kl. 3 og allir sem labba framhjá hafa eytt svona 30.000 kalli í peysuna sem þeir eru í.
Í gær byrjuðu tónleikarnir hér í smekkleysu, en Bertel! beiluðu, aumingja gítarleikarinn var handleggsbrotinn og gátu þeir þvímiður ekki spilað, en Skakkamanage hófu þetta og spiluðu ótrúlega krúttlegt og leiðinlegt sett. Ég faldi mig bara á meðan. Sá svo Hjaltalín í skífunni sem voru bara eins og alltaf. Fór svo á kóræfingu. Fór svo á Grand Rokk þar sem röðin náði alveg að Vínli svo ég nennti ekki þangað inn, fór í staðinn á Gaukinn á einhverja leiðinlega hip-hop sveit sem ég nenni ekki einu sinni að leita uppi nafnið á. Þaðan dreif ég mig á Bellys og fékk mér babybjór því ég var á bíl og gat ekki einu sinni klárað helmingin! Því mallakúturinn á lilla pésa var ennþá að jafna sig eftir pestís. Fór aftur á Gaukinn og sá Poetrix sem var eiginlega sama hljómsveit og var á undan, en bara mun Feitari. Reyndar var einhver ömurleg söngkona þarna með þeim sem eyðilagði heilmikið, en Rósa úr Sometime kom og bætti það upp í einu lagi sem hún söng í. Svo stigu á svið Danni og Dóri D eða 1985! með feitari rímur og f-f-f-f-feiiitari beats en nokkurntímann áður á íslandi. Hlakka til að kaupa plötuna þegar hún kemur í búðir og rúlla Laugaveginn og blasta út um rúðuna. ehh... Rottweiler byrjuðu svo að Rott-væla og ég labbaði út. Fannst þeir engan veginn nógu feitir, sérstaklega svona á eftir 85!. Kom aðeins við á Organ og staldraði við í tvö lög hjá Cocktail Vomit, sem er vægast sagt besta 90s band sem ég hef séð, verst að þau eru 15 árum of seint á ferðinni. En ég bölvaði því líka að vera ekki fullur því allir þarna inni virtust vera að skemmta sér en báðu þó ítrekað um "Everybody" eða "Rækjusalat". Leiðinlegt að vera One-hit wonder, en fylgir það ekki því að vera 90s band? Komið á Smoosh! kl. 16:00!!!!111!11 17.10.07
Jæja, Airwaves fer af stað í kvöld.
Þetta er það sem ég ætla að sjá: Miðvikudagur: 16:40 - Bertel (Smekkleysa, POP, Rokk & Rósir) 17:20 - Skakkamanage (Smekkleysa, POP, Rokk & Rósir) 18:50 - Hjaltalín (Skífan) 21:45 - <3 Svanhvít (Grand Rokk) 22:30 - Naflakusk (Grand Rokk) 23:15 - Vicky Pollard (Grand Rokk) 00:00 - Alræði Öreiganna (Grand Rokk) Fimmtudagur: 16:00 - Smoosh (Smekkleysa, POP, Rokk & Rósir) 16:40 - Elíza (Smekkleysa, POP, Rokk & Rósir) 17:20 - The Duke Spirit (Smekkleysa, POP, Rokk & Rósir) 18:00 - Jan Mayen (Smekkleysa, POP, Rokk & Rósir) 18:30 - Sprengjuhöllin (Skífan) 19:10 - Boys In A Band (Skífan) 20:00 - Slow Club (NASA) 20:45 - Best Fwends (NASA) 21:30 - Retro Stefson (NASA) 23:00 - Grizzly Bear (Hafnarhúsið) Föstudagur: 16:00 - Best Fwends (Smekkleysa, POP, Rokk & Rósir) 16:40 - Slow Club (Smekkleysa, POP, Rokk & Rósir) 17:20 - Bob Justman (Smekkleysa, POP, Rokk & Rósir) 18:00 - Jenny Wilson (Smekkleysa, POP, Rokk & Rósir) 20:00 - Mr. Silla & Mongoose (NASA) 20:45 - Bloodgroup (NASA) 21:30 - Trentemoller (Hafnarhús) 22:15 - Reykjavík! (Gaukurinn) 23:00 - Deerhoof (Gaukurinn) 00:00 - of Montreal (Hafnarhús) Laugardagur 14:00 - Radio LXMBRG (Smekkleysa, POP, Rokk & Rósir) 15:00 - Bloodgroup (Smekkleysa, POP, Rokk & Rósir) 16:30 - FM Belfast (Mál & Menning) 20:00 - Borko (Iðnó) 21:30 - Hjaltalín (Hafnarhús) 22:15 - Mugison (NASA) 23:00 - Ra Ra Riot (NASA) 00:00 - !!! (NASA) Ég verð líklega á þessum stöðum á þessum tímum ef þið viljið hitta/forðast mig. Annars verð ég með úttekt á öllum tónleikum sem ég fer á hér á síðunni á næstu dögum. woo. 14.10.07
Undanfarna mánuði hef ég verið að reyna að afla mér þekkingu á alternative rokk-senu 10. áratugarins án mikillar lukku. Ég fór þó loksins að hlusta á Stereolab, Sebadoh og Eels, reyndi að hlusta á R.E.M. (sem gera alls ekki neitt fyrir mig) og varð fyrir vonbrigðum með shoegaze "meistaraverkinu" Souvlaki m. Souldive. Í fyrradag náði ég þó í plötuna "Dusk at Cubist Castle" með Olivia Tremor Control sem kom út 1996. Þetta er einskonar psych-dream-pop plata, algjörlega rökrétt framhald af shoegaze senunni og Alt. Rokki Becks o.fl. bandaríkjamanna. Algjör gullmoli sem er of lítið fjallað um í tengslum við bandarísku senuna, þar sem risar eins og Beck, Pumpkins, Flaming Lips og helvítis R.E.M. sitja efst uppi. En þegar ég las meira um OTC uppgötvaði ég líka Elephant 6 Recording Company, upptökufyrirtæki úr Georgia stjórnað af Jeff Mangum og æskufélögum hans þar sem störfuðu, ásamt öðrum, sveitir eins og Apples in Stereo, Elf Power og að sjálfsögðu Neutral-Milk Hotel. Svo á seinni tímum hófu Ladybug Transistor og of Montreal sína ferli þarna (þess má geta að allir úr Elephant 6 kóllektívnum taka þátt í hrópunum í Nickee Coco á The Gay Parade). Mér þótti merkilegt að sjá allar þessar sveitir þarna saman settar, allt saman með þeim fyrstu til að búa til Indie Pop í þeirri mynd sem við þekkjum það í dag. Mér þykir ótrúlega sérstakt að ég sé að lesa um margar sveitana þarna núna í fyrsta skipti, þar sem þetta fólk hefur starfað frá árinu 1991, líklega á sama tíma og Beck og Flaming Lips, en á undan Deerhoof, Spoon, Arcade Fire og Montreal senunni, Animal Collective o.fl. sveita sem eiga Elephant 6 mikið að þakka, mjög kreatívt tímabil sem hefur algjörlega gleymst og þarf algjörlega að grafa upp betur. Neutral-Milk Hotel og of Montreal þekkja flestir, en Elf Power, Essex Green og sérstaklega Olivia Tremor Control eru sveitir sem eiga upp á pallborðið núna.
Annað sem ég vill nefna: 1986. Það var að koma safndiskur með bresku indie-poppi frá 1986 inní búð - einskonar blanda af The Smiths og Shoegaze tónlist... endalausar sveitir sem ég þekkti ekki áður sem eiga athygli skilið, ásamt Primal Scream, Jesus & Mary Chain og Television Personalities, endilega tékkið á! 13.10.07
úff.
ég er að spila The First Crusade með Jakobínarínu. Afhverju slepptu þeir ekki að gefa þetta út? Þessi tískubóla dó 2005 og ætti að vera alveg útdauð núna. Þeir eru búnir með NME túrinn, það ætti að vera feyki nóg. Söngvarinn í þessu bandi er eins og Mark. E. Smith á sterum, sem hljómar ömurlega. Ef þú ætlar að stæla Mark E Smith þarftu að vera fyllibytta. Ekki unglingsstrákur sem heldur hann geti samið sniðuga texta með því að nota orð eins og motherfucker og fleiri í þeim dúr. It goes on and on and on/Goes round and round... textabrot úr laginu Jesus. Æjæjæjæjæj. En að sjálfsögðu er ekkert verið að stæla Mark E Smith - ætli hann hafi vitað hver það væri þegar hann bytjaði... þetta er ekkert nema stæling af leiðindagæjanum Pete Doherty, sem er að sjálfsögðu að stæla Mark E Smith sjálfur. Svo er þetta helvítis Cure/Joy Division gítar reverb alls staðar, sem The Killers eru búnir að eyðileggja og ætti ekki að heyrast á plötu fyrr en eftir 10 ár. Annað textabrot: "Ég hugsa, ég hugsa, ég hugsa allt of mikið". Ég man hvað mér fannst trommuleikarinn góður á tónleikum fyrir ári eða svo. Nei tveim árum. Það er allllls ekki búið að ná þeirri orku inná diskinn, hann týnist algjörlega í þessum endalausu kaflaskiptum sem gera þessa plötu að algjörri ringulreið, auk þess sem masteringin er hræðileg, bassinn er alltof hár, gítarinn alltof lágur, og vókalinn er bara í ruglinu. Það er ekkert samhengi í neinu lagi, bara endalausar brellur sem gera plötuna virkilega óhlustanlega. Jæja, lag 6, Instrumental surf lag... þetta er ágætt. Hér eru flottar trommur og rockabilly gítarsánd, mjög flott - afhverju er ekki meira svona??? Næsta lag byrjar alveg eins og Boy's Don't Cry og helvítið byrjar að syngja aftur, og svo kemur sami klímax og í öllum hinum lögunum. Jeez. ég gæti aldrei notið þess að hlusta á þessa plötu heima. Hún er alltof kaótísk, og ég meina, ég hef mjög gaman af háværri tónlist, en þetta er bara svo illa smíðað og bara... leiðinlegt. Kaupið þessa plötu ef þið viljið gefa grín-gjöf eða setjið hana í póst hjá einhverjum sem þið hatið. Svona eins og sumir senda orma, þá er alveg eins hægt að senda Fyrstu krossferð Jakobínarínu. Vonandi fara þeir í aðra krossferð - ekki grófu þeir upp eitthvað sem enginn annar hafði grófið upp áður í þessarri fyrstu. EN - ein góð íslensk kom út í síðustu viku - Sometime platan. Kom mikið á óvart. 11.10.07
Í vinnunni sit ég dauðþreyttur eftir að hafa eytt nóttinni í að þrífa gubb og öllum deginum í að vorkenna tveim krökkum. Þessir krakkar eru systkin mín, en ég var settur í barnapíu hlutverk meðan foreldrar mínir skruppu til Flórens. Týpískt að þau skulu bæði fá gubbupest. Á sama kvöldi.
Það sem heldur deginum gangandi er þó þessi nýja Radiohead plata, In Rainbows. Djöfull hef ég beðið eftir þessu og djöfull er hún geðveik. Þetta er engin Kid A eða OKC en einhverstaðar þar í nándinni liggur hún. Þetta er það sem HTTT hefði átt að verða en misheppnaðist algjörlega. Lögin Nude og Weird Fishes/Arpeggi eru án efa ein bestu lög sveitarinnar hingað til, skáka Pyramid Song og How To Dissapear. Ég hvet alla til að fara inn á inrainbows.com og ná sér í plötuna og borga fyrir nákvæmlega það sem þið viljið (eða á milli 0 og 100 pundum). Gott er þá að staldra við og hugsa hversu mikils virði það er að kaupa tónlist. Ég sjálfur keypti þennan diskkassa á 40 pund (eða um 6.000 kr - aðeins meira en Hlemmur Sigur Rósar) og fékk þetta download frítt með, skrýtið að maður geti ekki borgað meira fyrir kassann... þó ég myndi persónulega ekki gera það. Annars kemur platan í búðir í jan og borgar pening til plötuframleiðandans og einhverra gæja í flottum jakkafötum og bindi og einhvern smá skammt til hljómsveitarinnar... svona 40% myndi ég halda. Ekki það að Radiohead þurfi á einhverjum auka pening að halda, en þeir þurfa heldur ekki plötufyrirtæki. Þeir þurfa engan til að kynna plötuna. Það er nóg að þeir skrifuðu inn á bloggið hjá sér að platan væri komin og næsta dag voru líklega flestir fjölmiðlar búnir að prenta. Fréttin var allavega í Mogganum og Fréttablaðinu. Síðan þá hef ég allavega lesið tvær stuttar greinar um plötuna í íslenskum blöðum. Sveitin þarf heldur engan millilið til að ganga í prentun á plötunni, og greinilega þurfa þeir ekki að hafa áhyggjur af dreifingu. Það hafa örugglega mjög margir borgað pening fyrir þetta download og allmargir keypt þennan diskkassa. Sveitir eins og Radiohead þurfa engan til að redda sér. En hvað með minni sveitir? Þurfa þau á plötufyrirtækjum að halda? Eru ekki allir sem slá í gegn að gera það sjálfir í gegnum blog, myspace, pitchfork o.fl staði? Eru ekki fjölmiðlar að vinna starf plötuútgefanda fyrir þá, og líka betur? Er einhver þörf á þessum milliliðum? Áður en ég skrifaði þetta var ég að huga að því að fara í music-business nám. Myndi það ekki stefna mér í glötun? Önnur merkileg tónlist: Chromatics - Night Ride Las Malas Amistades - Patio Bonito Ricardo Villalobos - Fabric 36 Supermayer - Save The World svo var Random Spirit Lover m. Sunset Rubdown að lenda hingað inn í búð. Skyldueign. |
||||||||||||||||||||||||||||||