be[¡]kon

29.5.03
 
Bisý bisý bisý bisý, bisý læk a bí. Ég hef engan tíma haft til þess að komast að tölvunni minni undanfarna daga og ég afsaka bloggleysi. Ég er nefnilega búinn að vera að vinna!! Ég er að bera tekk olíu á gluggakarma og hurðir á hús í skerjafirðinum. Ekki alveg mitt sérþekkingarsvið að nota þykka pensla og svona en þetta gengur bara nokkuð vel... Ástæðan fyrir því að ég sé að vinna er vegna þess að ég bakkaði óvart á bíl (eins og ég hef reyndar gert marg, margoft en núna skildi ég far eftir á hinum bílnum) og þar af leiðandi þurfti ég að stússast í einhverju leiðinda tryggingarveseni, en það kom svo sannarlega á óvart að eigandi bílsins (Þrælljótur Fiat Multipla - ég var hálffeginn að hafa skemmt hann pínu - ætli þetta hafi verið dulvitundin?) bauð mér vinnu við að mála nýja húsið sitt.... Núna verð ég betur staddur í sumar (Götuleikhúsið dugar engan veginn fyrir allt sumarið). Ég er búinn að vera að bíða og bíða eftir þessu blessaða skólablaði okkar MHinga, áttum að fá það í pósti eftir helgi - mér sýnist önnur helgi vera að ganga í garð - hmmmm.... ef bréfalúga heimilis míns færir mér ekki þau gleðilegu tíðindi að Beneventum hafi borist í gegnum þau (ó já, bréfalúgan mín getur talað - og ekki sem verst heldur) munu fingur fjúka. Og kannski einstaka táin.
Svo er bara hressilegt kórpartí á morgun, þetta verður ein besta pæling í langa tíð... fleira, fleira, fleira - Nýja Radiohead smáskífan er komin í hús, safnið alltaf að stækka - núna á ég 19 geisladiska með sveitinni og þar tel ég ekki með hina fjölmörgu tónleikadiska..... Mhhmmm æ löv reydíohed.
Vorvítamín Hamrahlíðakóranna var bara fín pæling ekkert eitthvað frábært, mættu vera færri ungbörn, þau trufluðu stemmninguna sem hefði getað skapast - þau voru líka u.þ.b 20 á alrinum 0 - 18 mánaða. Ótrúlegt. Matrix Reloaded er alveg eins og ég bjóst við, ekki jafn góð og sú fyrri, ekki jafn margar pælingar, betri slagsmálaatriði og alveg býsna góð. Ég man ekki fleiri atburði síðastliðna daga - ég ætla að reyna að telja upp plötur dagsins en suma daga var ég allt of upptekin til að geta hlustað á tónlist - ég veit ekki hvað er að koma fyrir.
26/5 - Radiohead - There There
We are accidents waiting to happen
27/5 - Pixies - Surfer Rosa/Come On Pilgrim
Let's go let's sit let's talk, politics go so good with beer
28/5 - The Vines - Highly Evolved
You know you really oughta move out of California
29/5 - ekkert komið eins og er. Ég hef bara heyrt kórtónlist og útvarpið í dag. Núna verð ég að gera eitthvað í málunum...... Sjáumst.