be[¡]kon

18.5.03
 
Fullu fólki er ekki treystandi. Ég ætlaði að fara á tónleikana sem voru á Grand Rokk í gær... Mínar uppáhalds íslensku rokksveitir að spila - Maus, Botnleðja og Vínyll auk Dáðadrengja og Haltri Hóru. Félagi minn og trommuleikari ætlaði með mér á þessa tónleika þar sem engin annar nennti að fara. Þessi ungi sveinn fór á fyllerí í árbænum og hringdi ég í hann með nokkru millibili - ertu ekki að fara að koma? Þá var hann held ég í þrjú skipti „á leið í eitt partí í viðbót“ Ég gafst upp á drengnum kl. eitthvað og fór hrikalega fúll heim. Uppi í rúmi las ég nýjast tölublað The Face og rakst á viðtal við mannin sem stofnaði lesbíu poppdúettin t.A.T.u. Auk þess að vera umboðsmaður einhverjar léglegustu hljómsveitar nútímans er þessi maður mikill heimspekingur og vöktu pælingar hans athygli mína nokkuð mikið.
„I want to cure feelings of fear in people. Pornography is a good feild for it. Because society, schools, church and religion - all press down on people and make them afraid. Man is afraid of church and is afraid of society. The reason for war is being afraid. The reason for the Iraq conflict is that he is afraid. It is not money. it is the feeling of fear. America is afraid. Iraq is afraid too. Hann er að reyna það sama og var reynt með Sex Pistols að sjokkera fólk með þeirri stefnu að láta fólk finna fyrir raunveruleikanum. Seinna í viðtalinu segir hann People have got to understand why they are living. People in the U.S. don't know why they are living. They forget. We have to understand why we are living and what dying means, or we start to be afraid of pornography and we start to be afraid of many things. That's what I've been thinking. Það er nokkuð í þessum pælingum, fólk er alveg að gleyma ástæðuna fyrir lífi, fólk er ekki sátt við dauðann, það er hrætt við hann - þar af leiðandi er það hrætt við klám og hvað nágrannakonan gæti hafa verið að segja um þig. Hann sagði einnig að í Indlandi þar sem voru litlar reglur fann hann fyrir meiri hamingju og meiri skilningi á lífinu. „We are living in a karaoke world“ Karaoke þýðir dauð hljómsveit - Heimurinn er dauður en þykist vera lifandi fólk þarf að finna fyrir lífinu, vera meðvitaðri um að einhvern tíman munum við deyja og hætta að vera hrætt við allt. Lesið þessa grein endilega - The Face, June 2003

Nýi Radiohead diskurinn kemur út eftir 22 daga!!

Plata dagsins er Aphex Twin - Drukqs