be[¡]kon |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
div class="%20ut&%20yfir&%20inn&%20undir"
align="center" color="#FFFFFF"
[/table]
Archives Apríl 2008 Mars 2008 Febrúar 2008 Janúar 2008 Desember 2007 Nóvember 2007 Október 2007 September 2007 Ágúst 2007 Júlí 2007 Júní 2007 Maí 2007 Apríl 2007 Mars 2007 Febrúar 2007 Janúar 2007 Desember 2006 Nóvember 2006 Október 2006 September 2006 Ágúst 2006 Júlí 2006 Júní 2006 Maí 2006 Apríl 2006 Mars 2006 Febrúar 2006 Janúar 2006 Desember 2005 Nóvember 2005 Október 2005 September 2005 Ágúst 2005 Júlí 2005 Júní 2005 Maí 2005 Apríl 2005 Mars 2005 Febrúar 2005 Janúar 2005 Desember 2004 Nóvember 2004 Október 2004 September 2004 Agúst 2004 Júlí 2004 Júní 2004 Maí 2004 Apríl 2004 Mars 2004 Febrúar 2004 Janúar 2004 Desember 2003 Nóvember 2003 Október 2003 September 2003 Ágúst 2003 Júlí 2003 Júní 2003 Maí 2003 |
19.5.03
Ég taldi dósir og flöskur í ruslapoka í dag - djöfull var það leiðinlegt 6 svartir ruslapokar og ég þurfti að telja oní þá. Fékk ekki einu sinni borgað fyrir það, fór með gömul dagblöð líka í sorpu - fæ engar þakkir. Ég ætla að lögsækja pabba minn.
Ég fór líka að leita af vinnu. Ítrekaði í Aktu Taktu, fór í Skífu og Japis, Bónusvídeo og Dominos, 11-11 og 10-11. Og Ikea. Og Fjölskyldu- og Húsdýragrðinn. Allt fullt nema á Dominos og Aktu Taktu. Ég mátti bara sækja um á netinu hjá Dominos. Það væri örugglega gaman að svara í símann hjá Dominos. Bulla í fólki. Maður væri samt líklega rekinn. Það er samt miklu skemmtilegra að bulla í afgreiðslufólki í símanum hjá Dominos. Kúnni: Ég ætla að fá stóra pizzu með pepperoni, skínku og sveppum - mikið af sveppum, alls ekki gleyma þeim Afgr: Já, má bjóða þér Brauðstangir og Ískalda Kók með þessu? Kúnni: Jú takk, en ekki gleyma sveppunum - þeir eru lang mikilvægastir Afgr: Allt í lagi, það er þá 15 tommu pizza með pepperoni, skínku og miklum sveppum, brauðstangir og 2l. Kók Kúnni: Akkúrat - ekki gleyma sveppunum Afgr: Þetta eru þá 2630 kr. og mátt sækja á Skúlagötu eftir 20. mín - hálftíma. Kúnni: Já takk - og mundu - alls enga sveppi!! *skella strax á* Karlinn í 10-11 á Hverfisgötu var mesti blumbi sem ég hef séð. Hann sat inni í kaffistofu og breyttist æi hund þegar hann talaði við mig - urraði og sagði NEI það er ekkert laust. Ég þakkaði fyrir mig kurteisislega og svo beit hann af mér löppina - ég þurfti að fara á slýsó á eigin bíl og láta græða á mig nýja löpp. Það verður ekki til í gervilöpp í nokkurn tíma svo að núna er ég með tréfót. Plata dagsins er Blur - Think Tank We got a file on you!! Að telja dósir og flöskur í poka er mjög leiðinlegt, þessi diskur hélt mér gangandi. P.S. Pistill gærdagsins hefur aðeins verið skoðaður betur. Efnið aðeins útpældari. |
||||||||||||||||||||||||||||||