be[¡]kon

22.5.03
 
Jó! mæ thööögs!!
Ég er að fara að læra tónsmíðar!! Byrja í haust, 3ja ára nám, Raftónlist og Kammer og allskonar hljómfræði og vesen. Æm göna bí big. Var í stanslausri tónlist í 7 klukkutíma í dag, fór í stöðupróf í tónheyrn - vissi ekkert út á hvað þetta gekk, mætti bara og gerði eitthvað, örugglega farið asnalega. Samt er ég með heví tónheyrn. Kann bara ekkert að skrifa tónbil..... Svo fór ég í hljómfræði, heví pæling... Kóræfingu og hljómsveitaræfingu. Hlakka til að fara að spila á almannafæri. Búnir að vera að æfa í 3 eða 4 mánuði ekkert ennþá búnir að spila neitt. Víl köm át við a blast.
Ég féll ekki á önn, bara í líkamsrækt. Það er heví slæm pæling. Fólk á ekki að falla í leikfimi, það er ekki einu sinni próf!! Ég bara náði aldrei að mæta. Missti alltaf af þessum plebba rútum (var í fyrsta tíma á mið.) Svaf alltaf yfir mig... Svo einn daginn, vaknaði ég heví hress, ætlaði ekki að missa af strætó svo ég fór bara á bíl, keyrði uppí laugardagshöll og bara heví góður á því... Svo er enginn í höllinni... ég bara vot ðe fökk og fór bara að rúnta. Kemst svo að því að tíminn hafði verið í víkingi upp í fossvogi - þar sem ég hafði alltaf misst af rútunni vissi ég nátlega ekkert hvert ég ætti að mæta. Fór svo í einn svoleiðis tíma. Einn sundtíma Eina göngu og svo alla hlauptíma. Rútur eru asnalegar.

Jamms, plata dagsins : The Strokes - Is This It?
You ain't never had nothing I wanted but, I want it all, I just can't figure out, nothing.
En í gær var það : Belle & Sebastian - If Your'e Feeling Sinister
Can I write a requiem for you when your dead?