be[¡]kon

21.5.03
 
Jæja, þá er þriðjudagur. . . . . ekkert að gera í fríinu nema að hanga í miðbænum og skoða sömu vörunar aftur og aftur og aftur og aftur....
Ég fór að skoða gömlu geisladiskana mína í dag. Ég fann Moby diskin, Play og setti hann í spilaran.... heví góður diskur, maður hætti alveg að hlusta á þetta þegar allar auglýsingar innihéldu lög eftir kallin.... En svo hættu auglýsingarnar að nauðga litlu grænmetisætuni og núna er bara hægt að hlusta á þetta aftur. Góð pæling. Heví góð pæling.
Vinkona mín klippti mig svo áðan. Hún hefur aldrei lært hárgreiðslu eða neitt svoleiðis en það sem hún getur skapað með skærum ..... bjútiful, bjútiful end íven mor bjútifúl.
Maður er bara svona helvíti ferskur þessa dagana.

Svo sá maður myndbandið fyrir There, There mjög flott myndband, næstum jafn súrt og Knives Out .... Hann Tommi minn breytist í tré í lokin. Ég á eftir að velta mér uppúr symbolismanum næstu vikurnar. Bara vika í smákífuna!!!!
Svo fer ég á tónleika með útvarpshausnum í Nóvember, í London. Mér er alveg sama þó ég þurfi að fara einn. Ég ætla að fara!!!!

Plata dagsins er Moby - Play
Don't nobody know my troubles but God...