be[¡]kon

15.5.03
 
mmm... Það er komið sumar!!! Loksins!!! Enginn skóli, engin vinna (ennþá) og bara alger slökun og nautn
„these are the best days of your lives“
Jæja, núna getur maður farið að djamma! MH prófin búin og allir í góðu skapi.... Ég fer út í sumarbústað með mínum helstu vinum á morgun. Þetta er það eina sem hélt mér gangandi í gegnum prófin... ég hefði aldrei verið svona duglegur við að læra hefði ég ekki haft neitt til að hlakka til, þetta verður heví gaman, heitur pottur, grillmatur, kampavín og kósí fílingur. Gúd Sjitt!!
Ég horfði á mynd Michael Gondry Human Nature í gær... þetta er virkilega góð mynd. Heví pælingar gagnvart nútíma samfélagi og geðveikur húmor, enda voru einhver besti handritshöfundur nútímans að baki - Charlie Kaufmann - Maðurinn á bak við Being John Malkovich og Adaption... Allir eiga að leigja sér þessa mynd eins fljótt og mögulegt er.