be[¡]kon

25.5.03
 
Moðerfokker. Ég hafði ekki hugmynd um að neftóbak gæti farið með svona fólk. Atli mosó ber núna titilinn mest fokked öpp gaur sem ég hef augum litið Þessi maður var að drekka litháenskt vodka allt gær kvöld og heví magn af neftóbakki. Þessi drengur var býsna góður á því þegar ég hitti hann um hálfeittleytið - labbaði skakkt og talaði óskýrt um hvað maður væri „fáránlega góður gaur“ Svo bauðst Vera til að skutla honum heim. Fyrst fékk hann sér meiri neftóbak. Svo fór hann inn í bílin. Það tók hann korter að setjast upprétt. Svo þurftum við að sækja Ívar úr kópavoginum. Við vorum ekki viss hvar í kópavoginum hann væri, svo í stað þess að hringja öskraði Atli nafn hans út um gluggan um allan Kópavog - og Reykjavík. Loks fundum við húsið.... Atli fór inn að ná í hann. Ákvað fyrst að hlaupa á grindverk og detta heví vel, pissa fyrir framan alla á miðju túni og detta svo aftur. Það tók hann aftur korter að setjast rétt í bílnum. Svo vorum við kominn með hann heim til Steina þar sem hann ætlaði að krassja. Þar lét ég hann taka stafrófsprófið (labba í beina línu og snerta nefið) sem gekk skemmtilega og svo reyndi hann að fara heljarstökk afturábak. Mér varð illt í kjálkanum eftir að hlæja svona mikið.
Þessi dagur (24/5) var heví fínn. Vaknaði kl. 8 og fór út í bakarí handa m+p (pælí góðum syni!!!) söng í útskriftini sem var mjög skemmtileg þrátt fyrir sína rosalegu lengd. Svo gaf pabbi mér nýja skó frá Camper - gríðarlegir skór, fór næst á Matthew Barney opnunina - heví góð pæling!!! - og nældi mér í frían bjór - ennþá betri pæling!!!! Þegar ég fékk nóg af sýrunni sem Cremaster er fór ég heim.... kom samt aðeins við í Skífunni og náði mér í Date With The Night smáskífu yeah yeah yeahs Svo var horft á Evróvisjón með undirleik Pizzu frá Eldsmiðjunni.... mmmm.... Heví góð pæling. Norska lagið var lang best. Einlægasta lagið og líka að eina sem var þægilegt að hlusta á. Allt hitt var frekar óþægilegt. t.A.T.u voru með sitt besta lag hingað til, samt var það hrikalegt. Austuríska lagið var fáránlega góð pæling. Svo vann þetta helvítis Holly Valance rip-off lag frá Tyrklandi. *gubb* Eftir keppnina var haldið í Bóbó í kringlubílastæði, Næst var það Glaumbar til hennar Viggu - Vigga, gott teiti! - Svo fórum við Vera í þennan skemmtilega bíltúr með Steina og Atla. Endað var á glæsilegum Bóbó fyrir utan háskólann.
Föstudagskvöldið var líka magnað. Við Vera keyptum okkur vatnsbyssur og sprautuðum á bjullur og blumba á laugaveginum. Svo hélt Hulda Björk prívat tónleika á Austurvelli.
Halli er loksins byrjaður að blogga!! Þið getið skoðað það hér
Plötur síðustu þriggja daga: 23/5 - Justin Timberlake - Justified
Gonna have you naked by the end of this song
24/5 - Radiohead - Amnesiac
Cut the kids in half.
25/5 - Yeah Yeah Yeahs - Fever To Tell
Cool kids belong together