be[¡]kon |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
div class="%20ut&%20yfir&%20inn&%20undir"
align="center" color="#FFFFFF"
[/table]
Archives Apríl 2008 Mars 2008 Febrúar 2008 Janúar 2008 Desember 2007 Nóvember 2007 Október 2007 September 2007 Ágúst 2007 Júlí 2007 Júní 2007 Maí 2007 Apríl 2007 Mars 2007 Febrúar 2007 Janúar 2007 Desember 2006 Nóvember 2006 Október 2006 September 2006 Ágúst 2006 Júlí 2006 Júní 2006 Maí 2006 Apríl 2006 Mars 2006 Febrúar 2006 Janúar 2006 Desember 2005 Nóvember 2005 Október 2005 September 2005 Ágúst 2005 Júlí 2005 Júní 2005 Maí 2005 Apríl 2005 Mars 2005 Febrúar 2005 Janúar 2005 Desember 2004 Nóvember 2004 Október 2004 September 2004 Agúst 2004 Júlí 2004 Júní 2004 Maí 2004 Apríl 2004 Mars 2004 Febrúar 2004 Janúar 2004 Desember 2003 Nóvember 2003 Október 2003 September 2003 Ágúst 2003 Júlí 2003 Júní 2003 Maí 2003 |
8.6.03
Í dag er 8. Júní. Í dag er Radiohead dagur!! Hail To The Thief verður seld í verslun Skífunnar að Laugavegi 26 eftir 5. klst. og 14. mín. þegar þetta er skrifað. Þetta verður glæsilegt. Búin að hlusta á The Bends og OK Computer og bestu B-hliðarnar (sem ég á) svo eru bara Kid A, Amnesiac og heimildarmyndin Meeting People Is Easy eftir og þá verð ég kominn í réttan gír.... Spennó!!!
Tvær af mínum helstu vinkonum eru byrjaðar að blogga. Þessar stúlkur heita Hulda Björk og Helga KRONic og líta þessi tvö blogg bara helvíti vel út og er ég orðinn hrikalega spenntur fyrir að lesa þetta í framtíðinni. Hamingjuóskir og gangi ykkur báðum betur en flestum. Verzlingar eru merkilegir. Ég staldraði aðeins við í ammælisveislu Erlu og Sigríðar Sunnu í breiðholti í gærkveldi og í húsinu við hliðina á var verzló teiti. Ein stúlkukindin úr viðskiptamenntaskólanum stórmerka ákvað að henni fyndist örrugglega skemmtilegra að plebbast í MH- og MR-ingum í næsta húsi. Hún talaði allt of hátt og sagði pirrandi hluti eins og „Sko, þegar maður er í versló þarf maður ekki nema að fara yfir eina götu, labba svona 100 metra, fara niður rúllustiga og þá er maður bara kominn í sautján.“ og „Kron er ömurleg búð, ég versla bara í sautján“ og sagði hún þetta við hana Helgu sem, eins og margir vita vinnur í skóversluninni glæsilegu, Kron... Svo kom hápunkturinn... Vera: „Hver skeit eiginlega í hausinn á þér?!“ Verzlóbjulla: „VERZLÓ!!!!“ Og þá var mikið hlegið. Mér finnst skórnir í Kron alveg yndislegir og hef ég verið stoltastur af þeim skóm sem ég hef keypt þar. Ég fékk brjóst í gær. Áritað og allt saman Plötur dagsins: Radiohead - The Bends Immerse your soul in love Radiohead - OK Computer Bring down the government, they don't speak for us Radiohead - Kid A Here I'm allowed, everything all of the time Radiohead - Amnesiac While you make pretty speeches, I'm being cut to shreds P.S. það er comment system á leiðinni, fleiri linkar og nýr hamstur, um leið og template dótið virkar aftur. |
||||||||||||||||||||||||||||||