be[¡]kon |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
div class="%20ut&%20yfir&%20inn&%20undir"
align="center" color="#FFFFFF"
[/table]
Archives Apríl 2008 Mars 2008 Febrúar 2008 Janúar 2008 Desember 2007 Nóvember 2007 Október 2007 September 2007 Ágúst 2007 Júlí 2007 Júní 2007 Maí 2007 Apríl 2007 Mars 2007 Febrúar 2007 Janúar 2007 Desember 2006 Nóvember 2006 Október 2006 September 2006 Ágúst 2006 Júlí 2006 Júní 2006 Maí 2006 Apríl 2006 Mars 2006 Febrúar 2006 Janúar 2006 Desember 2005 Nóvember 2005 Október 2005 September 2005 Ágúst 2005 Júlí 2005 Júní 2005 Maí 2005 Apríl 2005 Mars 2005 Febrúar 2005 Janúar 2005 Desember 2004 Nóvember 2004 Október 2004 September 2004 Agúst 2004 Júlí 2004 Júní 2004 Maí 2004 Apríl 2004 Mars 2004 Febrúar 2004 Janúar 2004 Desember 2003 Nóvember 2003 Október 2003 September 2003 Ágúst 2003 Júlí 2003 Júní 2003 Maí 2003 |
7.6.03
Ég er í fríi. Algeru fríi. Engum skyldum að gegna. Ég hafði ekki séð tölvuna mína í nokkra daga þar til núna. Ég hef verið upptekinn við að vinna og að sinna félagsskyldum og-störfum (hljómfræði, hljómsveit, LFMH og vinátta) Ég eyddi síustu tveim klukkustundum í að lesa fregnir sambloggara og radiohead manna. Það var ágætt. Hin alræmda hljómsveit Gaur skipuð þeim Helga Möllet - Mækrófón sjóvenist, Halla Dúndurmosa - gítargeit, Pétri Beikon - kíbordist extrodiner, Skúla Keatis - Fönkmeister og Frikka Möntjís - Egils Gull gaur og slagverksmeistara, hélt sína fyrstu tónleika í gær í húsi Ragnheiðar Sturlu í tilefni tvítugsafmæli hennar og voru tónleikarnir gjöf. Þar lék sveitin frumsamda slagara eins og My Wallet Is In My Jacket, Jazzpop og Hvar er sími? en einnig önnur þekkt lög eins og Outtathaway, Lucy In The Sky With Diamonds, There's No Home For You Here, Parklife, Blister In The Sun, o.fl, o.fl. Fygist endilega með þessarri stórmerkusveit í nánustu framtíð þar sem tónleikum mun væntanlega fjölga og frumsömdu efni einnig. Þess má til gamans geta að u.þ.b. 5-7 lög eru í vinnslu og eru þau öll mjög spennandi.
Götuleikhúsið er frábært. Loksins kann ég að sauma. Mig hefur lengi langað til að læra grunnstöðuatriðin í saumum og sniðun og núna hef ég aflað mér þessari dýrindis kunnáttu. Núna fer bráðum í gang hönnunar fyrirtæki okkar Helgu KRONika (sem er með bloggsíðu í vinnslu í öjeblikket - meira um það seinna) og verður það bjútifúl. Ég hef einnig lært að setja í mig linsur, að lesa úr augum fólks, einfaldar leiðir til að afla sér hluti og allskonar frábæra hluti sem nýtast án efa í framtíðinni, í þessarri einu viku sem ég hef verið aða starfa sem götuleikari. Svo hefur líka skapast svo hrikalega góður og jákvæður andi þarna meðal okkar, og í tilefni þess verður hérfrá fastur tengill á hana Mörtu Sigríði Ég er í baðslopp. Í kvöld er svo lokapartí LFMH þessa tímabils. Verða þar stjórnarskipti. Það verður í hlíðunum. Svo er ein betri vinkona mín að halda upp á afmæli sitt. Það verður í breiðholti. Það verður spennandi að sjá hvernig ég mun geta verið á báðum stöðum þar sem fjölskyldubíllin er á suðurlandi og ég er heltekin fátækt þar sem ég verð að spara minn síðasta pening til að kaupa nýjasta Radiohead gripinn - Hail To The Thief sem kemur út að miðnætti aðfaranótt mánudags n.k. Djöfull hlakka ég til. Síðasta mánuð hef ég farið í gegnum safnið mitt, aðeins fjögur lög á dag, ekki meira (að undanskildri There, There smáskífu) og kláraði áðan. Á morgun fer ég svo í gegnum heilu plöturnar, allavega síðustu þrjár. Rosalega væri gaman að sjá þá læv. Getur ekki einhver plöggað þá í Íslandsferð? Það væri allt of gott. En ef það myndi gerast yrði ég ábyggilega veikur og lagður inn á spítala daginn sem þeir spila, eða ég týni miðanum. Týpískt. Plötur síðustu daga: White Stripes - Elephant It may well be that I'm your third man, girl, but it's a fact that I'm the seventh son Massive Attack - Mezzanine You are my angel, come from way above, to bring me love og í dag.... Gaur - óútgefin plata My wallet is in my jacket, my jacket is in my car, my car is in my garage so it musn't be very far. |
||||||||||||||||||||||||||||||