be[¡]kon |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
div class="%20ut&%20yfir&%20inn&%20undir"
align="center" color="#FFFFFF"
[/table]
Archives Apríl 2008 Mars 2008 Febrúar 2008 Janúar 2008 Desember 2007 Nóvember 2007 Október 2007 September 2007 Ágúst 2007 Júlí 2007 Júní 2007 Maí 2007 Apríl 2007 Mars 2007 Febrúar 2007 Janúar 2007 Desember 2006 Nóvember 2006 Október 2006 September 2006 Ágúst 2006 Júlí 2006 Júní 2006 Maí 2006 Apríl 2006 Mars 2006 Febrúar 2006 Janúar 2006 Desember 2005 Nóvember 2005 Október 2005 September 2005 Ágúst 2005 Júlí 2005 Júní 2005 Maí 2005 Apríl 2005 Mars 2005 Febrúar 2005 Janúar 2005 Desember 2004 Nóvember 2004 Október 2004 September 2004 Agúst 2004 Júlí 2004 Júní 2004 Maí 2004 Apríl 2004 Mars 2004 Febrúar 2004 Janúar 2004 Desember 2003 Nóvember 2003 Október 2003 September 2003 Ágúst 2003 Júlí 2003 Júní 2003 Maí 2003 |
29.6.03
Ég fór á akureyri um helgina... og sagan hefst:
Hyundaiinn hans afa dró mig, Huldu Björk og Erlu alla leið norður á akureyri, þrátt fyrir alla erfiðleikana sína í brekkum og stoppið í hvalfjarðargöngunum var ekkert voða sniðugt (hann drap svona hægt og hægt á sér í brekkuni upp úr göngunum). En allt gekk. Það var stoppað í Hyrnunni og bóbóað og aftur á Staðarskála og loks í Varmahlíð, en Hulda var stoppuð af einhverri perralöggu rétt fyrir utan þann bæ (við fengum samt ekki sekt - vei). En loksins komumst við alla leið til bæjarins góða. Við fórum beint á tjaldstæðið og reistum okkar svefnpláss. Svo kom hún Hólmfríður Helga og gaf okkur skoðunarferð af Akureyri kl. 01:00 sem var voða kósý. Svo sváfum við til hádegis og fórum í sund.. glæsileg sundlaug arna. En það vildi svo til að ég hafði gleymt sundskýlunni minni heima á Reynimel og varð að leigja svona ógeðslega litla speedo sundskýlu með nafn sundlaugarinnar prentaða við klofið mitt... ojj bara. Ég bar mig samt bara ágætlega í þessu og var farinn að fíla mig helvíti mikið upp undir lok sundferðar okkar. Næst fórum við að leita að góðum hádegismat og enduðum við á bjullustaðnum bautanum þar sem allur maturinn var voðalega saltur... mmm... hland. Svo skoðuðum við okkur um aðeins og héldum loks aftur að tjaldstæðinu þar sem við hittum hana Helgu aftur. Við sátum í tjaldinu og fórum í s.p.k. af einhverri bjullí ástæðu og höguðum okkur eins og 7. bekkingar. það var samt í lagi. Svo hvíldum við okkur aðeins fyrir kvöldmat - Helga fór í matarboð en við fórum á Greifann(maturinn þar entist alveg til hádegis í dag - helvíti góð spörun). Svo röltuðum við um bæinn og öskruðum á bjullur fórum svo á Kaffi Karolínu sem er örrugglega eitt besta kaffihús sem ég hef farið á - ótrulega gott kaffi vá. Já svo fórum við aftur að labba og reyndum að finna okkur einhvern klúbb eða bar til að fara á en það var allur bærinn tómur! Það voru allir að rúnta sinn litla rúnt. Í svörtum fötum voru að spila á Sjallanum og það kostaði 1500 inn - ekki séns! En hún Helga fór einmitt þangað... Við hittum hana svo ekkert aftur en þetta kvöld hefði örrugglega verið skemmtilegra hefði hún djammað með okkur, en nei. Við fórum svo bara aftur í tjaldið og fórum á megatrúnó þangað til að Hulda sofnaði. þá fórum við Erla í 10/11 og keyptum okkur bóbó og rúntuðum aðeins til að sjá hvort það myndi glitta nokkuð í hana Helgu vinkonu okkar en nei, hún var hvergi sjáanleg. Jæja. Við vöknuðum og pökkuðum saman, ætluðum að reyna kveðja Helgu en hún svaraði ekki símanum þannig að við lögðum bara af stað heim. Við stoppuðum bara í Varmahlíð (þar sem pizzan frá deginum áður var kláruð) og í Staðarskála. Svo var megateppa í mosfellsdalnum. Lengdi ferð okkar um 40 mín. ullabjakk. Ferðin einkenndist aðalega af kynlýfi. Það var ekkert mikið annað rætt en kynlíf. Það var ekki stundað en það var rætt allsvakalega. Mjög merkilegt. Þrátt fyrir leiðinlegt laugardagskvöld var þetta afar kósí ferð og er helvíti gott að komast svona út úr bænum og gista í tjaldi...! Takk fyir, ferðaguðir! Ég ætla hér að lista þær plötur sem gerðu þessa ferð gleðilega: Spice Girls - Spiceworld I need somebofy with the human touch Björk - Post I go through all this before you wake up so I can feel happier to be safe up here with you The Ultimate Dolly Parton Jolene, Jolene, Jolene, Jolene... I'm begging you, please don't take my man Beck - Midnite Vultures Lady, step inside my Hyundai Radiohead - The Bends The best thing you've had is gone away Electric Six - Fire (ef við hefðum átt hana) Let's start a nuclear war... at the gay bar, gay bar, gay bar Amelie O.S.T If it's a crime then I'm guilty, guilty of loving you og Jeff Buckley - Grace Hallelujah (ég kann ekki metna?afyllri setningu af ?essarri pl?tu...) Ég fylgdi örlögum mínum til Akureyrar og þau gáfu mér ekki tækifæri... |
||||||||||||||||||||||||||||||