be[¡]kon

6.7.03
 
Úúú ég er heima hjá Helgu S.Öru að þiggja gott þynnku kaffi eftir góðan þynnku morgunmat á gráa kettinum í afskaplega þunnri stemmningu og allt voða þunnt eitthvað. Já þynnkan er meiriháttar. Það verður allt svo þægilegt og kósí og maður er svo góður við alla sem eru líka þunnir og allt svo fallegt eitthvað... eða þannig.
Já þetta var aðal djammhelgi sumarsins... allir í góðum stemmara og fínustu partí. Vinnan var kvöl, skemmtilega þröngir hattar sem við vorm látin vera með non-stop í einn og hálfan tíma í slow motion göngu um miðbæinn... grrr. En svo hitti ég tugþúsundi MH-inga í miðbænum sem voru allir að kaupa sér föt og á leiðinni í ÁTVR... skrýtin tilviljun? Við áttum síðan afskaplega kósí stund, ég Erla, Vera og Helga S.Ara þar sem við pikknikkuðum á Austurvelli. Eftir það hélt ég heim og skrifaði möntjís á töskuna mína þar sem að þetta er uppáhalds orðið mitt í öjeblikket:
Æ got ðe möntjís,
Æ got ðe lemöneid,
Æ got ðe kúkkíes, ðe krím end ðe lemöneid!
(Sungið við lag Prodigy, Poison)
Fór til hennar Möttu síðan og þar var fínasta semikór stemning í eldhúsinu, langt síðan maður hefur sungið sona kórverk, það þarf að plögga góð kórpartíi á næstunni... Kór fólk... gerum e-ð í málunum!
Laugardagurinn var afskaplega vel stemmdur. Mikilvægur og vel heppnaður LFMH fundur snemma morguns, klipping, verslun, mæting Halla og Helga, hljóðfæraverslunar heimsóknir, kolaportið - þar sem ég og Halli fundum spólu sem hét "We're no Angles" skemmtileg stafsetningarvilla. Svo fór ég heim og hannaði bol fyrir kvöldið í stíl við möntjís töskuna frá deginum áður, en það stendur Lemöneid á bolnum. Gaur borðaði grillaða börgera í árbæ og átti DVD stund með RHCP...
Svo var það ammlið hennar Ástu. Gúd sjitt, Ásta! Æ læk jor vörk!
David Bowie var heiðursgestur þar. En hann og erla eru læk ðis.
DJ Banani þeytti skífum eins og mófó from ðe kongó og var voða gaman að hoppa einn um íbúðina og segjast vera að dansa....
Sigga T hélt svo kveðjuvislu hjá henni Sigrúnu sem var lokaáfangastaður kvöldins ig alger hápunktur. Mjög vel heppnað þar til allt fór úr böndunum vegna allskonar gubbs og glerbrots. Helgi keyrði mig síðan heim (á mínum bíl!) og krassjaði. Í morgun var það bara grái kötturinn og bæjarvapp og nú er ég bara hjá helgu og allt verður kósí í dag......... Ég vona að þessi frásögn sé til sóma, en ég veit að það er ekkert alltaf gaman að lesa sona frásagnir, ég fer að bæta mig í þessu en það gæti tekið sinn tíma. Ég var samt að lesa fyrstu bloggin mín í gær og þau voru ógeðslega skemmtileg... Mér fer aftur í þessarri list.... En þangað til ég verð mikið og gott bloggskáld.... ömmmmm...... já!

Plöturnar: Essential Asian Flavaz: Hits, Beats and New Grooves.
Blur - The Great Escape
She likes a man in uniform, he likes to wear it tight
Prodigy - Music For The Jilted Generation
Æ got ðe möntjís, Æ got ðe lemöneid!