be[¡]kon

20.7.03
 
Já, það er nóg af súkkúlaði í heiminum í dag.
Ég fór í brúðkaup og veislu í gær. Dóttir móðursystur minnar var að gifta sig loksins og allt heví sniðugt. Þetta var alveg býsna væmið... Það voru engin hefðbundin kórlög, bara svona nýleg popplög, Elton John var sunginn og eitt annað lag og söngvarinn var með hrikalega íslenska rödd. Orgelleikarinn klúðraði bæði inn- og útgöngu marssinum. Kómískt. Presturinn var við að fá flogakast alla messuna og það heyrðist ekkert það sem hann sagði, virtist vera með einhverjar heví pælingar. Mér finnst að prestar ættu að blogga, það væri örugglega mjög skemmtileg lesning... ef þið vitið um prest eða guðfræðing sem bloggar látið mig vita...
Að athöfn lokinni söng brúðguminn frumsamið lag í kirkjunni til heiðurs konu sinnar... Mörgum fannst það mjög áhrifamikið og varð kirkjan mikið táraflóð, enda fallega stund.
Veislan var ágæt. Það átti að vera svona Suður Amerískur fílingur, en fílingurinn var bara í matnum, það voru bleikar og hvítar skreytingar og ræðurnar voru leiðinlegar... nema hjá ömmu gumans, hún var ekkert væmin, heví orðheppin og fáránlega fyndin. En maturinn var frábær.
Jæja það styttist í danmerkurförina og vinnan fer að klárast... ótrúlegt hvað þetta sumar leið hratt hjá, áður en maður veit er maður kominn í Mál og Menningu að finna ódýrt eintak af Stærfræði 3000 en maður finnur það ekki og þarf að borga 5000 kr. fyrir nýtt. Rosalegt. En fyrst eru það norðurlönd. Je... hlakka samt heví mikið til að setja upp leikritið á næsta ári og vera í stjórn LFMH og allt það... vá hvað það verður gaman.... við erum líka ekkert smá dugleg! Jæja það er kannski svolítil bið í næsta blogg þar sem að það eru að koma tvær nýjar tölvur á heimilið og ADSL tenging svo að ég get bráðum bloggað frá mínu eigin herbergi, mmmm hvað það er góð pæling...... jæja, ég verðu víst að drífa mig í matarboð til ömmu...
Records of the past few days
Björk - Vespertine
One hand loves the other
Ske - Life, Death, Happiness and Stuff
Darekani aiwo agerunone
The Kills - Keep On Your Mean Side
There's a monkey on my back, makes me act like that
Radiohead - Hail To The Thief
I will lay me down in a bunker underground