be[¡]kon

8.7.03
 
Je! Sigríður Torfadóttir Túliníus hefur skapað bloggsíðu.... mmmm, Æ got ðe möntjís.

Orkuleysa er ekki sniðug. Manni líður svo illa ef maður er orkulaus, svo lekur þessi neikvæða orka út í umhverfið og allir í kringum þig verða þreyttir og úrillir líka. Síðustu þrír dagar hafa verið illa orkulausir. Ég nenni engu. Bara möntja, sofa og slæpast eins og mófó. Svo þarf maður að mæta í þessa orkuríku vinnu. Alveg útúrdúr. Við förum að hlaupa á hverjum morgni og tökum klukkutíma upphitun af allskonar tagi. Það er ekki gott að smita frá sér neikvæðri orku á svona stundum. Allir fara að labba í hlaupinu og gera ekki æfingarnar almennilega, eða allavega þeir sem taka við orku mjög auðveldlega. En ef maður er nógu sterkur, andlega, er hægt að skipta orkunni út eins og ekkert sé en ef slæma orkan heltekur mann svona eins og á mánudögum þá er ekkert varið í að reyna. Já nóg um orku.
Platan: Doves - Lost Souls