be[¡]kon

11.7.03
 
Loksins, loksins, loksins er sumarlegt veður á götum Reykjavíkur. Síðasti rúmur mánuður hefur borið í skaut sér leiðinlegasta veður sem gæti hugsast.... Sona „ekki neitt“ veður - grátt, skýjað, hvorki logn né vindur, bara hrikalega leiðinlegt og óspennandi. En nú er voða gaman, kannski maður fari í lautarferð á morgun.... í öskjuhlíð.... talandi um öskjuhlíð, ætti að lögleiða kanabis? Það er nú spurning... á að herða utan um áfengislög og lögleiða smátt og smátt marijuana? Það er nokkurn veginn búin að sanna að áfengi er nú mun hættulegra en gras og hefur enginn maður látið líf sitt við kanabisneyslu (hass er allt annað mál)... Myndi ykkur ekki líða betur í hasspartíi heldur en á fylleríi? Hróarskelda eða Þjóðhátíð? Ég hugsa að manni myndi nú líða örruggar á hróarskeldu. Samt hef ég komið á hvorugan staðinn, þannig ég get ekki dæmt, en ég dæmi af reynslusögum. Vandamálið við grasneyslu er náttúrulega misnotkun á efninu, heilinn á fólki á til að steikjast gjörsamlega og fólk hættir að vita muninn á hægri og vinstri (reyndar er ég ekki alveg búinn að átta mig ennþá). Ég er ekki alveg sammála að það eigi að lögleiða hass punktur, en það mætti veikja lögin aðeins t.d. það má ekki handtaka þig með minna en tvö grömm eða eitthvað í þá áttina og herða utan um áfengislög, t.d. að gefa fólki ákveðin kvóta í ÁTVR - má ekki kaupa meira en eina bjórkippu eða eina vínflösku í einu, og má bara koma einu sinni á dag, þá minnkar áfengisneysla fólks og verður mun erfiðara að kaupa áfengi fyrir of ungt fólk, sem misnotar áfengið kannski langmest. En það má alveg lækka kaupaldur í 18 ár ef að verður svona kvóti. En stærsta spurningin er: Er samfélagið okkar nógu þroskað til að notfæra sér svona lagabreytingar eða mun þessi rosalega misnotkun á vímuefnum halda áfram?
Plöturnar:
Air - Moon Safari
Kelly, watch the stars
Air - The Virgin Suicides
The word hurricane is the name given to the world's strongest storm
OutKast - Stankonia
Teddy Pendergrast: cooler than Freddie Jackson sippin a milkshake in a snowstorm
Jamiroquai - Travelling Without Moving
You're a rockstar, in some tin foil, with a glass pipe