be[¡]kon |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
div class="%20ut&%20yfir&%20inn&%20undir"
align="center" color="#FFFFFF"
[/table]
Archives Apríl 2008 Mars 2008 Febrúar 2008 Janúar 2008 Desember 2007 Nóvember 2007 Október 2007 September 2007 Ágúst 2007 Júlí 2007 Júní 2007 Maí 2007 Apríl 2007 Mars 2007 Febrúar 2007 Janúar 2007 Desember 2006 Nóvember 2006 Október 2006 September 2006 Ágúst 2006 Júlí 2006 Júní 2006 Maí 2006 Apríl 2006 Mars 2006 Febrúar 2006 Janúar 2006 Desember 2005 Nóvember 2005 Október 2005 September 2005 Ágúst 2005 Júlí 2005 Júní 2005 Maí 2005 Apríl 2005 Mars 2005 Febrúar 2005 Janúar 2005 Desember 2004 Nóvember 2004 Október 2004 September 2004 Agúst 2004 Júlí 2004 Júní 2004 Maí 2004 Apríl 2004 Mars 2004 Febrúar 2004 Janúar 2004 Desember 2003 Nóvember 2003 Október 2003 September 2003 Ágúst 2003 Júlí 2003 Júní 2003 Maí 2003 |
17.7.03
Örlögin léku við mig þetta kvöld. Þau banna mér að eyða pening. Ég ætlaði að eyða góðri kaffihússtund með vinkvennum mínum tveimur, þeim Veru og Erlu. Ég lagði af stað, nokkuð seint reyndar og var kominn niður götuna mína þegar ég uppgötva að ég hafi gleymt veskinu mínu... jú jú allt í góðu gengi, hleyp til baka og sæki það. Svo hélt ég göngu minni áfram niður í bæ. Á austurstræti kem ég við í hraðbanka til að athuga stöðu og taka út eittþúsund krónur til að geta keypt mér inneign og bóbó. Ég slæ inn númer, sama númer og ég hafði verið með í þrjú ár og bankinn segir mér að það sé vitlaust. Jæja, fínt... hélt ég hafði bara misslegið eða eitthvað slíkt, reyni aftur og bankinn bara svona helvíti þrjóskur. Jæja, hugsa ég... kannski er þessi hraðbanki bara þroskaheftur, aumingja kallinn og geng í næsta hraðbanka sem segir mér að ég hafi slegið rangt númer of oft inn og ákveður að geyma kortið mitt. Djö.... jæja. Ég held, fýldur á svip, áleiðis á Kaffi Culture eins og svo oft áður. Þar bíða stelpurnar, búnar að vera þarna í dágóðan tíma og eru bara á leiðinni út, en þær staldra við aðeins lengur og ég segi þeim frá bankadjöflinum og Erla býðst til að lán mér fyrir einum kaffibolla. Ég bið afgreiðslumanninn um að færa mér klakakaffi þar sem ég hafði aldrei bragðað svoleiðis drykk fyrr og var mjög spenntur fyrir. "I'll koma til you með it" segir hann og ég bíð í svona 15. mín. auðvitað er kallinn búinn að steingleyma mér og stelpurnar bara, nei, við nennum ekki að bíða. Ég eyddi engum pening í kvöld vegna tæknilegra erfiðleika veraldarinnar. Merkilegt nokk. Á heimleið minni spáði ég í hvað þessi kvöldstund hefði verið frábær hefði ég eytt henni með góðri kærustu í rómantískri göngu um bæinn sem var alltof fallegt... Meiri að segja mamma og pabbi fóru í göngutúr! En, nei! hún er bara ekki til, en hún væri mjög vel þegin þessa daganna.
Hér er lýsing á hinni fullkomnu. Hún skal bera sig vel, vera ófeimin en ekki montin. Hún verður að ganga í fötum sem mér (og henni) finnst flott (engir netabolir, takk!) Útlitseinkenni eru ekki svo mikilvæg, en stór augu og náttúrulegt rautt hár eru mikið í uppáhaldi í öjeblikket. Hún skalhafa fallegt bros, bæði í munni og augum. Henni má ekki leiðast tónlist, þvert á móti skal hún vera mikill unandi (og hlusta á samskonar tónlist og ég(sjá plötur)). Hún skal hrífast af Radiohead, helst eiga síðustu 4 diska (en ég sætti mig við tvo þeirra) Hún skal hafa gaman af tónleikum og þessháttar. Hún skal dýrka kvikmyndirnar Amelie og Fight Club. Hún skal hafa nokkurnvegin sömu heimspeki og stjórmála skoðanir og ég (svona svo maður fari ekki að rífast, aðeins ræða hlutina svolítið) Hún má ekki hafa of mikin áhuga á íþróttum. (Ekkert vera að æfa neitt slíkt) Já, þetta er nokkurnveginn komið, ef einhver uppfyllir þessarra óska má hún endilega hafa samband við mig (spoonmeister85@hotmail.com) eða bara í gegnum þetta kommentakerfi þarna fyrir neðan. Plötur síðustu daga: The Datsuns - The Datsuns Harmonic Generator, It's a modulator, yeah. Rúnk - Ghengi Dahls Fjalla fenomenon gaf mér Fanta Lemon Autechre - Confield bm, tsk tskrrr rrr tsk tsts krrr btrrr Radiohead - OK Computer Regular exercise at the gym, three days a week |
||||||||||||||||||||||||||||||