be[¡]kon

28.7.03
 
Vel, Vel, Vel.... Long tæm nó sí. But júv bíköm só bjútifúl sins æ so jú last!

Jæja bloggleysið mitt hefur verið afnumið. Það er komin ný tölva á heimilið upp full af nýjustu tækni, þ.á.m. ADSL nettenging. ú je beibí æ læk jor vörk! En hérna já. Vinnan er búin. Flestir vinir mínir eru einhverstaðar úti í buska. (Reyndar er ég sjálfur að fara eftir aðeins 7og1/2 dag!) En þangað til verð ég bara að leika mér. En helgin var mjög merkileg.

Hún endaði á svefni. Á undan því hafði ég verið að leika mér í nýju tölvunni allan daginn og svo át ég fáeina hluti.

Á laugardag sofnaði ég nokkuð snemma. Ég kom heim um 12 úr mjög þreyttri stemningu í listsmiðjunni þar sem ég, Árni og Íris nutum ókláraðra pítsna sem við pöntuðum áður en við lögðum af stað í laugardalinn. Skrúðgangan endaði á Broadway þar sem krakkarnir fengu Ís og hlustuðu á sveppa úr 70 mín. kynna atriðin. Þetta gekk rosalega vel hjá okkur miðað við að við vorum að gera sona í fyrsta sinn... Ég hafði aldrei trommað sona áður. Íris og Árni höfðu einu sinni prófað að spúa eldi, böt ðe kids lövd öss! Það var mjög gaman. Ég veit ekki hversu oft ég heyrði setninguna „má ég prófa trommuna þína“ Og það er ógeðslega gaman að segja „Nei.“ Við hittum hrikalega áhugasaman túrista áður en við lögðum af stað... oooh a parade! Jæja.... Við vorum nýkomin af fundi með framkvæmdastjóra og gjaldkera NFMH þegar við fórum að undirbúa okkur. Hjörtur komst ekki því hann var með mígreni en kom svo á síðustu mínútu með rabbabara í annarri. En hann átti nebblega að spúa eldi í stað Árna en aflýsti vegna hausverkja. En svo klúðraðist það, Árni var búin að standa í svaka veseni með vinnuna sína og læti, en þetta leystist samt. Strákarnir úr NFMH sátu á Sólon með fartölvu og bjór og endurtóku sig rosalega. Þeir höfðu afskaplega lítið að segja. En jæja. Fyrst vaknaði ég.

Föstudagurinn endaði með fínu kórpartíi, fór reyndar heim bara klukkan 3, var bara á sopa fylleríi vegna atviki fyrr um daginn. En það voru allir voða fullir þarna. En jæja, ég var uppfullur af stemningu þegar ég lagði af stað. Við vorum nebblega komin í kl. 2 stemninguna kl. 11 þarna í listsmiðjunni, densin læk mófó's end sjitt. En ég fór til Skúla sem var fámennsta Bassapartí sem ég hef nokkurn tíman vitað af, engin stemnig og kallarnir að prenta út texta fyrir enn annað cover-lagið sitt. Tenórar áttu heví atriði. Altar voru líka góðar en þær voru þrjár. Bassar voru ömurlegir. Eins og Alltaf. Man ekki hvernig Sópranar voru. Það var samt gaman með Götuleikhúsinu... Það er svo skrýtið að fara úr leiklistarstemningu yfir í kórstemningu.... verí vírd jú nó, þetta er eins og grænt og rautt! (ekki alveg svart og hvítt). Maturinn var heví, ég vil hrósa Mörtu og Helgu Björg fyrir einhverja bestu grilluðu banana sem ég hef fengið.... En áður en ég komst þangað varð ég að kveðja Veru, sem er að fara til Frakklands núna í heilan mánuð. En það ferðalag var langt. Ég lenti nebblega í árekstri á leiðinni þangað.
Ég var staddur á Grensásvegi á leið inn á Suðurlandsbraut. Það var rautt ljós á Suðurlandsbraut og einhver fáviti ætlaði að ná gulaljósinu þótt það væri orðið rautt og þurfti bíllinn á undan mér að snar hemla náttlega og ég bara vó, bremsa ca. meter frá þeim bíl þar sem ég horfði á brjálæðingin keyra yfir, og bara bofs. húddið, stuðarinn og bæði framljósin í klessu, vatnskassin lekur, m+p kreizí (ég náttlega í órétti) náði ekki númer á ökuníðingi. Plebbskotinn! En já. þetta var örlagarík helgi. Ég vona að Danmerkur förin mín verði líka örlagarík, en var ég nokkuð búinn að nefna að ég er að fara þangað eftir 7og1/2 dag? Jú! Plataði ykkur! hahahahahahahahahaha!

Ég fór í dótabúð í dag og hneykslaðist á actionkalla leysinu. Þegar ég var lítill lifði ég fyrir turtles köllum og vinir mínir líka. Batman kallar, Spiderman kallar og fleiri kallar voru ógeðslega vinsælir þá líka. Þeir voru bara ekki til núna. Engir svona kallar! Ég vil mótmæla þessu. Fjöldamótmæli fyrir utan skrifstofunar í bandaríkjunum 7. sept. kl. 15:30.......
Ég var heldur ekki nógu ánægður með Legóið. Þetta var bara eikkað sona Bíómynda Legó þar sem maður þarf ekkert að byggja neitt... Vers ðe fön in ðat? Hvar eru kastalanir? Ha? Geimstöðvanar og Fjarsjóðaeyunar og öll skipin og svona! Önnur mótmæli í Danmörku, bara 8. sept. kl. 16:30. Já. Flott.
Kveð í bili

Records du jour (et le semaine)


Anti-Pop Consortium - Arrythmia
I love a chick rockin' a bra, watchin' tv, holdin' keys to her car, boom
The Flaming Lips - The Soft Bulletin
Will the fight for insanity be the fight of our lives?
The Blood Brothers - Burn, Piano Island, Burn!
Death decodes the howls from our hands
The Datsuns - The Datsuns
She makes me feel like, like a motherfucker from hell!
The White Stripes - Elephant
So many times I call the house just to hear the tone
Radiohead - Kid A
Here, I'm allowed everything, all of the time
Radiohead - Amnesiac
While you make pretty speeches, I'm being cut to shreds