be[¡]kon |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
div class="%20ut&%20yfir&%20inn&%20undir"
align="center" color="#FFFFFF"
[/table]
Archives Apríl 2008 Mars 2008 Febrúar 2008 Janúar 2008 Desember 2007 Nóvember 2007 Október 2007 September 2007 Ágúst 2007 Júlí 2007 Júní 2007 Maí 2007 Apríl 2007 Mars 2007 Febrúar 2007 Janúar 2007 Desember 2006 Nóvember 2006 Október 2006 September 2006 Ágúst 2006 Júlí 2006 Júní 2006 Maí 2006 Apríl 2006 Mars 2006 Febrúar 2006 Janúar 2006 Desember 2005 Nóvember 2005 Október 2005 September 2005 Ágúst 2005 Júlí 2005 Júní 2005 Maí 2005 Apríl 2005 Mars 2005 Febrúar 2005 Janúar 2005 Desember 2004 Nóvember 2004 Október 2004 September 2004 Agúst 2004 Júlí 2004 Júní 2004 Maí 2004 Apríl 2004 Mars 2004 Febrúar 2004 Janúar 2004 Desember 2003 Nóvember 2003 Október 2003 September 2003 Ágúst 2003 Júlí 2003 Júní 2003 Maí 2003 |
31.7.03
Voðalega er maður orðinn eimana. Maður vaknar á morgnana og hefur nákvæmlega ekkert að gera.... Vinnan er búin, hinir vinir manns eru að vinna... Eða þá í útlöndum.
Kvöldin eru erfið líka... Enginn virðist hafa tíma fyrir mann.... Nema Erla. Var einmitt þar rétt áðan að horfa á Holywood Ending. Þetta er ágæt mynd, skemmtileg tvíræðni í titlinum sem kemur fram í myndinni... Allen er náttúrulega frábær, en þetta er ekki neitt framúrskarandi mynd, miðað við hinar. Hann var langbestur fyrir 20-30 árum síðan, Bananas og What's Up Tiger Lily eru einhverjar skemmtilegustu myndir sem ég hef séð, honum hefur farið versnandi, en þessi mynd og Curse of the Jade Scorpion eru vissulega mikil framför úr myndunum sem komu á undan (Small Time Crooks og Sweet & Lowdown).... Þetta er allt að koma eins og skáldið sagði. Ég keypti mér nýjan geisladisk í dag (kemur á óvart, ha? Nei.) Þessi heitir So Much For The City og er með hinni nýlegu hljómsveit Írlands: The Thrills. Ég hef ekki heyrt annað eins í nokkurn tíma. Ef hægt væri að blanda saman Is This It?, Yoshimi Batttles The Pink Robots, If You're Feeling Sinister og Mutations væri þetta úrkoman (en þessar plötur eru einhverjar þær bestu sem hafa sést þennan síðasta áratug - að mínu mati...... og vissulega annarra áhugamanna) Þetta er alveg hrikalega sæt og þægileg tónlist sem ég naut hverrar mínútu af. 11 lög (reyndar 12, eitt er falið ... úúúú!) sem eru mjög lík svona í hljómi en virkilega mismunandi og fjölbreytt stemning. Söngvari sveitarinnar hefur einstaklega skemmtilega rödd sem minnir svolítið á Wayne Coyne, söngvara Íkveiktu varanna og setur algjörlega stemninguna á diskin, mjög brothætt en sæt, þægileg. Þetta er frábær "keyra upp í sveit" diskur en er einnig góður með bjórnum á undan partístemningstónlistinni (The Strokes myndu passa akkúrat) Þeir hefðu samt mátt setja þetta aukalag annarstaðar og sleppt aukalagi, lag númer 11 var svo rosalega góður endir..... Já þessi plata mun líklega prýða aðal-diskamöppuna mína í þónokkurn tíma. (Ég á nefnilega 3 sem eru troðfullar... Hinir doka inn í diskaskáp.....) Ég er að spá í að sæja um sem plötudómari hjá Undirtónum eða Sánd. Ég held ég hefði gott á því.... Hugsið ykkur stafina mína - PE - fyrir neðan grein í Sánd... Eða í tímaritunum Q eða Wire.... Já maður verður ná að byrja einhverstaðar. Plata dagsins, ef ekki bara vikunnar? The Thrills - So Much For The City My agent says writers block, to keep publishers off my back |
||||||||||||||||||||||||||||||