be[¡]kon |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
div class="%20ut&%20yfir&%20inn&%20undir"
align="center" color="#FFFFFF"
[/table]
Archives Apríl 2008 Mars 2008 Febrúar 2008 Janúar 2008 Desember 2007 Nóvember 2007 Október 2007 September 2007 Ágúst 2007 Júlí 2007 Júní 2007 Maí 2007 Apríl 2007 Mars 2007 Febrúar 2007 Janúar 2007 Desember 2006 Nóvember 2006 Október 2006 September 2006 Ágúst 2006 Júlí 2006 Júní 2006 Maí 2006 Apríl 2006 Mars 2006 Febrúar 2006 Janúar 2006 Desember 2005 Nóvember 2005 Október 2005 September 2005 Ágúst 2005 Júlí 2005 Júní 2005 Maí 2005 Apríl 2005 Mars 2005 Febrúar 2005 Janúar 2005 Desember 2004 Nóvember 2004 Október 2004 September 2004 Agúst 2004 Júlí 2004 Júní 2004 Maí 2004 Apríl 2004 Mars 2004 Febrúar 2004 Janúar 2004 Desember 2003 Nóvember 2003 Október 2003 September 2003 Ágúst 2003 Júlí 2003 Júní 2003 Maí 2003 |
22.8.03
Ég skal bara segja ykkur að ferðin mín til svíþjóðar var bara frekar leiðinleg... Ég bara nenni ekkert að vera segja frá. Bara nokkuð bjullí fílingur og svona. Ok, jú... ég segi sona pínu frá....
Fimmtudagur 14. Ágúst Vaknaði alltof snemma til að fara í flugvél.... aftur. Þegar ég hafði lent þurfti ég að bíða eftir henni Ásu sem var fylgdarkona okkar Ernu (Samstarfsmaður minn frá því í sumar) þarna úti en hún var að koma frá Eistlandi... Ég keypti mér Fanta Lime og sona samloku eins og frá Júmbó.... sem var smurð. Ojjjjjj bara. Þykkt lag af ógeðslegu smjöri. Ég gæti gubbað. Svo lögðum við af stað í bæinn... drösluðumst með töskurnar okkar út um allllt. Rosalega bjullí bær. Ég fékk kötbullar í kvöldmat.... Svo fékk ég að gista á hóteli en þær í einhverju koti lengst upp í sveit sem bauð uppá örrugglega besta útsýnið í Stokkhólm... En ég var nálægar bænum... Það voru síðan 3 sænsk/finnskar Jóhanna Guðrúnir í sama prógrami og við en leiðbeinandi þeirra var óléttur þungarokkari en hún var eina ekki bjullan á staðnum. Einnig voru 2 færeyingar sem voru einnig bjullí og sérstaklega leiðbeinandin... Svo var náungi þarna sem hét Torvald og sonur hans Johannes sem leit alveg eins út og Högni Egilsson.... Ég held að Andri sé bara impostor.... Hinn raunverulegi Andri Egilsson býr í Suður-Stokkhólm og svarar við nafninu Johannes. Plata Dagsins: Radiohead - Hail To The Thief Don't want the loonies taking over Föstudagur 15. Ágúst Ég var túristi þennan dag. Það var ógeðslega leiðinlegt. Það er svo leiðinlegt að vera í stórum hóp og horfa á eikkað sem ein manneskja segir að sé ógeðslega flott og maður fær kannski ekki að sjá nógu vel og maður fær ekki kannski að skoða það sem að þér, persónulega finnst flott.... Ég ætla aldrei aftur í sona gædid túr... Ömurlegt. Þegar ég fer til útlanda þá vil ég sjálfur fara og skoða hluti og vera rosalega anti-tourist eikkað, helst ekki líta á kortið því það er svo gaman að villast á stöðum sem maður þekkir ekki... þá fer maður að þekkja þá betur og rata og sona... Það var mjög pirrandi að allir á staðnum töluðu sænsku. Nema ég og Erna og við hlustuðum á margan fyrirlesturinn og skildum ekki baun... sona annað hvert orð en maður náði aldrei að búa til eikkað samhengi. Plata Dagsins: Yeah Yeah Yeahs - Yeah Yeah Yeahs (Bang!) Shit, I got a gallery in New York! Laugardagur 16. Ágúst Ðö big dei... Við Komum fram á Sergelstorgi um morguninn. Þetta torg getur haldið ca. 70.000 manns í allra mesta lagi. Sem betur fer voru ekki nema kannski 500 að horfa... annars hefði maður stressast upp eins og mófó. Þarna var svo svið og risaskjár og massíft hljóðkerfi. Okkur gekk samt voða vel, vorum voða flott og falleg við undirspil Múms og Stefáns Islandis og þar á milli sungum við. Finnsku bjullurnar sungu einhver 2 léleg popplög - sem þær "sömdu" sjálfar og dönsuðu með en sýndu enga helvítis innlifun... þær kunnu sona alveg að syngja og að hreyfa mjaðmarnar en þær kunnu ekkert að performa... Þær höfðu líka verið í einhverjum spes artist skóla... Ég hefði nú gefið þeim lágmarkseinkunn... Bjullur. Eftirmiðdaginn fengum við að fara á tónleika. Ég sá Good Charlotte, Big Brovaz, Einhverjar sænskar bjulluhljómsveitir og Danskan Michael Jackson lookalike... þá gafst ég upp... og missti víst af bestu hljómsveitunum - Outlandish og The Rasmus... en þær voru örrugglega ekkert sérstakar.... Bjullí.... Um kvöldið fengum við túrgæd af einhverju balli sem var í gangi þarna í Kulturhuset fyrir krakka á aldrinum 15-18... Það var einn salur fyrir RnB og Hipp-Hopp tónlist, einn salur fyrir Topp 20 tónlist (RnB og Hipp Hopp) og svo einn reif-salur... BJULLÍ!!!! Mér leið svo illa þennan dag ég barasta gæti hafið kallað á Eyjólf hvenær sem er... En við vorum svo miklir túristar að við vorum túristar á balli. Plata dagsins: Blumbarnir - Bjullur á Báli Nærbuxna tjekk, nærbuxna tjekk!!! Je, beibí.... Sunnudagur 17. Ágúst Allir fóru snemma þennan dag... nema við. Ása og Erna fóru að versla og sögðu "við hittumst á Sergelstorgi klukkan 17"- klukkan var 12.... Ég náttlega bara... ömm, ha, ooook....? Og er skilinn eftir áður en ég gat sagt H&M er ofmetin... Ég bara vafra um... fer í plötubúðir... peningalaus, finn rosalega fínan markað... fer á netið,sit í klukkutíma á McDonalds og enda á Sergelstorgi klukkan fjögur og bara les Radiohead blaðið mitt... rosalega eikkað einn og einmanna... En þennan dag tók ég eftir hvað Stokkhólmur var bjullu-frí og áttaði mig á því að ástæða bjulluleikans var fjöldi sænskra sveitaunglinga sem sóttu þessa hátíð.... Ég verð að fara aftur einhverntíman og skoða bæinn almennilega... Því hér er mjög fallegt kvenfólk og góðar plötubúðir............................................................ ....................................................................................................................................................... Plata Dagsins: Velvet Underground - White Light/White Heat She would kiss him and maybe they would see a movie. If only he hadn't thought of it before Frábær fyrsti skóladagur! Alltof gott veður og alltof mögnuð stemning... Pulsur og Pepsi á góðu verði... Atli með sína góðu tónlist og bara fínasta stundatafla... Þetta ár verður gott! Plata Dagsins: The Raveonettes - Whip It On Wanna drink and drive, have some fun Mig langar í: Miða og flugmiða á Radiohead tónleika Peninga Meiri tíma Stærra herbergi |
||||||||||||||||||||||||||||||