be[¡]kon

30.8.03
 
Its von ov ðós deis.
Meður er eikkað so bjullí, vaknar seint, grátt veður, maður fer í bæin til að hífa sig aðeins upp en svo á maður engan pening og maður fer heim og reynir að skapa eitthvað, t.d. tónverk eða hanna einhverja flík en maður hættir svo við því maður vill frekar borða og klárar sköpunina seinna í vikunni. En núna skapaði ég mat. Ég og hún Steinunn bjuggum til Kínverska útgáfu af "Pínödbötter en djellí" en við smurðum brauðsneiðar með hnetusmjöri og skárum í ferninga og höfðum sólberjahlaup með og dýfðum brauðinu ofaní með prjónum. Drukkum svo kakómalt með sem var í stóru Latte glösunum sem ég tók með heim frá Svíþjóð en hér kemur sagan af því:
Á lestarstöðinni á leið út á flugvöll var sona lítil kaffibúð. Mamma og Pabbi voru nýbúin að eignast kaffivél og mér fannst vanta svo kaffiglös. Ég fer á afgreiðsluborð með 4 glös og ætla að borga með kortinu mínu og afgreiðslustúlkan segir, sorrí böt ðers sömþing rong við jor kard... ég bjóst náttlega við að það var vegna þess að kortið var erlent svo ég hleyp í hrað banka og reynað taka út pening en þá er ég bara búinn með peningin minn eða sona flest og gat ekki tekið út 100SEK svo ég fer aftur og segi, "æl pei við ðís hír 29krónurs end træ ðe rest við ðe kard"... hún eikkað "ók" og svo bara "sorrí"... ég bara "træ þrí glassis" og aftur bara "sorrí" svo fer yfirmaðurinn hennar inn í tjillstað starfsfólks og hún tekur þessar tuttuguogníu krónur sem ég átti í klinki og lætur mig hafa öll 4 glösin og bara "uss" og ég bara "þenk jú fabjúlös pörsön" og bara verð rosalega klökkur... og hún brosir voða hlýlega og bara vá. Eitt glas kostaði 35.

Ég mætti náunga niðrá bankastræti í ljósbláum jakkafötum með glitrandifjólubláa hárkollu sem spurði mig mjös skemmtilegra spurninga eins og "hvaða varnir notar þú" Svar: "Derhúfuna mína" og "hver á frumkvæðið" Svar: "Jón Sigurðsson" og fl. og svo reyndi hann að selja mér kvennanærbuxur. Kómískt.

Plötur:
Beck - Midnite Vultures
Lady, step inside my Hyundai
The Eighties Matchbox B-Line Disaster - Hörse of the Dög
I drink all night and I sleep all day
Anti-pop Consortium - Arrythmia
She laughed, asked me if I knew Mike Zane, in 15 I was like "not really, no" "I know he's got that blow" I was like "oh" took a picture of that body in my mind, yo, than it was time to go.

Mig langar náttlega í eikkað...
Ný heyrnartól
Góðan kodda
Hvíta Converse skó til að lita og mála.
Liti og fatamálingu