be[¡]kon

20.8.03
 
Je beibí.... Kominn með stundatöflu og bara kominn skólafílingur í mann. Það er svo gaman að koma svona og ná í töfluna og bara, hei hó! Þetta ár lofar góðu... stundataflan þarf ekkert of miklar breytingar og ég hugsa að það sé bara gott fólk með mér í tíma og svo er þetta nýja kerfi alveg að meltast...

En HEI!!!

Mánudagur 11. Ágúst

Ég hafði bara ekki verið jafn morgunhress í heila viku... Magnað, hreint magnað. Við Erla vorum bara eikkað í bænum að versla ögn meira þennan dag og ekkret neitt mikilfenglegt að segja frá.
En um kvöldið fórum við á rónafyllerí... ðe danisj vei.
Við keyptum okkur Vodka og bland og héldum í Nyhavn. Á leiðinni mættum við náunga sem hét Rasmus (sem hafði búið á Reventlowsgade með stelpunum fyrstu vikunnar) og vini hans sem litust alls ekki á þetta ferðalag okkar og sigldi með okkur í Christianshavn á einhvern fínan bar þar, á mótorbátnum sínum, um miðja nótt, og fullt tungl í þokkabót. Bjútifúl. Æ tel jú. Mötj bjútifúl.
Okkur leist samt ekkert á þennan bar svo við löbbuðum bara til baka og í Nyhavn og blönduðum okkar stöff og drukkum og tjúttuðum við Djöstin sem hljómaði úr Gettóblaster í fjarskanum...

Plötur dagsins:
Radio 4 - Gotham!
The Liars - They Threw Us All In A Trench And Stuck A Monument On Top

Þriðjudagur 12. Ágúst

Síðasti deginum okkar var eytt á Robbakaffi. Fyrir utan þær stundir sem við kíktum í búðirnar í seinasta sinn. Þennan dag varð Radiohead safnið mitt mjög ríkt. Fyrst finn ég There There prómóinn á 30 DKK sem er ekkert nema gott og seinna finn ég engan annan en sjálfan Airbag/How Am I Driving 7 laga diskinn á ekki nema 110 DKK (á sama stað fann ég There, There prómóinn á 30$) Það var kreisí... svo var það bara flugvél og bara heim... allir peningar búnir... en þeim gæti ekki hafa verið eytt í betri hluti en þessa stórkostlegu ferð.

Plötur Dagsins:
Radiohead - Airbag/How Am I Driving
Radiohead - OK Computer

Stei tjúnd for Svíden!

Mig langar í:
Yoshimi Battles The Pink Robots
Gabríellubók
Saumavél