be[¡]kon

19.8.03
 
Jei! Ég á ammli í dag.... Voða gaman... eða eikkað.
Já núna hef ég víst algert frelsi, svona nokkurn veginn... Ég má kjósa, taka lán, kaupa sígarettur og alls konar dót... Æ em offisjalí an adölt... Ég finn samt ekkert fyrir neinni breytingu. Jú, skeggrótin mín er orðin soldið góð.

Núna heldur áfram sagan um Pétur í danmörku...

Laugardagur 9. Ágúst

Bevar Christiania
O O O

Ég fór í tilraunina í dag og skoðaði hana almennilega. Vá hvað þetta er fallegt landsvæði! Ég var búinn að ímynda mér Kristjaníu sem virkilega skítugt pleis, sona fullt af múr húsum og einhverju og djönkís allstaðar og eikkað bjull og sona.... En svo er þetta bara heví kósí staður! Maður labbar þarna inn um hliðið og þar er stór markaður sem blasir við manni, fólk að selja allskonar hluti frá pappírum til bongó tromna... Ég keypti mér svona afrískt klukkuspil, rosalega fallegúr hljómur í þessu. Svo heldur maður áfram og labbar hina margrómuðu götu, Pusherstreet þar sem dílerar velta milljónum á dag og lagt er á borð allskonar jónur og hasstegundir, plöntur og jú neim it... Ekkert annað dóp, kristjaníu búar eru virkilega á móti hörðum vímuefnum... "Say no to hard drugs" slagarinn fannst víða um bæinn. Þegar maður er kominn framhjá götunni og hassbörunum kemur maður inn í svæðið þar sem fólkið býr, þar er leikskóli, leikvöllur, hjólabrettagarður, baðhús og allskonar almenningsþjónustu staðir. Aðeins lengra fer maður yfir brú sem fer yfir þetta fallega, fallega fljót og þaðan sést fallega náttúran sem er þarna. Svo gengur maður meðfram stíg (ath. það er aðeins ein göngugata í kristjaníu, öll umferð bifreiða er bönnuð - hentugt í landi þar sem allir hjóla) og þar eru öll húsin. Fólk byggir húsin sín sjálf eins og það vill... Ekkert svona skipulag. Ekkert hús er eins og fólkið málar þau á allskonar vegu... Ótrúlegt andrúmsloft þarna, fólkið þarna er svo friðsælt, hundarnir eru eins og kettir, liggja um og láta alla í friði... samt eru þeir villtir. Og svo er líka bara frábært fyrir lögguna að hafa allt hass á einum stað. Mér finnst asnalegt hjá dönskum yfirvöldum að leggja niður þessa "félagslega tilraun" og vil ég bara vitna í texta Joni Mitchell:

They paved paradise and put up a parking lot.
A pink botique, a hotel and a swinging hot spot.


Ég hvet fólk að kynna sér þetta landsvæði og vernda það.

Kvöldið var svo bara allsherjar fyllerí. 2 bjórar f. 30 á Moose, Tequila á 10 á L.A. Bar, 10 staup á 100 á Basement og Tvöfalt líkjör á Vertigó.
Hvað er að gerast/Crazy feet dansin var dansaður af mikilli innlifun og þá einnig diskódansinn góði. Vil ég þakka götuleikhús fólki fyrir að opna augun mín fyrir skemmtilegum hópdönsum.....
Kvöldið endaði á Metróstöðinni í Kristjánshöfn þar sem við tókum lest til baka.... Á 0700ðasta tímanum fórum við heim.
Plata dagsins:
Joni Mitchell - Hits

You're a mean old daddy but I like you...

Sunnudagur 10. Ágúst

Ömmm.... Vaknaði 19:00 var kominn í bæ kl. 21:30 eftir góðan og bjullí McDonalds þynnkubana.... Robert's Coffee var algerlega málið þennan dag. Mmmmm góð tilhugsun að fá sér Latte og liggja í rúminu með bóbó.... Guð hvað það var kósí tilhugsun, EN NEI. Það var lokað. Plebbar. Við leituðum í örvæntingu að jafngóðu kaffihúsi. Við ráfuðum inn á voða kósí stað en eftir að hafa setið í korter föttuðum við að þetta var hommabar... Fundum samt frábæran stað í lokin þar sem við fengum góðar kökur...
Ég lenti á sona náunga sem sagði "Hvad?" nokkrum sinnum....
Pétur:Har dú nóle kaker?
Dani:Hvad?
P:Kager? harr dú kager?
D: Hvad siger du, jeg forstar ikke!
P: Harr dú nóle kager???
D: Ja, kager. Nej desverre.
P: (ohhhh)

Geggjað gaman vúúúúú....!!!

Plata dagsins: Four Tet - Rounds

Hei, til hamingju með ammlið Pétur!
Hei, takk maður!

Mig langar í...
Fullt af Radiohead smáskífum
Fyrsta Beck diskinn (One Foot In The Grave)
Beck
Könnu til að flóa mjólk í