be[¡]kon |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
div class="%20ut&%20yfir&%20inn&%20undir"
align="center" color="#FFFFFF"
[/table]
Archives Apríl 2008 Mars 2008 Febrúar 2008 Janúar 2008 Desember 2007 Nóvember 2007 Október 2007 September 2007 Ágúst 2007 Júlí 2007 Júní 2007 Maí 2007 Apríl 2007 Mars 2007 Febrúar 2007 Janúar 2007 Desember 2006 Nóvember 2006 Október 2006 September 2006 Ágúst 2006 Júlí 2006 Júní 2006 Maí 2006 Apríl 2006 Mars 2006 Febrúar 2006 Janúar 2006 Desember 2005 Nóvember 2005 Október 2005 September 2005 Ágúst 2005 Júlí 2005 Júní 2005 Maí 2005 Apríl 2005 Mars 2005 Febrúar 2005 Janúar 2005 Desember 2004 Nóvember 2004 Október 2004 September 2004 Agúst 2004 Júlí 2004 Júní 2004 Maí 2004 Apríl 2004 Mars 2004 Febrúar 2004 Janúar 2004 Desember 2003 Nóvember 2003 Október 2003 September 2003 Ágúst 2003 Júlí 2003 Júní 2003 Maí 2003 |
3.8.03
Ótrúleg verslunarmannahelgi!
Krakkar, Reykjavík er málið! Ég hef bara ekki skemmt mér svona vel leeeengi! Innipúka hátíðin í gær var frábær. Ég mætti rétt þegar Egill Sæbjörns var að klára - soldið fúlt en það var greinilega þægileg stemning hjá honum þar sem allir sátu á gólfinu.... Þar mætti ég mínu kvöldföruneyti - Erlu, Adda, Áslaugu og Bylgju. Eftir Egil var maður kominn í bjórinn og beið spenntur eftir neistu sveit - engin önnur en gleðisveitin Rúnk! Þau stigu á svið og hófu tónleikana á laginu Men and Motors sem kom öllum í gott stuð. Svo kom í ljós að Yamahainn þeirra var bilaður en það skipti greinilega litlu þau björguðu sér alveg með hinum hljómborðunum sínum og spiluðu svo Wall Street og Andhól af einstakri snilld og lá við að húsið myndi tryllast af hamingju. Næst kom röð af góðum lögum - CD Extra Bonus Track, Yamaha Algleymi og svo Innipúkalagið en á meðan þau spiluðu hið síðastnefda var klippt á band sem hélt uppi blöðrum úr loftinu - en meiri hamingja. Svo var þessu sluttað með skemmtilegasta lagi sveitarinnar - Atlavík '84. Ótrúleg hljómsveit og framkoma sveitarinnar var virkilega einstök. Það geislar alveg hrikalega af henni Hildi söngkonu - alltaf svo fjörug en samt kúl á samatíma - mjög skemmtilega klædd, í grænum kjól og sokkabuxum í stíl með bleika derhúfu síðan. Jæja. Meiri bjór. Dr. Gunni. Ég bara nennti ekki að hlusta á hann. Mér fannst þetta bara ekkert spes. Nokkuð óskipulagt og ófrumlegt rokk-eitthvað. Framkoma ósköp venjuleg og bara já. Bjórinn og Svisslendingurinn (sem kunni hebresku) sem við hittum þarna voru miklu skemmtilegri. Jæja. Loksins kom að Botnleðju. Þeir voru, eins og alltaf, rosalega þéttir en spiluðu samt aðallega nýtt efni - jújú það er alveg gaman að heyra lög eins og Eurovísu og Brains, Balls & Dolls en mér fannst vanta alveg gamla efnið, Drullumall og Fólk er Fífl hefði ég vilja sjá meira af, en svona verður þetta víst að vera. Þeir spiluðu líka alltof stutt. Þeir spiluðu örrugglega í svona rúman hálftíma. En þetta var samt mjög gaman - ég varð að hlaupa út eftir Eurovísu og anda þar sem ég var næstumþví búnað kalla á eyjólf þarna í pittinum, margir bjórar, mikið hopp og margir olnbogar og slíkt í magan passa ekki vel saman..... Trabant komu svo síðastir með hrikalega flott performans. Rosalegur stíll á köppunum. Allir blóðugir í framan í hrikalega ósmekklegum - en flottum fötum. Þeir spiluðu fullt af nýju efni sem hljómaði alveg rosalega vel. Gamla efnið tókst ekki alveg nógu vel hjá þeim, fyrir utan Lady Elephant - mjög flott, enda kominn stuð í krádið þá... en þeir eru núna farnir að hljóma miklu meira eins og elektrónísk útgáfa af AC/DC sem er einstaklega skemmtileg. Söngvari sveitarinnar var nánast kominn úr öllu er leið undir lok. Fór fyrst úr skónum, svo fór derhúfan (sama húfa og Hildur skartaði fyrr) Næst bolurinn og síðast sokkarnir. Mjög kómískt enda ekkert neitt hrikalega vel vaxinn maður. Þeir slúttuðu svo á nýju lagi sem þeir kölluðu power ballöðuna sína og ringdi konfetti yfir sviðið á loka tónum lagsins. Þeir voru síðan klappaðir upp (eina sveitin sem fékk klapp) og spiluðu lag eftir apparat sem kom svona ágætlega út. Næst tók nonnabiti við þar sem að magar voru svangir og svo heim. Jæja ég er bara farinn að pakka - ekki viss hvort ég bloggi meir áður en ég fer út. Ég reyni að blogga síðan í kóngsins köben en ég lofa engu.... Annars bara: Til ví mít agen.... Plötur: Rúnk - Ghengi Dahls Það er gata í Reykjavík, gatan sú er engri lík, því við hana er Wall Street Trabant - Moment of Truth Go to bahama in stereo Botnleðja - Iceland National Park You gotta ask yourself |
||||||||||||||||||||||||||||||