be[¡]kon

20.9.03
 
Bloggíbloggblogg...
Sagði maðurinn þegar ég spurði hvað klukkan væri. En núna er hún hálf fimm og jeg er sona tiltölulega nýkominn úr sveittri stórfélagsferð þar sem allt gekk út á að ganga af göflunum og henda tennisbolta í gegnum rúðu með gati í, sona einsog hjá gjaldkerum í bönkum. Ég huxa að myndir verða settar inná heilabu.net innan skamms, en þangað til megið þið skoða þetta.

Við erum komin með busa í ráðið okkar. Hún heitir Júlía og er fróðari um tónlist en jeg. Það finnst mér svalt.

Mér fannst mjög fyndinn samanburðurinn á VÍ og MH í Daglegu lífi morgunblaðsins. Fólk gerir sér kannski ekki grein fyrir því en þessi staðalímynd skólanna tveggja er rosalega mikið til staðar. Nemendurnir sögðu svo akkúrat rétta hluti um hvort annað sem voru síðan staðfestir af gagnstæðu nemendunum. Mér fyndist það voða gaman ef það væri ennþá sona gamnistríð milli þessarra skóla vegna stjórnmálaskoðanna og svona... það myndi bara skapast svo helvíti sterk stemning milli nemenda og svona. Reyndar verður Verzlóball í MH á næstunni samkvæmt áreiðanlegu slúðri en Verzló ætlar víst ekki að taka þátt og halda sitt MH-ball. Það er svoldið tilgangslaust að gera grín af einhverjum einum skóla ef hinn vill ekki svara. Ööööömurlegt. Ojjj bara.

Góðar plötur:
Sonic Youth - Dirty
I love you, I love you, I love you, what's your name?
The Blood Brothers - Burn, Piano Island, Burn
Death inverts the red from romance
White Stripes - De Stijl
A boy's best friend is his mother or whatever as become his pet
The Raveonettes - Chain Gang of Love
Shellac - 1000 Hurts