be[¡]kon

28.9.03
 
Ég villtist inn í 10-11 í gærkveldi þar sem að afar skemmtilegur afgreiðslumaður tók á móti mér og Kobba. Hann vildi endilega að við smökkuðum öll Jelly Belly brögðin sem voru þarna í boði og djöfull er þetta ógeðslega fökked öpp nammi. Hver vill borða hlaup sem er alveg eins og bragðið og popp með smjöri og þegar ég segi alveg eins þá meina ég aaaalveg eins. Ótrúleg bragðfræði í gangi þarna. Þá ekki að vera poppbragð á nammi. Eða ristaðbrauð. Eða Café Latte. Eða Jalapeno. Ojj bara. Svo í BNA er örrugglega hægt að fá kartöflubragð eða bjórbragð. Gubbbragð. Ef ég vil fá ristaðbrauð eða bjór þá vil ég ristaðbrauð eða bjór, ekki nammibaun.

Plötur:
Lamb - Lamb
I could wrap you up in cotton wool.
The Kills - Keep On Your Mean Side
Get my name stiched on your lips.
Autechre - Confield