be[¡]kon |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
div class="%20ut&%20yfir&%20inn&%20undir"
align="center" color="#FFFFFF"
[/table]
Archives Apríl 2008 Mars 2008 Febrúar 2008 Janúar 2008 Desember 2007 Nóvember 2007 Október 2007 September 2007 Ágúst 2007 Júlí 2007 Júní 2007 Maí 2007 Apríl 2007 Mars 2007 Febrúar 2007 Janúar 2007 Desember 2006 Nóvember 2006 Október 2006 September 2006 Ágúst 2006 Júlí 2006 Júní 2006 Maí 2006 Apríl 2006 Mars 2006 Febrúar 2006 Janúar 2006 Desember 2005 Nóvember 2005 Október 2005 September 2005 Ágúst 2005 Júlí 2005 Júní 2005 Maí 2005 Apríl 2005 Mars 2005 Febrúar 2005 Janúar 2005 Desember 2004 Nóvember 2004 Október 2004 September 2004 Agúst 2004 Júlí 2004 Júní 2004 Maí 2004 Apríl 2004 Mars 2004 Febrúar 2004 Janúar 2004 Desember 2003 Nóvember 2003 Október 2003 September 2003 Ágúst 2003 Júlí 2003 Júní 2003 Maí 2003 |
20.10.03
Djöfull hata ég þetgar maður ætlar að skoða eitthvað áhugavert á netinu og svo gleymir maður því um leið og maður er sestur við tölvuna af því að litli bróðir manns er að monta sig á hversu góður hann er í Super Mario en þurfi samt smá hjálp við að hoppa á einn stað í heimi þrjú borði tvö og hvort ég gæti hjálpað honum aðeins og þá festist ég í helvítis leiknum sem ég átti rétt svo að hjálpa honum með og þ.a.l. gleymi því sem ég ætlaði upprunalega að gera í tölvunni hinum megin í stofunni og það er geðveikt ömurlegt.
Í dag ætlaði ég að klára þetta vetrarfrí mitt á einhverju sem ég hef varla tíma fyrir venjulegar helgar, að fara í bæinn, kaupa kannski húfu eða eitthvað, kíkja í skífunna og hlusta á ófáa geisladiska, en ég er með hálsbólgu ársins, gott fólk. Hún byrjaði að myndast á fimmtudagin en ekki bætti þessi tónlistarhátíð úr skák, ó nei, í morgun gat ég bara alls ekki talað og er búinn að vera sötrandi te og kakó í allan dag. En auðvitað fórna ég ekki glæsilegri tónlistarhátíð vegna einhverjum bakteríum í koki mínu, piff... Svo á laugardaginn, áður en ég fór á tónleika fór ég út að borða. Fyrir utan perluna. Ekki gleyma því að ég er götuleikari og við tökum upp á ýmsum hlutum, en orkuveitan var að fagna vinnuárinu og götuleikhúsið átti að velkoma fólki. Ég og ein stelpa hlutum það lúxus verkefni að sitja fyrir utan við borð og fá mat frá perlunni og í leiðinni heilsa orkuveitufólkinu sem átti leið í perluna. Við komum út og það var búið að leggja á borð fyrir okkur, voða fínt með tilheyrandi blómvendi, vatni og kóki (í vínglösum). Og við biðum eftir matnum sem orkó/perlan var búin að lofa okkur. Í skítakuldanum og rigninguni, biðum við í þennan klukkutíma sem okkur var ætlað að vera á staðnum, í þunnum jakkafötum og kjól, með kalt vatn og kalt kók, fulla starfsmenn að reyna að vera ææægilega fyndin "slæm þjónusta, ha?", "fenguð þið ekki borð uppi" og meira að segja "gemmér koss". Ojj bara. Þetta er önnur ástæða veikleika minns í dag. Plata dagsins: Guitar Wolf - Missile Me |
||||||||||||||||||||||||||||||