be[¡]kon

16.10.03
 
Þá er ég bara kominn með passa á þessa frábæru tónlistarhátíð Íslands sem kennd er við bylgjur himins (þó ég þekki þær nú ekki). En það verður eflaust gaman og ég get hætt að pirrast útí Júlíu sem er stödd í stóra eplinu eins og er - helvítis plebbi.
En ég var að velta fyrir mér hvort að menn fortíðar hefði átt viðurnefni, eins og Siggi pönk, Gummi rotta, Robbi ostur og auðvitað Dabbi Grensás? Ætli J.S. Bach hafi verið kallaður Nonni Barokk eða W.A. Mozart kallaður Addi Klass? Svo væri Kreisler kallaður Frizzi Róm eða Frizzi mantík
... Djöfull er popptíví leiðinleg stöð.
Hversu margir "listamenn" ætli hafa sagt "hei, þetta lag er ógeðslega vinsælt, gerum eitt nákvæmlega eins og fáum Neptunes til að pródúsera" ? Það heyrist líka bara EKKERT annað á þessarri stöð, það er ekkert airwaves prógram eða neitt, ég væri alveg til í að sjá myndbönd með einhverjum sveitanna sem er að spila í ár. Jú, maður sér kannski Daysleeper af og til, en það er líka rusl. Nei, Pétur í alvöru, Sverrir Bergmann er mjög góður tónlistarmaður... Áttu mótorhjól?
Jæja.
Ég er farinn að hlakka til tónleikahalds.

Plötur:
Muse - Showbiz
Daysleeper - Eva Alice