be[¡]kon

2.10.03
 
Hvað er að?
Leikfimisganga MH er orðin eikkað kreizí.... Ég var sáttur við þessa tveggja tíma göngu inn í skerjó/fossvog sem var í fyrra og árið undan en núna er verið að dröslast með mann gegnum elliðarárdalin. Og aftur til baka! Eins og maður sé hraust ungmenni...! Já, við áttum svo gott í gamladaga. Ég tók samt strætó heim, það er miklu sniðugra... ég neita að fá harðsperur í fyrramálið!!!
Svo er víst eikkað pool(bjór)kvöld í kvöld sem Íþróttaráð stendur fyrir... Loksins gerir þetta asnalega ráð eitthvað. Ég er samt á þeirri skoðun að íþróttaráð ætti eiginlega að heita fyllerísráð eða blumbaráð (reyndar eru engir blumbar í félaginu núna...) því að allt sem gerist hjá þessu ráði er eintómt fyllerí eða blumberí... þessar ferðir sko! Og fótboltamótið... hvað er það? Samt er ekkert mikið íþróttapakk í MH svo þetta passar alveg... Þeir sem voru eitthvað í íþróttum þegar þeir voru litlir eru núna bara metnaðarlausir rónar. En það er ekkert að því... Drykkja er fínasta íþrótt/afþreying.
Já, gleðilegan október.
Ég er alveg hættur að geta skrifað langar færslur. Og ég skrifa ekki einu sinni jafn oft.. Blogg er ljótt orð. Endilega skráið hugmyndir að góðu rammíslensku orði fyrir svona vefdagbókarfærslur... (hið síðasta orð er of langt.)

Plötur:
Belle & Sebastian - Dear Catastrophe Waitress
We need to talk, step into my office, baby
Melt Banana - Charlie
I painted chipped zoo on the cracked wall
Strokes - Room On Fire
I said please don’t slow me down, if I’m going too fast