be[¡]kon

8.10.03
 
Venjulega þegar maðr biður um pylsu fær maður brauð með steiktum lauk (ég fæ mér ekki hráan) neðst, tómatsósu, remúlaði, pulsu og svo sinnep ofaná.
Í dag fór ég á lækjartorg og ég fékk pylsu sem var öll í ólagi. Fyrst kom brauðið, svo remúlaðið og svo sinnepið. Næst kom steikti laukurinn svo pulsan og síðast tómatsósan ofan á.
Þessi pylsa var ógeðsleg. Tómatsósan og steikti laukurinn voru ekki blandaðir saman.... Afgreiðslustelpuni hefur fundist það sniðugt að setja tómatsósuna ofaná og ahitt neðaná því sumum finnst gott að hafa tómatsósu ofaná líka það er nebblega „katsjið“. Tómatsósan verður að vera neðst. Hún bara verður. Stelpan sem vinnur á lækjartorgi er bara ööömurleg... Hún lokaði líka sjoppuni til að fara í bóbó! Bjulla.

Plötur:
Beck - Sea Change
Let the window down, feel the moonlight on your skin

Beck - Midnite Vultures
Mmm tweak my nipple, champagne and ripple, shamans go cripple, my sales go triple...

Maður vikunnar: Beck