be[¡]kon

19.11.03
 
gaaahh!!! hvað er að gerast? Er Pétur að blogga? Ha? hvaðahvaða? Er ekki í lagi? Hefurðu tíma? Bíddu, áttu ekki að vera í Bosníu?

Ahem.

Ég afsaka.
Músaka.
Múfasa.
Que pasa?
Pasta.
Rasta.
Bob Marley.

Ef ég ætti pening....
myndi ég eiga nord electro 2.
Ef ég ætti nord electro 2....
væri Gaur skemmtilegri hljómsveit.
Ef Gaur væri skemmtilegri hljómsveit....
myndi vera ennþá meira að gera hjá mér og poppstjörnunni.
Ef það væri ennþá meira að gera hjá mér og poppstjörnunni myndi ég fá taugaáfall og hætta í hljómsveitinni og stofna mína eigin litla hljómsveit með sjálfum mér og Júlíu, kaupa gítar læra á hann og verða næsti Jack White og við yrðum heimsfræg og þá myndi vera aftur orðið alltof mikið að gera og ég myndi fá annað taugaáfall og þá myndi ég læsa mig inni með tölvu og semja raftónlist í svona tvö ár, koma út úr skápnum, byrja með frönskum danstónlistar pródúser, fara útí kókaín og fara á hausinn og tek síðan óverdós og dey. Nokkrum árum seinna finnast þessar týndu raftónlistarupptökur og ekkjan/ekkinn franska/franski myndi reyna að gefa þetta út en Júlía myndi fara í mál við hann því að hún segist eiga höfundarréttinn og það endar með því að hún verði drepin af Ísraelsku leynilöreglunni vegna ástarsambands hennar við hinn mikla leiðtoga Palestínu. Þá er þetta efni gefið út og 20 árum seinna verður Demó diskurinn sem Gaur bjó til fyrir stuttu, á uppoði og verður keypt á margar milljónir, og ég verð að tónlistar-goði en nokkrum árum síðar ferst heimurinn allur vegna stóra rafsegulskrýmslins sem étur alla síma sem hann finnur og þá verða náttúrulega bara símar sem stjórna öllu, tölvur verða úreltar og allir munu deyja því að símarnir skapa allt sem til er vegna nýrrar laga um að það eigi ekki að borða lífverur þannig að símarnir búa þær til í staðinn og við étum svona rafsegul-kjöt. Eftir að símarnir allir farast mun fólkið allt springa og þá kemur dómsdagur og dvergar munu dansa í tunglinu þar sem verðu heljarinnar veisla fyrir alla þá sem eiga ekki síma....


Niðurstaðan að þesarri sögu er:
Ekki borða ost, annars verðurðu að dvergi.

Plötur, Plötur, Plötur:

Radio 4 - Gotham!
Zero 7 - Simple Things
Massive Attack - Mezzanine